Skessuhorn - 02.02.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 20222
573 í sóttkví og
einangrun
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi birti síðdegis á
mánudaginn samantekt um
fjölda smitaðra af Covid19 og
í sóttkví í landshlutanum. Líkt
og búist hafði verið við í kjöl
far tilslakana á sóttvörnum hef
ur fjölgað bæði í einangrun og
sóttkví; voru alls 573 á Vestur
landi; 241 í sóttkví og 332 í ein
angrun. Langmest fjölgun hafði
orðið í heilsugæsluumdæmun
um á Akranesi og Borgarnesi. Á
Akranesi voru 177 í einangrun
og 145 í sóttkví; í Borgarbyggð
121 í einangrun og 73 í sóttkví;
í Snæfellsbæ 16 í einangrun og
fimm í sóttkví; í Grundarfirði
níu í einangrun og 14 í sóttkví; í
Stykkishólmi sjö í einangrun og
tveir í sóttkví og loks í Dölum
tveir í einangrun og aðrir tveir í
sóttkví. -mm
Að nýju
í formannsslag
LANDIÐ: Líkur eru á að
hressilega verði tekist á í bar
áttunni um formennsku í Efl
ingu stéttarfélagi. Sólveig Anna
Jónsdóttir, sem sagði af sér for
mennsku í félaginu á síðasta ári,
ætlar nú að gefa kost á sér að
nýju til formennsku í félaginu.
Hún segir fjölda áskorana frá
félagsmönnum ástæðu þess að
hún ætli fram að nýju. Tvö önn
ur hafa tilkynnt um framboð;
Ólöf Helga Adolfsdóttir núver
andi varaformaður stjórnar og
Guðmundur Baldursson stjórn
armaður í félaginu. Kosningu
um formanninn lýkur 15. febr
úar nk. -mm
Verðbólgudraug-
ur bærir á sér
LANDIÐ: Verðbólga síðustu
tólf mánuði mælist nú 5,7%
samkvæmt neysluvísitölu Hag
stofunnar. Verðbólga hefur ekki
verið eins mikil hér á landi í ára
tug. Gert er ráð fyrir að Seðla
banki Íslands hækki stýrivexti á
næsta vaxtaákvörðunardegi sem
er 9. febrúar næstkomandi, en
stýrivextir eru tvö prósent í dag.
Vísitala neysluverðs hækkaði
um 0,5 prósentustig milli des
ember og janúar. Það er áfram
haldandi þensla á húsnæðis
markaði sem áfram kyndir und
ir verðbólgunni því án húsnæð
isliðar mælist verðbólgan 3,7%
síðustu tólf mánuði. -mm
Þakplötur
að fjúka
AKRANES: Björgunarfélag
Akraness var kallað út á þriðju
dag í liðinni viku til að aðstoða
vegna foks á þakplötu og klæðn
ingu á húsi á Vallholti. Sama
dag fauk klæðning á húsi við
Vesturgötu, björgunarsveitin
kom á staðinn og negldi klæðn
inguna á aftur. -vaks
Undanfarna daga hefur víða ver-
ið hálka á götum og því um að
gera að fara ofur varlega í þeim
aðstæðum. Gangandi vegfar-
endur eiga það á hættu að fljúga
á hausinn á svellinu og það er
aldrei skemmtilegt. Þá þurfa
ökumenn einnig að vara sig og
aka hægar því hálkan er stund-
um ekki sjáanleg á götum eða á
vegum úti og þá geta óhöpp átt
sér stað. Sérstaklega þurfa öku-
menn að gæta að sér nálægt
skólum og íbúðahverfum því
börnin geta verið annars hugar
oft á tíðum á leið sinni í og úr
skóla.
Á fimmtudag gengur í norðan
10-18 m/s með snjókomu eða
éljum, en þurrt að kalla verð-
ur á sunnanverðu landinu. Frost
3 til 9 stig. Á föstudag má bú-
ast við norðvestan 8-15, hvassast
með austurströndinni. Léttskýj-
að sunnan heiða, en él á Norð-
ur- og Austurlandi. Hægari vind-
ur og styttir upp um kvöldið.
Áfram kalt í veðri. Á laugardag
og sunnudag er gert ráð fyr-
ir breytilegri átt og snjókomu
með köflum eða éljum í flestum
landshlutum. Frost 3 til 10 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Ertu að fylgj-
ast með EM í handbolta?“ 41%
sagði „Já en bara með leikjum
Íslands,“ 35% sögðu „Já, horfi á
flesta leiki“ og 24% sögðu „Nei,
hef engan áhuga á handbolta.“
Í næstu viku er spurt:
Hvaða fisk finnst þér best að
borða?
Í gær, þriðjudaginn 1. febrú-
ar, voru 45 ár liðin frá því Borg-
nesingurinn Þorsteinn Eyþórs-
son byrjaði í sorpbransanum, en
hann var aðeins 22 ára gamall
þegar hann bauð í sorphreinsun
í Borgarnesi og fékk verkefnið.
Undanfarin ár hefur hann starf-
að hjá Sorpurðun Vesturlands í
Fíflholtum. Steini, eins og hann
er alltaf kallaður, er Vestlending-
ur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Eitt stærsta verkefni í vegagerð sem
nú er í gangi um vestanvert landið er
lagning nýs Þverárhlíðarvegar (522)
Inga Sæland og aðrir þingmenn
Flokks fólksins fluttu í síðustu viku
tillögu til þingsályktunar á Alþingi
um skattleysi launatekna undir
350.000 kr. og 350.000 kr. lágmark
til framfærslu lífeyrisþega. Tillagan
er eitt forgangsmála Flokks fólksins
og hefur verið eitt helsta baráttu
mál hans á Alþingi undanfarin ár.
Í tillögunni felst að fjármála og
efnahagsráðherra verði falið að
leggja fram lagafrumvarp fyrir árs
lok 2022 sem kveði á um að tekinn
verði upp fallandi persónuafsláttur
þannig að skattleysismörk verði við
350.000 krónur og að persónuaf
sláttur falli niður með sveigðu ferli
við ákveðin efri mörk. Einnig að
breytingar verði gerðar á skiptingu
útsvars og tekjuskatts af skattstofni
til að jafna tekjuáhrif vegna hækk
unar skattleysismarka á milli ríkis
og sveitarfélaga. Loks að fullur ör
orkulífeyrir, endurhæfingarlífeyrir
og ellilífeyrir tryggi lífeyrisþegum
350.000 kr. í ráðstöfunartekjur, á
mánuði, skatt og skerðingarlaust.
mm
Dalabyggð auglýsir félagsheimilið
Árblik í Dölum til leigu, en þetta
kom fram á vefsíðu sveitarfélags
ins. Þar segir að rekstur í Árbliki
sé spennandi verkefni fyrir hug
myndaríkan og nýjungagjarnan
einstakling og frábært tækifæri fyr
ir núverandi íbúa eða þann sem vill
breyta til og búa í vinalegu sveitar
félagi sem er margrómað fyrir
kyrrð og náttúrufegurð.
Tegund rekstrar/þjónustu sem
verður í Árbliki er í höndum
rekstraraðila og býður húsið upp á
möguleika fyrir sýningarrými, við
burðaaðstöðu, vinnustofur og/eða
veitingasölu svo eitthvað sé nefnt.
Árblik er félagsheimili staðsett í
Miðdölum, um 130 km frá Reykja
vík og 14 km frá Búðardal. Húsið er
vel stórt, á tveimur hæðum og fyrir
utan er að finna tjaldsvæði.
Gert er ráð fyrir að samið
verði um leigu til þriggja ára með
möguleika á framlengingu um tvö
ár til viðbótar. vaks
Breyttur og betri vegur lagður um Kleifarnar
í Borgarfirði. Endurbyggður er veg
urinn frá Hvítársíðu og að Högna
stöðum í Þverárhlíð en leiðin er
hálfur níundi kílómetri að lengd og
6,3 metrar á breidd. Í verkinu felst
því töluvert mikil breikkun vegarins
sem þó er að mestu lagður í gamla
vegstæðinu. Mestar breytingar eru
þar sem vegstæðið fer yfir Kleifarn
ar, þar sem vegurinn liggur hæst í
landinu á móts við afleggjarann að
Sleggjulæk og Ásbjarnarstöðum.
Gamli vegurinn lá þar í sveigum og
skorningum meðfram klettum sem
nú hafa verið teknir niður að stór
um hluta, grjótið úr þeim unnið og
það notað í fyllingar og burðarlag
nýja vegarins.
Það er Borgarverk sem er verktaki
í þessari vegagerð og er verkstjóri
Valdimar Guðmundsson. Sjálf
ur er hann fæddur og uppalinn á
Gunnlaugsstöðum í Stafholtstung
um. Aðspurður kveðst hann stoltur
af að koma að svona skemmtilegu
verki í heimabyggð, en þarna seg
ist hann í gamansömum tón fyrst og
fremst vera að leggja splunkunýjan
afleggjara heim til Þórðar bróður,
sem býr myndarbúi á Gunnlaugs
stöðum.
Ljóst er að nýr Þverárhlíðarveg
ur verður einn af breiðari og betri
vegum í landshlutanum enda er við
allar vegaframkvæmdir í dag farið
eftir evrópskum stöðlum um veg
breidd og umferðaröryggi. Hafist
var handa við þessar framkvæmd
ir síðasta sumar en uppbyggingu
vegarins á að verða lokið í júlí og
frágangi í kringum réttir í haust.
mm
Fluttu tillögu um skattleysis-
mörk og lágmarks lífeyri
Félagsheimilið Árblik í Dölum. Ljósm. dalir.is
Félagsheimilið Árblik boðið til leigu