Skessuhorn - 02.02.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2022 21
Sími 455 54 00
postur@byggdastofnun.is
byggdastofnun.is
Átt þú rétt á styrk til jöfnunar
flutningskostnaðar?
Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar
og lögaðilar sem eru fjarri innanlandsmarkað
eða útflutningahöfn og:
• stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir c-bálk ÍSAT2008
• stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir flokk 01.1 og/eða flokk 01.2 í a-
bálk ÍSAT2008 enda sé varan fullunnin
í söluhæfar umbúðir.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
Um styrkina gilda lög um svæðisbundna
flutningsjöfnun nr. 160/2011.
Nánari upplýsingar um styrkina má finna á
www.byggdastofnun.is
Styrkir
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Dalabyggð auglýsir félagsheimilið
Árblik í Dölum til leigu
Rekstur í Árbliki er spennandi verkefni fyrir hugmyndaríkan og
nýjungagjarnan einstakling. Frábært tækifæri fyrir núverandi íbúa
eða þann sem vill breyta til og búa í vinalegu sveitarfélagi sem er
margrómað fyrir kyrrð og náttúrufegurð.
Tegund rekstrar/þjónustu sem verður í Árbliki er í höndum rekstraraðila
og býður húsið upp á möguleika fyrir sýningarrými, viðburðaaðstöðu,
vinnustofur og/eða veitingasölu svo eitthvað sé nefnt.
Árblik er félagsheimili staðsett í Miðdölum, um 130 km frá Reykjavík og 14
km frá Búðardal. Húsið er vel stórt, á tveimur hæðum og fyrir utan það er að
finna tjaldsvæði.
Gert er ráð fyrir að samið verði um leigu til þriggja ára með möguleika á
framlengingu um tvö ár til viðbótar.
Áhugasamir eru beðnir að skila inn umsókn ásamt greinargerð þar sem
fram koma meðal annars hugmyndir að rekstri í Árbliki fyrir 21.02.2022
Umsóknareyðublað og upplýsingar er að finna á slóðinni
www.dalir.is/leiga-arblik
Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar um rekstrarfyrirkomulag og kjör
með því að senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is
Bjarki Aron Laxdal Sigurðsson er
að vinna í leikskólanum Akraseli
við Ketilsflöt á Akranesi. Bjarki
var áður að vinna í Norðuráli á
Grundartanga og fannst það frekar
glatað. Hann ákvað því að breyta
um starfsvettvang og segir að á
Akraseli hafi hann algjörlega fund
ið sig en hann hefur unnið í skólan
um í fjögur og hálft ár ásamt því að
vera í millitíðinni eitthvað í námi
með vinnu. Bjarki segir að hon
um finnist æðislegt að vinna hérna,
fínt fólk og ennþá betri börn. Hann
vinnur núna á deildinni Læk þar
sem yngstu börnin eru 23 ára en
hefur unnið á öllum deildum leik
skólans á þessum árum. Spurður
hvað sé skemmtilegasti aldurinn að
vinna með, svarar Bjarki: „Það eru
plúsar og mínusar alls staðar, þessi
yngri eru mikið að knúsa mann á
meðan þau eldri eru meira á spjall
inu. Þetta er geggjaður vinnu
staður, það er frábært að geta ver
ið maður sjálfur alla daga og ekk
ert leiðinlegt nema kannski kúkabl
eyjurnar sem eru þó lítið að trufla,
þetta venst allt.“
Bjarki á fimm systur og segist
vera vanur því að vera í kringum
konur og er alsæll í kvennafansi.
Hann er þriðji í röðinni í systkina
hópnum og segir að það hafi far
ið vel á með þeim í gegnum tíð
ina. En hvernig er að vinna með
öllum þessum konum í leikskólan
um? „Það er bara fínt, það skiptir
mig engu máli hvort ég er að vinna
með körlum eða konum. Á fund
um í leikskólanum er reyndar alltaf
sagt allt í kvenkyni en annars tek
ur maður ekkert sérstaklega eft
ir því. Þá hafa börnin einnig tek
ið mér mjög vel. Börn eru ekki að
mismuna, það er bara þannig. Ég
finn alveg fyrir því að ég sé í upp
áhaldi af því ég er eini strákurinn á
svæðinu. En svo er það bara þannig
að sum börn taka manni mjög vel
og svo eru önnur sem er alveg sama
um mann, þetta er bara sitt á hvað.“
Bjarki er stúdent af félagsfræði
braut í FVA og hefur verið að spá í
það að læra leikskólakennarann eða
annað kennaranám, það sé stefnan.
Bjarki, sem er 24 ára, segist ekkert
vera að flýta sér í þessum málum og
stefnir á að vinna hér næstu árin.
Hann er mjög ánægður á þessum
vinnustað og segir það fínt að vinna
hérna. Bjarki segir að þó hann sé
karlmaður þurfi hann ekkert endi
lega að vera að vinna í einhverju
skítadjobbi. „Það vita allir að það
eru kannski ekki frábær laun hérna
en það sem er gott fyrir andlegu
heilsuna kýs ég frekar. Launin eru
ekki allt, ég hef verið í vinnu þar
sem launin voru mjög há en vinn
an var ömurleg,“ segir Bjarki að
endingu.
vaks
„Kýs frekar það sem er gott fyrir andlegu heilsuna“
Bjarki er að vinna á Læk á Akraseli.
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæj
ar ákvað á fundi 20. janúar síðast
liðinn að Grundarfjarðarbær verði
„Barnvænt sveitarfélag“.
Barnvæn sveitarfélög er verkefni
sem styður sveitarfélög við að inn
leiða Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og
starfsemi. Verkefnið byggir á al
þjóðlegu verkefni UNICEF, Child
Friendly Cities Initiative (CFCI),
sem hefur verið innleitt í þúsund
um sveitarfélaga út um allan heim
frá árinu 1996, eins og segir á vef
verkefnisins. Verkefnið byggir
jafnframt á efni frá umboðsmönn
um barna í Noregi og Svíþjóð og
UNICEF í Finnlandi. UNICEF
á Íslandi hefur umsjón með verk
efninu en verkefnið er stutt af fé
lagsmálaráðuneytinu.
Sveitarfélög sem taka þátt og
innleiða Barnasáttmálann að
fullu, hljóta í lok innleiðingarferl
is viðurkenningu sem Barnvæn
sveitarfélög. Akureyrarbær var
fyrsta sveitarfélagið til að ljúka
innleiðingu og hljóta þá viður
kenningu en auk hans hafa t.d.
Borgarbyggð og Akraneskaup
staður hafið vinnu við inn
leiðinguna. Innleiðingarferlið
tekur að minnsta kosti tvö ár og
skiptist í átta skref sem sveitar
félag stígur með það að mark
miði að virða og uppfylla réttindi
barna. Að tveimur árum liðnum
getur sveitarfélagið sótt um viður
kenningu frá UNICEF á Íslandi.
Hljóti sveitarfélagið viðurkenn
inguna þá gildir hún í þrjú ár en
til að viðhalda viðurkenningunni
þarf sveitarfélagið að halda inn
leiðingunni áfram, setja sér ný
markmið og óska eftir nýju mati
að þremur árum liðnum.
Grundarfjarðarbær mun á næstu
vikum hefja þessa vegferð til inn
leiðingar og verður Ólafur Ólafs
son, nýráðinn íþrótta og tóm
stundafulltrúi Grundarfjarðar
bæjar, tengiliður vegna verkefnis
ins. Verkefnið krefst aðkomu allra
nefnda bæjarins en ungmennaráð
mun þó hafa sérstakt hlutverk og
aukið vægi. tfk
Grundarfjörður verði
barnvænt sveitarfélag