Skessuhorn - 02.02.2022, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 202230
Ertu að horfa
á Verbúðina?
Spurning
vikunnar
(Spurt á Akranesi)
Kristjana Júlíusdóttir
„Ég er bara búin að horfa á einn
þátt, fannst hann góður og ætla
að horfa áfram.“
Þórdís Bachmann
„Já og finnst hún frábær, fær
fimm stjörnur frá mér.“
Óðinn Örn Einarsson
„Jebbz, þetta er flott og vel gert
sjónvarpsefni.“
Harpa Sif Þráinsdóttir
„Heldur betur, hún er mjög
skemmtileg.“
Sigurlaug Njarðardóttir
„Mér finnst hún frábær.“
Íþróttanefnd Ungmennafélags
Reykdæla í Borgarfirði veitti um
helgina íþróttamanni Umf. Reyk
dæla viðurkenningu fyrir sinn ár
angur. Að þessu sinni var það
Heiður Karlsdóttir sem hreppti
titilinn fyrir körfubolta. Á Face
book síðu Umf. Reykdæla er árið
2021 hjá Heiði í körfuboltan
um rakið. Hún æfði og spilaði
með meistaraflokki Skallagríms í
körfubolta framan af árinu 2021.
Hún var valin í U16 landslið og
spilaði með því og var til dæmis
í byrjunar liðinu gegn Eistlandi á
Norðurlandamótinu síðasta sum
ar. Heiður gerði svo samning og
spilar með stúlkna og meistara
flokki Fjölnis. „Heiður er mjög
einbeitt og frábær íþróttamað
ur sem stundar sína íþrótt af mik
ill alvöru og er frábær fyrirmynd
fyrir annað íþróttafólk,“ segir í til
kynningunni.
Í öðru sæti í vali á íþrótta
manni Umf. Reykdæla var Skírn
ir Ingi Hermannsson. Skírnir æfir
og spilar körfubolta með sam
eiginlegur liði Umf. Reykdæla
og Skallagríms í 9. og 10. flokki.
Hann spilar næstum allar mínútur
í öllum leikjum og er „mikilvæg
ur hlekkur í liðinu.“ Skírnir æfir
af kappi og er fyrirmynd fyrir aðra
íþróttamenn. Í þriðja sæti var Lis
beth Inga Kristófersdóttir, einnig
fyrir körfubolta. Lisbeth Inga lék
með 10. flokki stúlkna og meist
araflokki Skallagríms. „Þá æfði
hún aðeins í sumar með Heffingen
í Lúxemborg, fór svo til Ísafjarð
ar og samdi við Vestra,“ segir í
tilkynningunni um val á íþrótta
manni Umf. Reykdæla. Lisbeth
sleit krossband á árinu og bíður
eftir að komast í aðgerð. arg
Keppni í klassískum kraft
lyftingum á Reykjavíkur
leikunum RIG 2022 fór
fram um helgina og sendi
Kraftlyftingafélag Akra
ness þrjá keppendur á
mótið. Keppt var að stig
um og stóðu þeir sig all
ir vel.
Sylvía Ósk Rodrigu
ez bætti sig um fimm kg
í hnébeygju og lyfti þar
þyngst 150 kg. Hún fór
létt með 80 kg í bekk
pressu og 162,5 kg í rétt
stöðulyftu sem er bæting
um 2,5 kg. Samanlagður
árangur hennar var 392,5
kg sem gáfu 75,16 stig og
6. sætið í kvennaflokki.
Helgi Arnar Jónsson
lyfti þyngst 230 kg í hné
beygju, 122,5 kg í bekk
pressu og 270 kg í rétt
stöðulyftu. Þyngsta lyft
an í réttstöðulyftunni er
jöfnun á hans besta ár
angri. Samanlagður ár
angur Helga var 622,5 kg sem
gáfu honum 89,83 stig og 5. sætið
í karlaflokki.
Einar Örn Guðnason lyfti þyngst
287,5 kg í hnébeygju sem fóru létti
lega upp, 180 kg í bekkpressu og
282,5 kg í réttstöðulyftu sem einnig
flugu upp. Samanlagður árangur
hans var 750 kg sem gáfu honum
89,56 stig og 6. sætið í karlaflokki.
vaks
Sundmótið Reykjavík International
GamesRIG 2022 fór fram um
helgina í Laugardalslaug. RIG er
fyrsta sundmótið í 50 metra laug á
tímabilinu og í ár var keppnin sterk
með félögum frá Danmörku, Fær
eyjum, Grænlandi og Noregi. Fjór
ir Ólympíufarar voru á mótinu og
samtals voru keppendur 233 frá 22
félögum.
Sundfélag Akraness sendi alls 13
sundmenn á mótið og komu þeir
heim með eitt gull, eitt silfur og
þrjú brons. Einar Margeir Ágústs
son átti gott mót, hann sigraði í 200
metra skriðsundi og var í þriðja sæti
í 100 metra bringusundi. Enrique
Snær Llorens Sigurðsson stóð sig
einnig vel en hann var í öðru sæti
í 200 og 400 metra fjórsundi og í
þriðja sæti í 400 metra skriðsundi.
Þá var Ragnheiður Karen Ólafs
dóttir í þriðja sæti í 200 metra
bringusundi og Sindri Andreas
Bjarnason þriðji í 50 metra skrið
sundi. vaks
Knattspyrnufélag ÍA hefur gert
samning við Brooke Jones, banda
rískan markvörð, sem gildir út
tímabilið 2022. Brooke, sem er 21
árs, hefur leikið með Idaho sem er í
efstu deild bandaríska háskólabolt
ans. Henni er ætlað að fylla skarð
Anítu Ólafsdóttur sem hefur stað
ið á milli stanganna hjá ÍA frá árinu
2018 og lék alls 46 leiki í Inkasso
og Lengjudeildinni á þessum fjór
um árum. Aníta gekk á dögunum til
liðs við Stjörnuna í Garðabæ sem
leikur í efstu deild kvenna í sumar.
Þá gerði ÍA einnig nýjan samn
ing við Dagnýju Halldórsdóttur
sem gildir út tímabilið 2022. Dag
ný, sem er fædd árið 2002, lék 17
leiki í Lengjudeildinni með ÍA síð
asta sumar og skoraði eitt mark.
Ásamt Anítu Ólafsdóttur hafa
þær Sigrún Eva Sigurðardóttir og
Róberta Lilja Ísólfsdóttir einnig
yfir gefið herbúðir Skagamanna á
síðustu vikum. Sigrún Eva gekk
til liðs við Aftureldingu og Ró
berta Lilja gekk í raðir KR en bæði
lið leika í efstu deild kvenna næsta
sumar. vaks
Einar Margeir sigraði í 200 metra skriðsundi á RIG 2022. Ljósm. SA.
Sundfólk frá ÍA stóð
sig vel á RIG 2022
Einar Örn, Helgi Arnar og Sylvía í góðum gír. Ljósm.
Kraftlyftingafélag Akraness.
Kraftlyftingafólk frá
ÍA stóð sig vel
Heiður er
íþróttamaður
Umf. Reykdæla
Dagný hefur gert nýjan samning við
ÍA.
ÍA nær sér í bandarískan markvörð
Brooke Jones verður í markinu hjá ÍA í sumar. Ljósm. kfia