Skessuhorn - 02.02.2022, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 202212
Nú líður að sveitarstjórnarkosning
um og ljóst að nokkrar breytingar
verða á framboðslistum í lands
hlutanum. Skessuhorn heyrði í
því fólki sem leiddi lista við síð
ustu kosningar og tók stöðuna á
þeim og þeirra framboðum. Ekki
var haft samband við fólk í Dala
byggð, Eyja og Miklaholtshreppi,
Helgafellssveit eða Skorradals
hreppi því þar var persónukjör í
síðustu kosningum.
AKRANES
Framsókn og frjálsir
Elsa Lára Arnardóttir leiddi list
ann fyrir fjórum árum og hefur
hún gefið það út að hún muni ekki
gefa kosta á sér fyrir kosningarn
ar í vor. Framsókn og frjálsir hafa
auglýst eftir áhugasömu fólki til að
taka sæti á lista flokksins og verð
ur ákvörðun um framboð og fyrir
komulag á vali á lista tekin á fundi
7. febrúar.
Sjálfstæðisflokkur
Rakel Óskarsdóttir leiddi listann í
kosningunum fyrir fjórum árum, en
flokkurinn hlaut fjóra bæjarfulltrúa.
Rakel segir flokkinn ætla að bjóða
fram aftur í kosningunum í vor og
verður listinn settur upp af upp
stillingarnefnd sem hefur nú tekið
til starfa. Rakel er sjálf ekki tilbúin
að gefa það upp hvort hún gefi kost
á sér áfram.
Samfylkingin
Valgarður Lyngdal Jónsson leiddi
lista Samfylkingarinnar í kosn
ingunum fyrir fjórum árum. Stjórn
félagsins er nú með það til um
ræðu hvernig skuli stilla upp á lista
fyrir kosningarnar í vor og verð
ur ákvörðun um það tekin á allra
næstu dögum. Sjálfur segist Val
garður ekki hafa tekið ákvörðun
um það hvort hann muni gefa kosta
á sér áfram.
BORGARBYGGÐ
Framsóknarflokkur
Guðveig Eyglóardóttir var odd
viti flokksins í kosningunum fyr
ir fjórum árum og hyggst hún gefa
kost á sér í fyrsta sætið aftur. Guð
veig sagði í samtali við Skessuhorn
að hún hafi ætlað að hætta í sveit
arstjórnarmálum eftir þetta kjör
tímabil en ákveðið að halda áfram
eftir að hafa fengið áskoranir úr
ýmsum áttum. „Þetta er skemmti
legt, sem er fyrst og síðast ástæð
an fyrir því að ég ætla að halda
áfram. Það eru líka spennandi tím
ar framundan í Borgarbyggð og ég
tel sveitarfélagið eiga mikið inni og
tækifæri eru til vaxtar,“ segir Guð
veig og bætir við að hún eigi sterkar
taugar til svæðisins. Hún segir mik
inn áhuga vera í samfélaginu á að
taka þátt og vera á lista. Búið er að
skipa nefnd sem mun sjá um upp
stillingu á lista.
Heimastjórnar-
flokkurinn
Heimastjórnarflokkurinn er nýr
flokkur sem ætlar að bjóða fram í
Borgarbyggð í kosningunum 14.
maí. Að sögn Eiríks Þórs Theó
dórssonar, eins stofnanda flokksins,
er mikill vilji í samfélaginu til að
vera með. Um er að ræða þverpóli
tískan flokk sem hefur engin tengsl
við stærri stjórnmálaöfl. Enn er
óákveðið hvernig raðað verður á
lista en það verður ákveðið á næsta
stjórnarfundi.
Samfylking
Magnús Smári Snorrason var odd
viti flokksins í kosningunum fyrir
fjórum árum. „Ég er ekki búinn að
gefa út mína ákvörðun en ég reikna
ekki með að gefa kost á mér aftur.
Ég ætlaði alltaf að vera tvö kjör
tímabil og finnst það eiginlega lág
mark. Það er snúið að láta þetta
ganga upp samhliða vinnu,“ segir
Magnús og bætir við að nóg sé af
frambærilegu fólki sem hefur áhuga
á að vera á lista Samfylkingarinn
ar. Uppstillingarnefnd mun sjá um
að stilla upp lista og mun nefndin
hefja störf á allra næstu dögum.
Sjálfstæðisflokkur
Lilja Björg Ágústsdóttir leiddi
Dlista Sjálfstæðisflokks í kosn
ingunum fyrir fjórum árum. Flokk
urinn mun aftur bjóða fram í kosn
ingunum í vor og vinna uppstill
ingarnefndar er nú hafin. Lilja vill
bjóða fram krafta sína áfram og
hefur áhuga á að leiða listann.
Vinstri hreyfingin grænt
framboð
Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir leiddi
listann í kosningunum fyrir fjórum
árum og hefur hún ákveðið að láta
staðar numið í bili og gefur ekki
kost á sér fyrir kosningarnar í vor.
„Þetta er starf sem tekur tíma og
hentar bara ekki með minni vinnu,“
segir Halldóra. Uppstillingarnefnd
hefur þegar hafið störf við að afla
gagna til að stilla upp nýjum lista.
GRUNDARFJÖRÐUR
L-listi Samstöðu
Hinrik Konráðsson var oddviti
Llista í síðustu kosningum en hann
segist ekki hafa tekið ákvörðun um
hvort hann ætli að gefa kost á sér í
vor. „Það hefur enginn gefið neitt
út ennþá og ég á eftir að gera upp
minn hug. Það hefur verið erfitt að
taka ákvarðanir því það hefur geng
ið illa að funda vegna Covid,“ seg
ir Hinrik. Hann segir að nú þurfi
að kanna áhuga fólks á að taka þátt.
„Við höfum fyrir síðustu kosningar
sett upp kassa í búðinni þar sem við
óskum eftir tilnefningum og svo
höfum við haft samband við það
fólk,“ segir hann. Stefnt er að því
að raða á listann með prófkjöri.
Sjálfstæðisflokkur
Jósef Ó. Kjartansson leiddi lista
Sjálfstæðisflokksins í kosningunum
fyrir fjórum árum og segist hann í
samtali við Skessuhorn ekki vera
búinn að taka ákvörðun um hvort
hann gefi kost á sér áfram en hann
er enn að meta það hvort hann
hafi tíma fyrir þetta starf áfram.
Samkomutakmarkanir hafa sett
strik í reikninginn en erfitt hef
ur verið að funda. „Það náðist með
herkjum að funda til að setja saman
nefnd,“ segir Jósef en uppstill
ingarnefnd mun raða á lista.
HVALFJARÐARSVEIT
Áfram Hvalfjarðarsveit
Björgvin Helgason oddviti Álista
Áfram Hvalfjarðarsveit segist ekki
vera búinn að ákveða hvort hann
muni gefa kost á sér í kosningunum
í vor. „Það eru samt meiri líkur en
minni á að ég fari ekki áfram, nú er
komið að nýju fólki,“ segir hann og
bætir við að flokksmeðlimir munu
funda á næstu dögum og þá verða
teknar ákvarðanir um framhaldið.
Hvalfjarðarlistinn
Brynja Þorbjörnsdóttir leiddi lista
Hvalfjarðarlistans í kosningunum
fyrir fjórum árum og er hún ekki
tilbúin að gefa upp neinar upplýs
ingar að svo stöddu um listann eða
hvort hún ætli að gefa kost á sér
áfram.
Íbúalistinn
Ragnar Ívarsdóttir leiddi Íbúalist
ann í kosningunum fyrir fjórum
árum en hún segir það ekki tíma
bært að gefa upp hvort hún ætli að
gefa kost á sér áfram eða ekki. „Að
stæður hafa verið þannig að það
hefur ekki einu sinni verið hægt
að funda og ég vil tala við mitt fólk
áður en ég tek einhverja ákvörðun,“
segir Ragna og bætir við að Íbúa
listinn hyggst bjóða fram í kosn
ingunum hvort sem hún verður
með á lista eða ekki. „Það mun von
andi skýrast á næstu dögum hverj
ir verða á lista en það eru fullt af
flottu fólki sem kemur til greina.“
SNÆFELLSBÆR
J-listi Bæjarmálasam-
taka Snæfellsbæjar
Svandís Jóna Sigurðardóttir leiddi
listann í kosningunum fyrir fjór
um árum. Hún segist ekki vera
búin að ákveða hvort hún ætli að
gefa kost á sér í kosningunum í
vor. „Við höfum ekki náð að funda
neitt um þetta og því er ég ekki
búin að ákveða hvað ég ætla að
gera. Hugsanlega verður samein
ing sveitarfélaga hér á svæðinu og
það er í raun ekki fyrr en niður
staða kosningar liggur fyrir sem
eitthvað fer að skýrast hjá okkur,“
segir Svandís.
Sjálfstæðisflokkur
Björn Haraldur Hilmarsson odd
viti Sjálfstæðismanna í Snæfells
bæ segist ekki geta gefið það upp
að svo stöddu hvort hann muni
gefa kost á sér í kosningunum í
vor. Uppstillingarnefnd mun ræða
við áhugasama og raða á lista fyr
ir kosningarnar en Björn seg
ir þá vinnu alla jafnan vera búna
um tveimur mánuðum fyrir kosn
ingar. „Það er aldrei neitt vanda
mál hjá okkur að finna fólk á lista
en við viljum hafa nýtt fólk í bland
við fólk með reynslu,“ segir Björn
og bætir við að ekki verði hægt að
raða á lista fyrr en búið verður að
kjósa um sameiningu sveitar félaga
á svæðinu. Sjálfur ætlar hann að
gefa út sína ákvörðun á næstu
tveimur til þremur vikum.
STYKKISHÓLMUR
H-listinn – listi fram-
farasinnaðra Hólmara
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
leiddi listann í kosningunum fyrir
fjórum árum. Hún segist í samtali
við Skessuhorn nokkuð ákveðin
í að gefa áfram kost á sér á lista
fyrir komandi kosningar. Undir
búningur innan flokksins er nú
á byrjunarstigi. „Við erum byrj
uð að ræða málin og það er ágæt
is hópur sem vill vera áfram, sem
er gott. Við vorum með uppstill
ingarnefnd síðast og ég hugsa
að það verði þannig aftur,“ seg
ir Hrafnhildur. Hún segir ágæt
is stemningu vera komna í hóp
inn. „Ég held að af þeim 13 sem
áttu sæti síðast sé rúmlega helm
ingur sem vill vera áfram og aðrir
hætta af persónulegum ástæðum.
Það verður ekki raðað í nein sæti
fyrr en við vitum endanlega hverj
ir verða með,“ segir Hrafnhildur.
L-Listinn Stykkishólmi
Lárus Ástmar Hannesson oddviti
Llista hefur ekki tekið ákvörðun
um hvort hann ætli að gefa kost
á sér fyrir kosningarnar í vor en
hann hefur nú verið í bæjarstjórn
í 16 ár. Flokkurinn hefur ekki enn
náð að funda og því liggur ekki
fyrir hvernig fyrirkomulag verður
við myndun lista.
O-listi – Okkar
Stykkis hólmur
Haukur Garðarsson leiddi Olista
í síðustu kosningum. Aðspurður
segist hann ekki vera tilbúinn að
segja til um það hvort hann muni
gefa kost á sér á lista fyrir kosn
ingarnar í vor. „Við erum einfald
lega ekki komin svo langt í ferlinu.
Það hefur verið erfitt að funda í
þessari tíð og við erum því seinna
á ferðinni en venjulega. En ég get
sagt að það eru umræður í gangi,“
segir hann og bætir því við að sam
einingarviðræður Stykkishólms
bæjar og Helgafellssveitar skekki
þó myndina aðeins. „Þar gæti
vissulega komið inn nýtt fólk.“
arg
Hverjir ætla að gefa kost á sér fyrir kosningarnar í vor?
Kjörstjórn að störfum. Myndin er úr safni Skessuhorns og tekin í Borgarnesi.