Skessuhorn - 02.02.2022, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2022 11
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
KAFFIVÉLAR SEM HENTA ÞÍNUM REKSTRI
GOTT KAFFI KÆTIR
Bravilor TH
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstanki.
Bravilor THa
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstengi.
Bravilor Sprso
Handhæg og öflug baunavél
sem hentar smærri fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir sf. leita eftir afleysingafólki til starfa í sumar
við hafnargæslu á vinnusvæði okkar við Grundartanga.
•
•
•
•
Helstu viðfangsefni starfsins eru
Hliðvarsla, aðgangsstýring og öryggisgæsla á afgirtu svæði hafnarinnar.
Umsjón með farmverndarskjölum og skráningu á flutningi.
Eftirfylgni með ástandi verndarbúnaðar er heyrir undir hafnargæslu á svæðinu.
Færslu dagbókar og önnur tilfallandi verkefni.
Viltu vera
hluti af góðri
liðsheild?
Unnið er samkvæmt fyrirliggjandi vaktaplani á 8 tíma vöktum í senn allan sólarhringinn.
Upplýsingar um starfið veitir Bergsteinn Ísleifsson umhverfis og öryggisstjóri, bergsteinn@faxafloahafnir.is
Áhugasamir, bæði konur og karlar, eru hvött til að senda upplýsingar um sig til Faxaflóahafna sf.
á póstfangið sumarstarf@faxafloahafnir.is
Frekari upplýsingar um starfsemina er hægt að nálgast á heimasíðu hafnarinnar
Sumarafleysingar á Grundartanga
Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 70 manns og er umráðasvæði hennar
í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið leggur áherslu á að vera leiðandi
í umhverfis- og öryggismálum auk þess að vera í vegferð að þróa snjallar og grænar hafnir.
Línubáturinn Valdimar GK frá
Vogum kom til lands í Ólafsvík á
sunnudaginn í leiðindaveðri. Að
sögn Vigfúsar Markússonar skip
stjóra var þetta í annað sinn á viku
sem Valdimar landar í Ólafsvík, en á
miðvikudaginn var landað 80 tonn
um. „Við erum með fullfermi, eða
103 tonn. Vorum á veiðum vestar
lega á Breiðarfirði og það í skíta
veðri, en þrátt fyrir slæma veðráttu
allan túrinn náðist þessi afli og er
greinilega mikill fiskur á þessum
slóðum,“ sagði Vigfús þegar hann
kom að landi.
Löndun hófst svo úr Valdimar
eftir hádegi og sá Fiskmarkaður
Snæfellsness um löndun og var ekið
með fiskinn suður til vinnslu.
af
Sigurður Sveinn Guðmundsson hafnarvörður að taka á móti landfestum Valdimars.
Fylltu bátinn í
leiðindaveðri á Breiðafirði
Valdimar GK að koma í höfn á sunnudagsmorgun í leiðindaveðri og kafaldsbyl.