Skessuhorn - 02.02.2022, Side 20
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 202220
Arnar Már Kárason er starfsmað
ur á Garðaseli á Akranesi og er að
vinna á elstu deildinni, Vík, þar
sem börn eru á aldrinum fjögurra
til sex ára. Hann byrjaði að vinna í
leikskólanum Akraseli þegar hann
var í áttunda bekk vegna frjókorna
ofnæmis og fór því ekki í sum
arvinnuna í vinnuskólanum held
ur í leikskólann. Arnar Már hefur
síðustu tvö sumur verið að vinna á
Garðaseli og fékk fastráðningu síð
asta haust. Krökkunum á Garðaseli
finnst mjög gaman að Arnari Má
og er hann vinsæll í þeirra röðum.
En hvernig er að vera eini karl
maðurinn sem vinnur í leikskólan
um? „Það er allt í lagi, ekkert sem
ég græt yfir og finnst það bara fínt.
Krakkarnir eru þó ekkert að pæla
í því að ég sé eini karlmaðurinn á
svæðinu. Þá er fínt að vinna með
öllum þessum konum, þær eru fín
ar og gott að spjalla við þær.“
Arnar Már er mjög sáttur við
að vinna í leikskóla. Hann lauk
stúdents prófi á náttúrufræðibraut
en segir að það nám hafi ekki hjálp
að honum mikið í þessari vinnu.
Varðandi framhaldsnám þá seg
ir Arnar Már að hann sé búinn
að ákveða það að fara í Háskól
ann næsta haust í eitthvað tengt
náttúrufræði. Varstu með ein
hverja reynslu áður en þú byrjað
ir að vinna í leikskóla? „Nei, enga
reynslu en ég ákvað bara að koma
og prófa og fannst þetta mjög gam
an. Það er mjög margt skemmtilegt
við það að vinna í leikskóla eins og
að fara í göngutúr með krökkunum
og leika við þau úti.“
Annars segir Arnar Már að
krakkarnir hagi sér yfirleitt vel í
leikskólanum en það geti samt ver
ið misjafnt. Þá segir hann að vinnan
hafi gefið sér hellings reynslu fyrir
framhaldið þegar hann eignast fjöl
skyldu sjálfur. Arnar Már býr enn
þá í foreldrahúsum og segist vera
mjög duglegur að hjálpa til enda
kominn með þó nokkra reynslu.
Arnar Már á einn eldri bróður og
fjögurra ára gamla systur og seg
ir að það hafi bara verið gaman að
eignast systur á gamals aldri, en
hann sé ekki efstur á vinsældalist
anum hjá henni, mamma og pabbi
séu þar vel fyrir ofan. En hvern
ig er að vinna með öllum þess
um konum á Garðaseli? „Flestar
konurnar sem ég vinn með gætu í
rauninni verið mömmur mínar og
jafnvel ömmur og sumar voru að
passa mig þegar ég var lítill í leik
skólanum. Þær segja að þær muni
eftir mér af því ég var svo afskap
lega stilltur,“ segir þessi geðþekki
drengur að lokum.
vaks
Dagur leikskólans er á sunnu
daginn og er nú haldinn í fjórt
ánda skipti hér á landi. Skessuhorn
kíkti í síðustu viku við í einn af fjór
um leikskólum Akraness, Garðaseli
við Lerkigrund, og hitti þar á leik
skólastjórann Ingunni Ríkharðs
dóttur í stutt spjall. Garðasel fagn
aði í september á síðasta ári 30 ára
afmæli leikskólans og er Garðasel
þriggja deilda leikskóli með alls 72
nemendur og þá eru starfsmenn 27
talsins. En hvenær og hvernig ætl
ar Garðasel að halda upp á daginn?
„Við ætlum að halda daginn hátíð
legan föstudaginn 4. febrúar með
sameiginlegri söngstund í hús
inu. Síðan hafa allar deildir ver
ið að útbúa myndbönd um starfið
í leikskólanum í tilefni af þessum
degi til að gefa fólki innsýn í það
hvað börnin eru að fást við hérna
alla daga. Það á örugglega eftir að
koma á óvart hvað það er fjölbreytt
og innihaldsríkt.“
Ingunn verður 67 ára í apr
íl á þessu ári en er ekkert á því
að hætta alveg strax. Hún stefn
ir á að fara með Garðasel á nýj
an stað í Skógarhverfi í ágúst í lok
sumars en þó verður bara hluti af
rými hússins tilbúið þá. Garðasel er
rúmlega fimm hundruð fermetrar
að stærð en nýja húsnæðið verður
tæplega sextán hundruð fermetrar.
En hvernig líkar Ingunni við starf
ið? „Mér leiðist aldrei í vinnunni,
tíminn er mjög fljótur að líða og
ég er ennþá með fullt af verkefn
um sem mér finnst skemmtilegt
að vinna. Ég er ennþá þannig að
ég er að hugsa til framtíðar og út
fyrir rammann. Við erum með um
tæplega 80% af fagfólki í skólanum
og það er lítil starfsmannavelta hjá
okkur. Það getur verið bæði ógn
og styrkleiki. Þegar mikil festa er
í starfsmannahaldi þá getur komið
ákveðin værukærð yfir okkur sem
er þá ógn en styrkleikinn er að við
erum alltaf að byggja ofan á það
sem við eigum.“
Horfir frekar á hæfni
heldur en kyn
Ekki er mikið um það að karlmenn
séu að starfa í leikskólum yfirleitt
og samkvæmt heimildum Skessu
horns eru þeir tveir sem starfa
núna á Akranesi, þeir Arnar Már og
Bjarki, en þeir eru einmitt í viðtali
hér á þessari opnu. En hvað segir
Ingunn um þetta? „Mér finnst al
veg ótrúlega mikilvægt að vera með
karlmenn í vinnu hjá okkur í leik
skólanum en það eru samt bara
nokkur ár frá því sá fyrsti kom til
okkar. Það sækja ekki margir karl
menn um vinnu hjá okkur, við erum
í samkeppni við marga eins og til
dæmis stjóriðjuna á Grundartanga.
Þó er það þannig að þegar maður
er að leita sér að góðu starfsfólki þá
horfir maður frekar á hæfileika og
hæfni starfsmanna frekar en kyn.
Þetta snýst alltaf um að finna besta
starfsmanninn sem maður getur
fengið á þeim tímapunkti. Lykill
inn að góðri samsetningu í starfs
mannahópi er þekking og reynsla
og ekki er gott að safna í kring
um sig einsleitum hópi. Einnig að
hafa ekki of ólíkar einingar þannig
að það fari mikil orka í það að fólk
nái saman því þetta snýst fyrst
og fremst um að vinna og starfa
saman.“
Karakter skiptir
öllu máli
Ingunn segir varðandi Arnar að
foreldrar hafi sagt henni að börn
in upplifi hann eins og vin en ekki
eins og starfsmann. „Þau eru að
fara í leikskólann til að leika við
Arnar Má og það er hluti af hans
karakter. Karakter í öllu starfsfólki,
hvort sem það eru konur eða karlar,
skiptir öllu máli. Hápunkturinn hjá
starfsfólki er þegar barnið segir að
það megi koma í afmælið hans eða
hennar, þá ertu á góðum stað. Arn
ar Már hefur mikla nennu og það
er ákveðin gleði sem fylgir honum,
þau tengja vel við hann því hann er
einstakur karakter þessi ungi maður
og á örugglega eftir að farnast vel í
framtíðinni.“
Meðalaldur starfsmanna á
Garðaseli er um fjörutíu ár en
Ingunn segir að þau séu að fá yngra
fólk inn núna sem er að koma úr
kennaranámi. „Það getur ver
ið kúnst að búa til notalegan og
skemmtilegan vinnustað þegar fólk
er á ólíkum aldri. Í kórónufaraldr
inum höfum við glímt við alls kon
ar áskoranir. Það er mikil áskor
un að uppfylla allar sóttvarnir og
hafa fólk og foreldra með sér. Líka
þessa fullvissu um að maður sé að
gera nóg og gera rétt ef eitthvað
bregður út af. Við höfum sloppið
mjög vel í faraldrinum en það hafa
komið upp smit. Við höfum þurft
að loka yngstu deildinni einu sinni,
miðdeildinni tvisvar og þeirri elstu
einu sinni. En við erum hér af því
að þetta góða verkefni, börnin, eru
til staðar. Ef þau væru ekki þá vær
um við ekki hér. Okkar vinna snýst
alltaf um það að gera eins vel og við
getum og hámarka gæði þess tíma
sem hvert barn er í leikskólanum .“
segir Ingunn að lokum. vaks
Arnar Már vinnur á elstu deildinni á Garðaseli sem nefnist Vík.
Margt skemmtilegt við það að vinna á leikskóla
Ingunn Ríkharðsdóttir, leikskólastjóri á Garðaseli.
„Mér leiðist aldrei í vinnunni“
Rætt við Ingunni Ríkharðsdóttur í tilefni af Degi leikskólans