Skessuhorn - 02.02.2022, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 20228
Átta óku of hratt
AKRANES: Myndavélabíll á
vegum lögreglunnar var fyrir há
degi á mánudaginn að mæla við
Kirkjubraut þar sem hámarks
hraði er 30 km. Af 153 ökutækj
um voru átta kærð en mynd er
tekin ef ökumenn fara hraðar en
á 39 km hraða. Sektirnar fara þó
ekki í partýsjóð lögreglunnar á
Akranesi, heldur beint í ríkissjóð,
þótt margir haldi annað. Sam
kvæmt lögreglu þá fá um fjögur
þúsund manns í hverjum mánuði
sekt úr hraðamyndavélum að
jafnaði á öllu landinu. -vaks
Starfshópur um
forvarnir
LANDIÐ: Jón Gunnarsson inn
anríkisráðherra hefur falið Sigríði
Björk Guðjónsdóttur ríkislög
reglustjóra að leiða starfshóp um
forvarnir og vitundarvakningu
gegn kynferðisbrotum og kyn
bundnu ofbeldi og áreiti. Aðrir í
starfshópnum eru Guðfinnur Sig
urvinsson verkefnastjóri, Hild
ur Sunna Pálmadóttir frá dóms
málaráðuneyti og Eygló Harðar
dóttir hjá embætti ríkislögreglu
stjóra. Skal hópurinn styðja við
uppbyggingu á samstarfi lögreglu
og samstarfsaðila gegn ofbeldi og
afleiðingum þess, þar á meðal í
formlegri þjónustu við þolendur
kynferðisbrota. Starfshópurinn
mun einnig standa fyrir almennri
vitundarvakningu um kynbund
ið ofbeldi í samfélaginu. Í vinnu
hópsins verður hugað sérstaklega
að viðkvæmum hópum fólks sem
reynslan hefur sýnt að eru í meiri
hættu á að verða fyrir ofbeldi.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
22.-28. janúar
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu
Akranes: 6 bátar.
Heildarlöndun: 4.211.348 kg.
Mestur afli: Venus NS:
2.644.353 kg í einni löndun.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu
Grundarfjörður: 9 bátar.
Heildarlöndun: 611.519 kg.
Mestur afli: Viðey RE: 133.037
kg í einni löndun.
Ólafsvík: 17 bátar.
Heildarlöndun: 479.320 kg.
Mestur afli: Valdimar GK:
68.077 kg í einum róðri.
Rif: 14 bátar.
Heildarlöndun: 567.331 kg.
Mestur afli: Magnús SH:
62.926 kg í þremur róðrum.
Stykkishólmur: 5 bátar.
Heildarlöndun: 140.959 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
140.959 kg í þremur löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Venus NS – AKR: 2.644.353
kg. 23. janúar..
2. Guðrún Þorkelsdóttir
SU – AKR: 1.553.982 kg. 24.
janúar.
3. Viðey RE – GRU: 133.037
kg. 26. janúar.
4. Akurey AK – GRU: 131.512
kg. 25. janúar.
5. Harðbakur EA – GRU:
72.858 kg. 27. janúar.
-arg
Síðastliðinn miðvikudag, 26. janú
ar, voru rétt 80 ár frá fyrsta bæjar
stjórnarfundinum á Akranesi en
bærinn öðlaðist kaupstaðarréttindi
árið 1942. Af því tilefni hélt bæjar
stjórn Akraness sérstakan hátíðar
fund síðdegis þar síðasta mánudag,
en vegna sóttvarna fór hann fram í
streymi. Á þessum áttatíu árum hef
ur 21 bæjarstjórn setið við völd, en
ein þeirra sat aðeins um nokkurra
mánaða skeið þar sem ekki náðist
niðurstaða um myndun meirihluta
og var því kosið að nýju.
Valgarður Lyngdal Jónsson, for
seti bæjarstjórnar Akraness, minnt
ist þess á fundinum 24. janúar að
fyrsti bæjarstjórnarfundurinn á
Akranesi hafi farið fram 26. janú
ar 1942. Af þessu tilefni las hann
úr fyrstu fundargerð bæjarstjórn
ar. Sagði hann jafnframt að sér
stakur hátíðarfundur bæjarstjórn
ar verði haldinn síðar á þessu ári
þegar aðstæður í samfélaginu bjóða
upp á slíkt. Jafnframt er í undirbún
ingi hjá menningar og safnanefnd
ýmsir viðburðir í bæjarfélaginu á
afmælisárinu og verða þeir kynnt
ir síðar.
mm
Almennar fjöldatakmarkanir eru
nú 50 manns, nándarregla einn
metri, krár og skemmtistaðir mega
hafa opið að nýju og opnunartími
þeirra og annarra veitingastaða
verið lengdur um tvær klukku
stundir. Heimilt er að halda sitj
andi viðburði fyrir 500 manns að
uppfylltum ákveðnum skilyrð
um. Takmarkanir í skólum eru að
mestu óbreyttar. Þetta er megin
inntak breytinga í reglugerð um
samkomutakmarkanir sem tók
gildi á miðnætti síðastliðinn föstu
dag samkvæmt ákvörðun Willum
Þórs Þórssonar heilbrigðiráðherra
og kynnt var á blaðamannafundi á
föstudaginn.
Breytingar frá og með
29. janúar:
• Almennar fjöldatakmarkan
ir eru nú 50 manns í stað 10
áður.
• Nándarregla fór úr 2 metrum
í einn metra.
• Óbreytt grímuskylda, sem
tekur þó almennt mið af
nándarreglu.
• Sund, baðstöðum, líkams
ræktarstöðvum og skíðasvæð
um er nú heimilt að hafa opið
með 75% afköstum.
• Íþróttakeppnir eru áfram
heimilar með 50 þátttakend
um og áhorfendur leyfðir á ný.
• Hámarksfjöldi í verslunum
getur mest orðið 500 manns.
• Skemmtistöðum, krám, spila
stöðum og spilakössum er
heimilað að opna á ný.
• Veitingastöðum, þ.m.t. krám
og skemmtistöðum, er heim
ilt að hleypa nýjum viðskipta
vinum til kl. 23.00 en gestum
verði gert að yfirgefa staðina á
miðnætti.
• Á sitjandi viðburðum er heim
ilt að taka á móti allt að 500
gestum í hverju hólfi, viðhalda
skal eins metra nándar
reglu milli óskyldra aðila auk
grímuskyldu. Ekki er þörf á
hraðprófum.
• Í skólum eru óbreyttar tak
markanir, þó þannig að þær
verða aðlagaðar framan
greindum tilslökunum eftir
því sem við á.
Reglugerðin gildi í tæpar fjórar
vikur til og með 24. febrúar.
Drög að afléttingaráætl-
un og forsendur hennar
Í minnisblaði sínu lagði sóttvarna
læknir fram áætlun að afléttingu
opinberra sóttvarnaaðgerða sem
hann telur rétt að gera í skrefum.
Sóttvarnalæknir áréttar að með
an á afléttingum stendur megi bú
ast við að samfélagssmitum muni
fjölga tímabundið sem geti bæði
haft þau áhrif að þeim sem veik
ist alvarlega fjölgi en jafnframt geti
starfsemi margra fyrirtækja rask
ast vegna veikinda starfsmanna.
Neyðarástand geti því skapast á
mörgum vinnustöðum sem krefjist
sérstakra úrræða og fyrirtæki þurfi
að vera undir það búin að starfa í
einhvern tíma með skertu vinnu
afli. Mikilvægt sé að hafa í huga að
faraldrinum ljúki ekki hér á landi
fyrr en gott samfélagslegt ónæmi
hafi skapast, sem gæti náðst eftir
tæpa tvo mánuði. Sóttvarnalæknir
telur, að þessu framanröktu, skyn
samlegt að miða við að um miðjan
mars 2022 verði öllum takmörkun
um aflétt svo fremi sem núverandi
forsendur haldi, þ.e. ekki komi upp
ný afbrigði veirunnar og aukning
verði ekki á alvarlegum veikind
um sem valdi of miklu álagi á heil
brigðiskerfið eða of mikil veikinda
forföll starfsmanna verði í ýms
um fyrirtækjum sem skapi neyðar
ástand.
Heilbrigðisráðherra og ríkis
stjórnin munu hafa afléttingaráætl
unina til hliðsjónar vegna næstu
afléttinga og verður staðan metin
reglulega, einkum álag á heilbrigð
iskerfið, og verður brugðist við í
samræmi við stöðuna. Það getur
þýtt að ráðist verði fyrr í afléttingar
en áætlunin gerir ráð fyrir eða
þeim frestað ef forsendur breyt
ast, svo sem vegna nýrra afbrigða
veirunnar. mm
Akraneskaupstaður er 80 ára
Þeir tóku vígreifir afmælis-
sönginn; f.v. Jói, Simmi, Siggi
Palli og Sævar Freyr.
Veislutertur fóru á stofnanir bæjarins á afmælisdeginum. Hér mundar Sævar Freyr bæjarstjóri sig til að skera í kökuna á
bæjarskrifstofunum.
Létt verður á takmörkunum
í áföngum á 6-8 vikum
Notið lífsins. Ljósm. úr safni Skessuhorns.