Skessuhorn - 02.02.2022, Side 28
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 202228
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Pennagrein
Nú geta íbúar kosið um sam
einingu Snæfellsbæjar og Eyja
og Miklaholtshrepps. Þar með
gefst einstakt tækifæri til að efla
dreifbýlis samfélagið á sunnanverðu
Snæfellsnesi en það er yfirlýstur
vilji með þeirri sameiningartillögu
sem nú liggur fyrir.
Ég er tilbúin til að taka þátt í
þeim breytingum sem þurfa að
verða svo við getum sem best grip
ið tækifærin í framtíðinni. Trúi því
að sameinuð verðum við enn öfl
ugra samfélag.
Snæfellsnes er að mörgu leyti
orðið eitt atvinnu og þjónustu
svæði. Góð og vaxandi samvinna
er um mörg málefni. Það er ekki í
boði núna að kjósa um að Snæfells
nes verði eitt stjórnsýslusvæði, það
tekur lengri tíma að sameina fimm
sveitarfélög með mörgum þjón
ustukjörnum og öðrum innviðum.
Staðan í dag í sunnanverðum
Snæfellsbæ er þannig að við búum
við bestu nettengingu sem völ er á.
Innviðir eru góðir; grunn og leik
skóli. Við getum tekið á móti nýj
um íbúum og skapað fjölbreytt at
vinnutækifæri. Það er margt sem
vert er að þakka fyrir eins og fjöl
breytt félagslíf og náttúrufegurð
sem dregur fólk til sín.
Það eru forréttindi að fá að lifa í
þessu landslagi, sólarmegin í lífinu.
Við birtuna sem vaknar á austur
himni og hverfur inn í Jökulinn í
lok dags. Útsýni til Jökulsins er víst
hægt að meta í krónum og aurum,
það er þekkt, en fjallasýnin er fjöl
breytt og það er einfaldlega stór
kostlega fallegt á þessu svæði. Auð
lindir okkar Snæfellinga eru óvenju
ríkur náttúru og menningararfur
og mannauður til að nýta þessa fjár
sjóði á sjálfbæran hátt. Hér er þjóð
garður, tvö friðlönd, náttúruvætti
og svæði á náttúruminjaskrá. Snæ
fellsnes er umhverfisvottað svæði.
Samfélagið verður eins gott og
við gerum það og af því að við erum
svo fá, verður augljóst að það þýð
ir ekkert að bíða eftir því að ein
hver annar sjái um félagslífið. Mik
il gróska hefur verið í formlegum
og óformlegum félögum, kórar og
söngsveit, leshringur, kven, bún
aðar og ungmennafélög svo eitt
hvað sé nefnt.
Þau 24 ár sem ég hef búið hér
hefur alltaf verið mikið félagslíf,
sem er opið öllum þeim sem vilja
taka þátt. Þetta er algerlega ómet
anlegt. Forsendan er fólk sem býr
hér, því fólk sem hefur samskipti
hvert við annað myndar samfé
lag. Það sem við veljum gera og
gera ekki hefur áhrif og afleiðingar,
ekki aðeins fyrir okkur sjálf heldur
einnig fyrir aðra sem lifa í samfélagi
við okkur.
Það sjónarmið að vilja litlu
breyta er skiljanlegt. Ég tel þó að
við eigum að hafa áhrif á hvernig
samfélagið breytist til að hámarka
kostina og lágmarka gallana við að
velja sér búsetu einmitt hér. Lík
lega á flest það sem upp er talið um
sunnanverðan Snæfellsbæ líka við
um Eyja og Miklaholtshrepp.
Það búa ekki bara bændur í sveit
um í dag og frá 2016 sjáum við
aukningu á því að fólk vilji flytja út
á land. Kannski erum við mörg sem
getum tekið undir þessi orð „Við
trúum á landið, á sveitina þar sem
fólkið okkar hefur átt heima í þús
und ár; við trúum á hlutverk sveit
anna í íslensku þjóðlífi; við trúum
á grænu brekkuna þar sem allífið á
heima.“ (Halldór Laxnes)
Ég mundi gjarnan vilja fá fleiri
íbúa á sunnanvert Snæfellsnes. Það
er lúxus viðfangsefni, en hér er
pláss og tækifærin eru fleiri en svo
að við núverandi íbúar getum nýtt
þau. Það vantar fleiri íbúðarhús. Úr
því er hægt að bæta.
Matur er okkar mál. Landbún
aður, það að lifa með og á landinu.
Endalausir möguleikar því fólk vill
hollan og góðan mat, framleiddan í
sátt við land og þjóð. Við eigum ör
ugglega eftir að sjá aukna ræktunar
menningu, sem byggir á því góða
starfi sem hefur verið unnið.
Mikil uppbygging hefur verið
í ferðaþjónustu sl. ár og hér geta
allir fundið gistingu, veitingastaði
og upplifun við sitt hæfi. Sunnan
vert Snæfellsnes er „aðal hliðið“ að
Snæfellsnesi, þar sem flestir gestir
koma inn á svæðið. Nú förum við
vonandi að losna út úr heimsfar
aldri og gestir fara aftur að streyma
á Snæfellsnes. Við verðum að halda
áfram góðri heimavinnu og sam
tali svo við getum tekið vel á móti
gestum, byggt upp ferðaþjónustu
á forsendum heimamanna og lág
markað neikvæð áhrif.
Heitar laugar, kaldur sjór, öl
kelduvatn opna á tækifæri fyrir
heilsurækt og atvinnustarfsemi. Ár,
vötn og sjór bjóða upp á veiði og
alls konar vatnasport. Hestaferð
ir á Löngufjörum á bestu reiðleið
um á Íslandi og þó víðar væri leit
að. Við þurfum að vinna áfram í
útivistarleiðum, í góðri samvinnu
við landeigendur og hagsmunaað
ila. Heita ölkelduvatnið á Lýsuhóli
býður upp á alls konar möguleika
til heilsutengdrar ferðaþjónustu og
framleiðslu á húðvörum svo eitt
hvað sé nefnt. Síðastliðin ár hefur
oft verið talað um möguleikana á
Lýðháskóla í Laugargerði þar sem
áherslan gæti verið á hesta og um
hverfismál. Slíkt yrði atvinnuskap
andi og hefði jákvæð áhrif á félagslíf
ungs fólks á svæðinu.
Margt gott hefur verið og er gert
á sviði skapandi greina, menningar
og lista. Við eigum að halda ótrauð
áfram. Getum verið stolt af því að
Sagnaseiður á Snæfellsnesi (www.
peopleoficeland.is) á uppruna sinn
og lögheimili hér. Bara sagan af
Guðríði Þorbjarnardóttur, sem var
af sunnanverðu Snæfellsnesi, ætti
að geta skapað nokkrum fjölskyld
um lífsviðurværi ef rétt er á málum
haldið.
Mér finnst að við eigum að
halda áfram að vera í fararbroddi
á sviði umhverfismála, vinna að
hringrásar hagkerfi og fleira.
Störf eru nú auglýst án staðsetn
ingar hjá ríkinu, nema að eðli starfs
ins krefjist hreinlega ákveðinn
ar staðsetningar. Við erum að sjá
dæmi þess að fólk kemur víða að úr
heiminum og velur sér búsetu hér.
Vil að lokum hvetja alla til að
nýta kosningaréttinn, núna eins og
alltaf því að; „með atkvæðisréttin
um trúir þjóðfélagið einstaklingn
um fyrir heill sinni og hamingju,
felur honum að ráða lögum og lof
um þess ytra fyrirkomulags er hann
vill lifa í.“ (Ólafía Jóhannsdóttir
1896).
Samvinnukveðja,
Ragnhildur Sigurðardóttir
Álftavatni
„Við trúum á landið, á sveitina þar sem fólkið okkar hefur átt heima í þúsund ár;
við trúum á hlutverk sveitanna í íslensku þjóðlífi; við trúum á grænu brekkuna
þar sem allífið á heima.“ (Halldór Laxnes)
Tækifærin á sunnanverðu Snæfellsnesi
Bláfeldarskarð.