Morgunblaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 1. J Ú L Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 169. tölublað . 110. árgangur . 21.-24. júlí Sigraðu innkaupin ÁNÆGÐ MEÐ AÐ LJÚKA FERLINUM Á EVRÓPUMÓTI MEÐ INNSÆI OG HÁRFÍNUM HÚMOR FÁTT SAMEIGIN- LEGT UTAN VIÐ NAFNIÐ SÁPUFUGLINN 60 ÁRNI SÆBERG, ELDRI OG YNGRI 10&11HALLBERA G. GÍSLADÓTTIR 55 Logi Sigurðarson logis@mbl.is Innlánsvextir bankanna hafa tekið að hækka í takt við stýrivaxtahækk- anir Seðlabankans. Verðbólgan mældist hins vegar 8,8% í júní, svo raunvextir eru neikvæðir þrátt fyrir hækkandi innlánsvexti. Þórður Gunnarsson hagfræðingur telur líklegt að í núverandi umhverfi muni almenningur sækjast frekar í verðtryggð innlán. „Raunvextir á innlánum eru neikvæðir en miðað við þá óvissu sem er á mörkuðum, þá kæmi það ekki á óvart ef það dregur úr áhættusækni almennt,“ segir Þórður. Hann bendir á að raunávöxt- un hafi undanfarið verið neikvæð á nánast öllum eignamörkuðum, að hrávöru frátalinni. Það sé erfitt að koma peningunum í góða ávöxtun í þessu umhverfi. Inntur eftir því hvort þriggja ára binditími verðtryggðra reikninga valdi ekki vanda, játar Þórður því. Leiðir til að verja spariféð „Þetta er erfið staða. Það er aldrei auðvelt að eiga við verðbólgu sem nálgast tíu prósent, það er ekki þægileg staða fyrir neinn.“ Spurður hvað eldra fólk geti gert til að verja sparifé sitt segir Þórður að það geti farið yfir í verðtryggð innlán eða sjóði sem fjárfesta í verðtryggðum skuldabréfum. Eldra fólk sé yfirleitt í skuldlitlum eða skuldlausum fast- eignum og fasteignaverð fylgi vana- lega verðbólgu. „Sá hluti ævisparn- aðarins ætti því að vera í þokkalegu lagi, eins og er,“ segir Þórður. Hann telur að ef ekki takist að kveða verðbólguna niður bráðlega haldi stýrivextir áfram að hækka. „Verðbólgumarkmiðið er 2,5% og við erum að nálgast 10%. Maður veltir fyrir sér hvað Seðlabankinn getur gert, annað en að hækka vexti, ef hann ætlar að halda trúverðug- leika sínum,“ segir Þórður. Sparifé ber neikvæða vexti - Hagfræðingur segir erfitt að koma peningum í góða ávöxtun í þessu umhverfi - Stýrivextir haldi áfram að hækka ef verðbólgan hjaðnar ekki en hún er 8,8% Vextir á markaði » Stýrivextir Seðlabankans eru 4,75%. » Verðbólgan mældist 8,8% nú í júní. » Meðalvextir á óbundnum sparnaðarreikningum 3-3,4%. » Auður með 4,75% vexti. » Raunávöxtun neikvæð vegna verðbólgu. » Verðtryggðir reikningar vörn. _ Snorri Jakobsson hjá Jakobsson Capital telur að hækkandi vaxta- stig muni hafa jákvæð áhrif á af- komu viðskiptabankanna. „Stýri- vextir voru komnir undir 1,0-1,5%, sem gerir rekstrarumhverfi erfitt fyrir banka. Þessar vaxtahækkanir bankanna [í kjölfar stýrivaxta- hækkana] verða til þess að vaxta- tekjurnar, sem eru meginþorri tekna viðskiptabankanna, munu líklega aukast mikið.“ »28 Morgunblaðið/Eggert Bankar Reksturinn skilaði hagnaði í fyrra. Bjartsýnn á uppgjör viðskiptabankanna Veðurstofa Íslands treystir sér ekki til þess að segja fyrir um veðurfar um verslunarmannahelgi. „Það eru enn tíu dagar í þetta og lítið hægt að segja til um það,“ segir Björn Sævar Ein- arsson, veðurfræðingur, í samtali við Morgunblaðið. „Ég tel að ég geti sagt að líklega verði lægð nálægt landinu, það er ekki hægt að segja mikið meira um það og það er ekkert hægt að skipu- leggja út frá því,“ segir Björn. Hins vegar sé ólíklegt að hlýtt loft sunnan úr álfu streymi hingað norður eftir, yfirleitt þokist það austur. Í erlendum veðurspám er ekki gert ráð fyrir miklum hlýindum í upphafi verslunarmannahelgar. Reiknað er með 8-10°C og votviðri sunnan- og vestanlands, en 13-15°C norðeystra. Morgunblaðið/Kristinn Blíðan Gott er að vera vel búinn. Óvissa um verslunar- mannahelgi Endurnar við Ráðhúspollinn þekkja velunnara sína á færi og eru fljótar til þegar þeir koma fær- andi hendi með brauðmola. Ekki síst þegar um er að ræða þá sem þangað koma oft og reglulega og gauka að þeim góðgæti af ýmsu tagi. Þá koma þær kjagandi og kvakandi, alls óhræddar. Veðrið lék við borgarbúa í gær og ekki síst í skjólinu og gróandanum niðri í Miðbæ, þar sem mátti jafnvel sjá innfædda innan um ferðamenn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Endur lofa gæsku gjafarans við Ráðhúsið dddd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.