Skessuhorn - 02.02.2022, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2022 31
Jóhannes Karl Guðjónsson var á
miðvikudaginn í síðustu viku ráð
inn aðstoðarþjálfari íslenska lands
liðsins í knattspyrnu. Knattspyrn
ufélag ÍA beið ekki boðanna því
á sunnudagskvöldið hafði félagið
gert samning við Jón Þór Hauksson
um að gerast þjálfari meistaraflokks
karla til næstu þriggja ára.
„Við Skagamenn erum mjög
ánægð að fá Jón Þór til að taka við
liðinu. Við viljum þakka Vestra fyr
ir að heimila ÍA að ráða Jón Þór til
starfa og gerum okkur grein fyr
ir að hann var í áhugaverðu starfi á
Ísafirði. Jón Þór þekkir okkar starf
og áherslur vel. Við erum sannfærð
um að hann er sá þjálfari sem leið
ir okkur á sigurbraut og kemur ÍA í
fremstu röð í íslenskri knattspyrnu.
Það er stutt í mót, en Jón Þór geng
ur að góðu búi, félagið er vel rek
ið og fagfólk í öllum stöðum. Ég
hlakka mikið til komandi sumars,“
segir Eggert Herbertsson, formað
ur Knattspyrnufélags ÍA, í tilkynn
ingu.
„Ég vil byrja á því að þakka
Vestra fyrir sýndan skilning og að
gefa mér kost á að taka við mínu
uppeldisfélagi. ÍA er félag sem all
ir vilja leiða og ég er stoltur af
því að stjórn félagsins leitaði til
mín. Framtíð knattspyrnunnar á
Akranesi er björt, margar stjörn
ur íslenskrar knattspyrnu koma frá
Akranesi og efniviðurinn er góður.
Ég tek við öflugum og vel þjálfuð
um leikmannahópi. Mér til aðstoð
ar hjá félaginu er til staðar teymi
reynslumikilla og vel menntaðra
þjálfara og ég hlakka til samstarfs
ins. Mitt fyrsta verk verður að hitta
samstarfsfólk og leikmannahópinn
til að kynna mínar áherslur,“ segir
Jón Þór í tilkynningunni.
Jón Þór var aðstoðarþjálfari hjá ÍA
árið 2017 og tók við sem aðalþjálf
ari í lok ágúst eftir að Gunnlaugur
Jónsson hætti með liðið. Hann tók
svo næst við sem aðstoðarþjálfari
hjá karlaliði Stjörnunnar árið eft
ir áður en hann var ráðinn þjálf
ari íslenska kvennalandsliðsins. Jón
Þór tók þá ákvörðun að segja af
sér sem þjálfari kvennalandsliðsins
undir lok árs 2020 eftir að liðið
tryggði sig inn á Evrópumótið.
Hann stýrði Vestra frá miðjum júlí
á síðustu leiktíð er liðið hafnaði í 5.
sæti Lengjudeildarinnar og komst í
undanúrslit Mjólkurbikarsins.
vaks
Skallagrímur tók á móti liði Sindra
í 1. deild karla á föstudagskvöldið
og fór leikurinn fram í Fjósinu í
Borgarnesi. Leikurinn var hnífjafn
frá upphafi til enda en að lokum var
það Skallagrímur sem vann leikinn
nánast með minnsta mun, lokatöl
ur 99:97. Jafnt var á öllum tölum í
upphafi leiks en eftir rúman fimm
mínútna leik náði Sindri sjö stiga
forystu, 12:19. Skallagrímur kom
síðan til baka og staðan eftir fyrsta
leikhluta 25:27 fyrir gestina. Í öðr
um leikhluta var þetta á svipuðum
nótum, Sindri yfirleitt með yfir
höndina og staðan í hálfleik 50:54.
Í þriðja leikhluta skiptust liðin á
að ná forystunni, munurinn mest
sex stig hjá gestunum á þessum
tíma en var orðinn þrjú stig við
lok þriðja leikhluta. Staðan var þá
74:77 fyrir Sindra og allt útlit fyr
ir mjög spennandi síðasta fjórð
ung leiksins. Það varð raunin þar
sem liðin börðust af mikilli ákefð
allan tímann enda bæði lið staðráð
in í að bera sigur úr býtum í þess
um leik. Þegar ein mínúta var eftir
af leiknum setti Davíð Guðmunds
son niður mikilvægan þrist fyrir
heimamenn og kom þeim í 97:94.
Gestirnir misstu síðan boltann frá
sér í næstu sókn og Skallagrímur
því í kjörstöðu að innsigla sigurinn.
Marinó Þór Pálmason hitti síð
an ekki úr skoti eftir gegnumbrot,
Skallarnir hirtu frákastið en hittu
ekki og Sindramenn geystust í sókn
þegar um 30 sekúndur voru eft
ir. Þeir fengu hins vegar dæmt á
sig ruðning en strax í næstu sókn
misstu Skallarnir boltann klaufa
lega frá sér. Sindri nýtti sér það með
þriggja stiga körfu og staðan jöfn,
97:97, þegar Skallagrímur tók leik
hlé og 17 sekúndur eftir af leiknum.
Þegar þrjár sekúndur voru eftir var
brotið á Bryan Battle og hann setti
niður tvö vítaskot af miklu öryggi,
allt í járnum en tíminn ansi naum
ur fyrir gestina og þeir tóku leikhlé
fyrir síðustu sóknina. Það var síð
an Bryan Battle sem reyndist hetja
leiksins því hann varði síðasta skot
gestanna og sigur Skallagríms í
húsi, 99:97.
Stigahæstir hjá Skallagrími í
leiknum voru þeir Bryan Battle með
24 stig og 11 fráköst, Davíð Guð
mundsson var með 21 stig og Arnar
Smári Bjarnason með 18 stig. Hjá
Sindra var Detrek Browning með
31 stig, Jordan Connors með 20
stig, 14 fráköst og 10 stoðsendingar
og Gísli Þórarinn Hallsson með 17
stig.
Skallagrímur siglir lygnan sjó
í deildinni í sjöunda sæti með 16
stig eftir 18 leiki en svo virðist sem
lið Hauka úr Hafnarfirði og Hatt
ar frá Egilsstöðum séu á leið upp
í Subway deildina. Næsti leikur
Skallagríms er gegn Álftanesi syðra
fimmtudaginn 3. febrúar og hefst
leikurinn klukkan 19:15.
vaks
Snæfell og KR mættust síðasta
þriðjudagskvöld í 1. deild kvenna
í körfuknattleik og fór leikurinn
fram í Stykkishólmi. Snæfell var
fyrir leikinn með 14 stig eftir tólf
leiki en KR með tólf stig eftir tíu
leiki. Mikið hefur verið um frest
anir í vetur og er því deildin nokk
uð götótt. Mikið jafnræði var með
liðunum í upphafi leiks og staðan
jöfn eftir tæplega sex mínútna leik,
12:12. Snæfell náði síðan ágæt
is kafla og staðan 22:17 eftir fyrsta
leikhluta. Baráttan hélt áfram í öðr
um leikhluta en heimakonur þó
ávallt skrefinu á undan og þegar
flautað var til hálfleiks var munur
inn orðinn átta stig, 35:27.
Í þriðja leikhluta voru KRingar
enn að elta, náðu að minnka mun
inn af og til en þó aldrei minna
en í fimm stig og Snæfell í sæmi
lega góðum málum áður en síð
asti fjórðungur leiksins hófst, stað
an 50:43. En í byrjun hans náði
KR góðum fjögurra mínútna kafla
og náði að jafna metin þegar tæp
lega fjórar mínútur voru eftir af
leiknum, 57:57. Þá fóru í hönd
æsispennandi lokamínútur og mik
il spenna og æsingur það sem eftir
lifði leiks. Á síðustu mínútu leiksins
var KR tveimur stigum yfir í leikn
um en þá tók Rebekka Rán Karls
dóttir til sinna ráða, fyrst jafnaði
hún metin eftir gegnumbrot og síð
an þustu KRingar í sókn en klúðr
uðu þeirri sókn með að fá dæmt á
sig skref þegar 40 sekúndur voru
eftir. Erfiðlega gekk þó hjá Snæ
felli að finna glufu í vörn KR en
Rebekka náði síðan að krækja sér
í tvö víti þegar brotið var á henni
eftir gegnumbrot þegar 15 sekúnd
ur voru eftir af leiknum og skor
aði hún úr báðum vítunum. KR
fékk svo tækifæri að jafna metin eða
stela sigrinum í lokasókn þeirra en
misstu boltann klaufalega frá sér,
brutu af sér í kjölfarið og Rebekka
nánast gulltryggði sigurinn með að
hitta úr einu vítaskoti af tveimur.
KR fékk þó fimm sekúndur til að
ná að jafna metin en Snæfell hleypti
þeim ekki of nálægt körfunni þar til
flautan gall og lokastaðan 67:64
fyrir Snæfelli.
Hjá Snæfelli var títtnefnd
Rebekka Rán með 21 stig og 10
fráköst, Rósa Kristín Indriðadótt
ir var með 15 stig og 17 fráköst
og Helga Hjördís Björgvinsdótt
ir með 11 stig. Hjá KR var Fanney
Ragnarsdóttir með 21 stig, Ragn
hildur Arna Kristinsdóttir með 15
stig og Hulda Ósk Bergsteinsdóttir
með 11 stig.
Næsti leikur Snæfells átti að vera
næsta laugardag gegn Tindastól
en hefur verið frestað vegna smits
í leikmannahópi Tindastóls og er
allt liðið komið í sóttkví. Nýr leik
tími er þriðjudagurinn 8. febrúar,
fer leikurinn fram í Stykkishólmi
og hefst klukkan 18. vaks
Á sunnudagskvöldið áttust við lið
Skagamanna og Fjölnis í 1. deild
karla í körfuknattleik og fór leik
urinn fram á Akranesi. Mikið jafn
ræði var með liðunum í fyrsta leik
hluta en ÍA seig fram úr seinni
hlutann og staðan 19:15 ÍA í vil. Í
byrjun annars leikhluta náði ÍA tíu
stiga forystu og hélt því nokkurn
veginn fram í miðjan leikhlutann.
Fjölnir náði þó að koma aðeins
til baka þegar leið að hálfleik og
munurinn sex stig þegar hálfleiks
flautan gall, 38:32 fyrir ÍA.
ÍA var áfram með tögl og hald
ir í leiknum og var alltaf skrefinu
á undan. Það var ekki fyrr en und
ir lok þriðja leikhluta sem Fjöln
ir náði að komast inn í leikinn og
staðan orðin jöfn, 55:55, þegar
liðin gerðu sig tilbúin fyrir loka
hnykkinn. Spennan hélt áfram í
leiknum og þegar tæplega fjór
ar mínútur voru eftir var staðan
70:72 fyrir Fjölni. Þær mínútur
nýttu gestirnir sér hins vegar vel
því þeir skoruðu 14 stig gegn níu
stigum heimamanna og lokastað
an 79:86 fyrir Fjölni.
Stigahæstir hjá ÍA voru þeir
Lucien Christofis með 26 stig,
Aron Elvar Dagsson var með 17
stig og 13 fráköst og Cristopher
Clover með 17 stig. Hjá Fjölni var
Dwayne Foreman Jr. með 31 stig
og 14 fráköst, Daníel Ágúst Hall
dórsson með 20 stig og 11 fráköst
og Ólafur Ingi Styrmisson með 12
stig og 17 fráköst.
Næsti leikur Skagamanna er
heimaleikur gegn Haukum frá
Hafnarfirði föstudaginn 4. febrúar
og hefst klukkan 19.15. vaks
Þjálfaraskipti hjá ÍA - Jón Þór ráðinn til þriggja ára
Eggert og Jón Þór handsala samninginn. Ljósm. kfia
ÍA tapaði fyrir Fjölni
Snæfell vann sterkan sigur á KR
Rebekka Rán gerði gæfumuninn í
leiknum gegn KR. Ljósm. sá
Bryan Battle reyndist hetja Skallagríms gegn Sindra. Hér í leik gegn Hamri fyrr í
vetur. Ljósm. glh
Skallagrímur skellti
Sindra í hörkuleik