Morgunblaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 11
frændi minn,“ rifjar Árni yngri upp.
„Svo jókst þetta þegar ég byrjaði í
háskóla og fólk gerði ráð fyrir því að
ég væri blaðaljósmyndari á Mogg-
anum.“
Sá eldri var aftur á móti ekki jafn
vanur ruglingnum og því kom það
illa við hann þegar frændinn réðst
inn á vettvang fjölmiðlanna.
„Mér leið eins og þetta væri vöru-
merkið mitt vegna þess að maður er
búinn að sjá þetta svo lengi. Svo
kemur þetta á Vísi,“ segir Árni eldri
sem varð svo pirraður út í frænda
sinn að hann neitaði að mæta í út-
skrift hans úr lögfræði stuttu eftir
að sá yngri hóf störf á Vísi.
„Ég hugsaði: „Ég tala aldrei við
Árna Sæberg aftur,“ sagði Árni eldri
og ávarpaði frænda sinn: „Manstu,
ég kom ekkert í útskriftina hjá þér.“
„Já,“ sagði Árni yngri.
„Ég var svo reiður og það er svo
vont að vera svona reiður,“ sagði
Árni eldri.
„Svo fór ég að lesa þessa bók
hérna,“ bætti hann við og dró fram
Bókina um gleðina eftir Dalai Lama
og Desmond Tutu við hlátrasköll
blaðamanns og frændans. Kannski
hefur bókin hjálpað því Árni er kom-
inn yfir ergelsið núna, enda almennt
mjög léttur í lund.
„Ég verð eiginlega aldrei reiður,
það fer mér mjög illa að vera
reiður.“
Þeir frændur hittust svo loks í
stæðismanna og blaðaljósmyndari á
Mogganum skrifar inn á Vísir til að
hjálpa Jóni […] já allt er nú til …“
skrifaði þá lesandi Vísis í athuga-
semdakerfi miðilsins á Facebook.
Skuggi Sæberg
„Ég var meira að segja farinn að
hugsa um að breyta nafninu mínu og
setja bara Skuggi Sæberg,“ sagði
Árni eldri. Þó að hann hafi hugsað
um nafnabreytinguna í fullri alvöru,
enda um gott ljósmyndaranafn að
ræða, þá segir Árni að hann hefði
líklega ekki látið af því verða.
„Ég er nefndur í höfuðið á langa-
langalangafa mínum Árna snikkara
sem var mikill vinur Bólu-Hjálmars
og átti 26 börn með fjórum konum.
Síðasta barnið átti hann 85 ára með
25 ára prestsdóttur,“ minnist Árni
eldri á og bætir því við að hann hafi
ekki leikið þetta eftir forföðurnum.
Árni á sjálfur eina dóttur, Mörtu
Maríu Sæberg, sem verður tvítug á
árinu.
Ljósmyndarinn þarf þó líklega
ekki að hafa áhyggjur af þessu öllu
saman mikið lengur. Árni yngri
stundar nám við lagadeild Háskóla
Íslands og sér fyrir sér að starfa við
lögmennsku í framtíðinni.
„Svo ef ég verð einhver illa þokk-
aður lögmaður, þá verður þetta enn
þá verra,“ benti Árni yngri frænda
sínum á.
„Já, vertu á Vísi, en ekki taka
myndir,“ sættist Árni eldri loks á.
Lengri útgáfu af viðtalinu má
nálgast á mbl.is.
Litið til fortíðar Ljósmyndarinn og guðfaðirinn heldur blaðamanninum, sem þá var óskrifandi, undir skírn.
fermingarveislu nú í vor og sættust,
þrátt fyrir að hafa ekki sérstaklega
rætt þessi vandræði með nafnið. Sá
yngri hafði þó heyrt af reiði frænda
síns og líka orðið var við ruglinginn.
Blaðamaður hafði samband við þá
frændur og óskaði eftir viðtali eftir
að Árni yngri hafði skrifað viðtal við
dómsmálaráðherrann Jón Gunn-
arsson sem Árni eldri var sakaður
um að hafa ritað. Viðtalið birtist á
Vísi. „Árni Sæberg liðhlaupi sjálf-
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100
www.spennandi-fashion.isOpið: Mán-fös: 11-18 Lau: LOKAÐ
- ÚTSALA -
ÍTALSKUR OG SPÆNSKUR FATNAÐUR Á 40-60% AFSLÆTTI!
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
ÚTSALA | 30-60% afsláttur af öllum útsöluvörum
Útsalan
í fullum gangi
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
40-50%
afsláttur
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
LAXDAL er í leiðinni
Ennmeiri
verðlækkun
Skoðið
netverslun
laxdal.is
40-70%
afsláttur