Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 17
Lagt er upp með sambærilegt nefndarkerfi og núverandi stjórnskipulag Snæfellsbæjar með sjö fulltrúum í sveitarstjórn.
Samlegð liggur fyrst og fremst í skrifstofuhaldi og hagræðingu í aðkeyptri sérfræðiþjónustu.
Tillaga að skipuriti
Stjórnsýsla
Sameining sveitarfélaganna skapar tækifæri til að byggja
upp góðan dreifbýlisskóla með skýra stefnu og framtíðarsýn.
Tækifæri og áskoranir eru við það að ákvarðanataka færist
fjær íbúum en ákvarðanataka getur orðið faglegri en í
nándinni. Að mati nefndarinnar felast tækifæri í að auka
beina þátttöku íbúa á stefnumótun, auka samstöðu íbúa í
dreifbýli um sína hagsmuni og skapa sterkari stöðu fyrir
mögulegar frekari sameiningar í framtíðinni.
Breiðablik er hliðið inn á Snæfellsnesið, en samstarfsnefnd
leggur til að þar verði virk starfsemi stjórnsýslu sameinaðs
sveitarfélags.
Fimm fulltrúar eru í hreppsnefnd Eyja- og Miklaholtshrepps og
jafn margir til vara og fastanefndir eru sex. Í bæjarstjórn
Snæfellsbæjar eru sjö fulltrúar og jafn margir til vara.
Fastanefndir eru 11 auk ungmennaráðs.
Ein helsta framtíðaráskorun sveitarfélaganna, hvort sem af
sameiningu verður eða ekki, verður að mæta auknum kröfum um
rafræna stjórnsýslu og skjalavörslu.
Samstarfsnefnd leggur áhersla á skilvirka og faglega stjórnsýslu í
sameinuðu sveitarfélagi.
Mynd: Tillaga að myndrænu stjórnskipuriti
Bæjarstjórn
Bæjarstjóri
Bæjarráð
Fræðslumál
Félagsþjónusta og tómstundir
Íþrótta- og æskulýðsmál
UngmennaráðUngmennaráð
Umhverfis- og skipulagsmál
Hafnamál
Atvinnumál
Landbúnaðar - og fjallskilamál
Yfirkjörstjórn
Öldungaráð
Skrifstofa
Fjármál
Launa- og mannauðsmál
Markaðs- og upplýsingamál
Lögfræði og persónuvernd
Stafræn stjórnsýsla
Atvinnumál
Samstarfsverkefni
Menningarmál og félagsheimili
Skólamál
Íþróttamál
Félagsþjónusta
Málefni fatlaðs fólks
Málefni útlendinga
Málefni eldra fólks
Dvalarheimili
Æskulýðsmál
Frístundir og forvarnir
Stjórnsýsla- og fjármál Fjölskyldumál
Skipulagsmál
Umhverfismál
Byggingamál
Framkvæmdir og viðhald
Eignaumsýsla
Veitur
Umferðar- og samgöngumál
Áhaldahús
Tæknimál
Slökkvilið
Hafnamál