Skessuhorn


Skessuhorn - 02.02.2022, Síða 16

Skessuhorn - 02.02.2022, Síða 16
Ef til sameiningar kemur þarf að gera nýtt aðalskipu- lag og samræma áherslur sem þar birtast. Ekki er von á miklum breytingum í málaflokknum þar sem bæði sveitarfélög hafa reynslu af skipulagi í dreifbýli og áherslur eru svipaðar. Tækifæri eru til að styrkja stjórnsýslu um skipulags- og umhverfismál og auka fagmennsku. Tækifæri eru í stefnumörkun í umhverfismálum og ferðaþjónustu. Sameiginlegar áherslur sveitarfélag- anna varðandi atvinnulíf og samfélagið í heild sinni eru markaðar í Svæðisgarðinum Snæfellsnesi og Svæðisskipulagi Snæfellsness. Unnið er að því að fá svokallaða „biosphere“ vottun frá UNESCO sem skapar mikil tækifæri. Skipulags- og umhverfismál Fjárhagsleg viðmið Skuldahlutfall sameinaðs sveitarfélags árið 2020 var 70,9% og uppsafnaður rekstrarafgangur til þriggja ára 617 m. kr. Sameinað sveitarfélag stenst því bæði jafnvægis- og skuldareglu og hefur gert það síðustu þrjú árin. Fjárfestingargeta í sameinuðu sveitarfélagi yrði góð, sérstak- lega með tilkomu sameiningarframlaga. Við sameiningu sveitarfélaganna myndu eignir reiknaðar á íbúa í Eyja- og Miklaholtshreppi aukast um 1.350 þús. kr. en skuldir og skuldbindingar á íbúa aukast um 900 þús. kr. Sameiningarframlög Verði af sameiningu sveitarfélaganna mun Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veita um 593 m. kr. framlag til nýs sveitarfélags til að bæta þjónustu og mæta kostnaði við breytingarnar. Fjármál Skólasamfélagið á sunnanverðu Snæfellsnesi er sammála um að útmá hreppamörk og byggja sameiginlega upp öflugan dreifbýlisskóla á góðum grunni Laugargerðisskóla og Lýsudeildar GSNB. Nýr skóli verði með skýra stefnu, nýti fjölbreytta kennsluhætti sem taki mið af staðháttum og sinni af metnaði þörfum nemenda á leik- og grunnskólastigi í skólahverfinu. Hafin er vinna við að móta skólastefnu til framtíðar og velja nýjum skóla stað til skemmri og lengri tíma. Áætlað er að sú þróunarvinna haldi áfram skólaárið 2022-2023, en stefnt er að sameiningu skólanna frá og með næsta skólaári haustið 2022. Mikilvægt er að nálgast breytingar af auðmýkt og vinna hana í nánu samráði við bæði notendur og starfsfólk skólanna enda mikill mannauður í því góða starfsfólki sem starfar í skólunum. Ekki stendur til að fækka starfsfólki og verði sameiningin samþykkt yrði öllum starfsmönnum boðið að starfa hjá sameinuðu sveitarfélagi. Skólastarf Sameining sveitarfélaganna skapar tækifæri til að byggja upp góðan dreifbýlisskóla með skýra stefnu og framtíðarsýn. Tækifæri eru til að styrkja stjórnsýslu um skipulags- og umhverfismál og auka fagmennsku Sameinað sveitarfélag myndi standast meginreglu um ábyrga fjármálastjórnun og hafa gott svigrúm til fjárfestinga. KR KR

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.