Skessuhorn - 02.02.2022, Qupperneq 23
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2022 23
“Þorragönguvika”
Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs
Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs í samstarfi við Heilsueflandi samfélag Borgarbyggðar býður
upp á daglegar gönguferðir vikuna 7. til 12. febrúar. Göngurnar verða allt að klukkutíma lan-
gar, nema sú síðasta sem verður um þriggja tíma löng. Í upphafi hverrar göngu verður boðið
uppá fróðleiksmola um sitthvað er tengist gönguferðum.
DAGSKRÁ “ÞORRAGÖNGUVIKU”:
7. febrúar kl. 17.00: Borgarneshringur. - Mæting við Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi.
8. febrúar kl. 17.00: Ganga í Reykholtsskógi. – Mæting á kirkjuplanið í Reykholti.
9. febrúar kl. 17.00: Hvanneyrarhringur. – Mæting við Ásgarð.
10. febrúar kl. 20.00: Vasaljósaganga í Einkunnum. - Mæting á bílastæði í Einkunnum.
11. febrúar kl. 17.00: Varmalandshringur - Mæting við grunnskólann á Varmalandi.
12. febrúar kl. 10.00: Þorraganga í Norðurárdal. - Mæting á bílastæðið við gamla skólahúsið
á Bifröst.
Fólki er ráðlagt að búa sig eftir veðri og aðstæðum. Í Vasaljósagöngunni er einnig æskilegt
að vera með ljós af einhverju tagi.
Allir velkomnir,
Göngunefnd FFB og Heilsueflandi samfélag - Borgarbyggð
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Frístundaleiðbeinendur
óskast til starfa
Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða tvo frístundaleiðbeinendur
til starfa í félagsmiðstöðinni 301 í Heiðarskóla.
Störfin eru unnin í tímavinnu einn dag í viku frá kl. 17:00
og felast í að undirbúa félagsstarfið í samvinnu við frístunda-
og menningarfulltrúa.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu og ánægju af því að
vinna með börnum og unglingum.
Góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og hreint
sakavottorð eru skilyrði. Starfið hentar öllum kynjum.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og hafa bíl til
umráða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Ása Líndal, frístunda-og
menningarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á
netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is.
Alls verður heimilt að veiða 1.021
hreindýr á veiðitímanum í ár; 546
kýr og 475 tarfa. Þetta er 199 hrein
dýrum færra en á liðnu ári sem
stafar fyrst og fremst af óvissu um
talningar hreindýra vegna veður
skilyrða og tilfærslu dýra milli
veiðisvæða á talningartímanum.
Umhverfisráðherra hefur ákveðið
veiðiheimildir til hreindýraveiða
fyrir árið og skiptingu þeirra milli
sveitarfélaga, að fengnum tillögum
frá Umhverfisstofnun.
Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til
15. september, en þó getur Um
hverfisstofnun heimilað veiðar á
þeim frá og með 15. júlí. Veiðitími
kúa er frá 1. ágúst til 20. september.
„Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins
er veiðimönnum gert að forðast í
lengstu lög að fella mylkar kýr svo
draga megi eftir megni úr áhrifum
veiðanna á kálfa. Þess í stað eru
veiðimenn eindregið hvattir til
að veiða eingöngu geldar kýr. Er
í þessu sambandi bent á hlutverk
og skyldur leiðsögumanna við að
aðstoða og leiðbeina veiðimönn
um við val á bráð. Þá eru vetur
gamlir tarfar alfriðaðir og mið
ast tarfaveiði því við tarfa sem eru
tveggja vetra og eldri. Óheimilt er
að veiða kálfa,“ segir í tilkynningu
frá ráðuneytinu.
Umhverfisstofnun auglýsir og
sér um sölu allra veiðiheimilda.
mm
Heimilt verður að fella 1.021 hreindýr
Helsti galli hvað ég er löt
í eldhúsinu
Íþróttamaður
vikunnar
Íþróttamaður vikunnar er nýlegur
liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum
við fyrir tíu spurningar til íþrótta
manna úr alls konar íþróttum á öll
um aldri á Vesturlandi. Íþrótta
maður vikunnar að þessu sinni er
körfuknattleikskonan Rebekka
Rán frá Stykkishólmi.
Nafn: Rebekka Rán Karlsdóttir
Fjölskylduhagir? Í sambúð.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Mín helstu áhugamál eru íþróttir,
hreyfing, heilsa og að ferðast.
Hvernig er venjulegur dagur hjá
þér um þessar mundir? Mæti í
vinnuna, þar er ég að kenna íþrótt
ir og sund. Svo fer ég að þjálfa
körfubolta eða crossfit og svo mæti
ég sjálf á körfuboltaæfingu. Þess á
milli nýti ég tímann til þess að læra.
Hverjir eru þínir helstu kost-
ir og gallar? Mínir helstu kost
ir myndi ég segja að væru dugnað
ur í því sem ég tek mér fyrir hendi,
en mínir helstu gallar er hvað ég er
löt og léleg í eldhúsinu. Það vill til
að kærastanum mínum finnst gam
an að elda.
Hversu oft æfir þú í viku? Ég æfi
ca. 46 daga vikunnar, það fer eftir
því hvenær það eru leikir.
Hver er þín fyrirmynd í íþrótt-
um? Mín helsta fyrirmynd í körfu
bolta var Kobe Bryant. Svo eru
þrjár „legends” sem ég horfði mik
ið upp til á yngri árum. Það eru
Hildur Sigurðardóttir og systurnar
Gunnhildur og Berglind Gunnars
dætur.
Af hverju valdir þú körfu-
bolta? Mér fannst körfubolti alltaf
skemmtilegasta íþróttin sem ég
æfði frá því ég byrjaði að æfa um 6
ára aldur. Ég æfði allar íþróttir sem
hægt var að æfa í Hólminum og svo
varð körfuboltinn fyrir valinu. Lík
legast líka af því ég var best í þeirri
íþrótt af þeim öllum.
Hver er fyndnastur af þeim sem
þú þekkir? Baldur Þorleifs.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast við þína íþrótt?
Það sem mér þykir skemmtilegast
er félagsskapurinn og hvað mað
ur kynnist mörgum. Það sem mér
þykir leiðinlegast er að tapa.