Morgunblaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNAR s.isFIRÐI • TRYGGVA I • S: 560 8888 • vf
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ég flutti til Danmerkur 2004 út af
syni mínum og er þá með Zik Zak,
íslenskt framleiðslufyrirtæki sem ég
stofnaði 1995, og framleiðir kvik-
myndir, hvort tveggja á íslensku og
ensku. Ég „pendla“ þá fram og til
baka milli Íslands og Danmerkur og
stofna svo danskt framleiðslufyr-
irtæki sem heitir Profile Pictures
árið 2011.“
Þetta segir Þórir Snær Sigur-
jónsson, forstjóri kvikmyndadreif-
ingarfyrirtækisins Scanbox Enter-
tainment, í samtali við Morgun-
blaðið frá heimili sínu á Vesterbro í
Kaupmannahöfn. Óhætt er að segja
að Þórir hafi marga fjöruna sopið
við framleiðslu og dreifingu afþrey-
ingarefnis, sonur Sigurjóns Sig-
hvatssonar kvikmyndaframleiðanda,
sem mörgum Íslendingum er að
góðu kunnur. Auk faðernisins er
hann heldur betur orðinn reynslunni
ríkari af eigin störfum í bransanum.
„Í millitíðinni er ég svo alltaf að
framleiða hitt og þetta, fór að fram-
leiða fyrir Nicolas Winding Refn,
gerði Only God Forgives og víkinga-
myndina Valhalla Rising með Mads
Mikkelsen, sem sagði reyndar ekki
stakt orð í myndinni, þar sem búið
var að skera tunguna úr honum,“
heldur Þórir áfram. Leið hans inn í
Scanbox hafi svo legið gegnum kaup
þeirra feðga á hluta af fyrirtækinu
árið 2004. Að lokum hafi þeir Sig-
urjón keypt Scanbox í heild sinni ár-
ið 2014 og Þórir þá sest í forstjóra-
stólinn, þar sem hann situr enn sem
fastast.
„Scanbox hefur fyrst og fremst
dreift kvikmyndum á Norður-
löndum. Við veljum að dreifa stærri
Hollywood-myndum eins og Taken-
seríunni með Liam Neeson, The
Gentleman eftir Guy Ritchie og
Hateful 8 eftir Quentin Tarantino, í
bland við minni og vandaðar nor-
rænar og evrópskar myndir. Við
vorum til dæmis með The Square
eftir Ruben Östlund sem sigraði á
Cannes fyrir nokkrum árum. Ár-
lega erum við með myndir sem
keppa í Cannes. Svo dreifum við
líka dönskum „lókal“ myndum. Og
ég dreifi eins mörgum íslenskum
kvikmyndum á Norðurlöndum og
ég kemst upp með,“ heldur Þórir
áfram.
„Við erum einnig með um það bil
50 myndir á ári, sem við setjum á
mismunandi efnisveitur. Helming-
urinn fer kannski í bíó og svo restin
kannski á Viaplay, Netflix, TV2, DR
eða NRK,“ segir Þórir frá og grein-
ir því næst frá innkaupum þessa
efnis víða um heim.
Kaupa myndir á handritsstigi
„Þetta eru fjórir markaðir á ári,
Cannes, Berlín, Toronto og Los
Angeles. Þangað förum við til að
kaupa inn myndir og þá erum við að
berjast við aðra sem dreifa efni hér
á Norðurlöndum, SF Studios, Nor-
disk Film og fleiri, um kaup á bestu
bitunum. Þegar við fórum á Cannes
núna í maí, keyptum við til dæmis
myndir sem á eftir að gera og verða
fyrst tilbúnar á næsta ári eða 2024,“
útskýrir Þórir, „þetta er alveg gal-
inn bransi. Við kaupum myndir sem
við höfum ekki séð og svona fram-
leiðsla getur vissulega farið hvernig
sem er. Við kaupum myndir á hand-
ritsstigi, líklegast er kominn leik-
stjóri, mögulega leikarar og helstu
lykilaðilar og við vitum nokkurn
veginn hvernig kostnaðarliðir líta
út. Þá kaupum við réttindi til dreif-
ingar í ákveðinn tíma. Svo fer þessi
peningur frá okkur í sjálfa fram-
leiðslu myndarinnar,“ heldur for-
stjórinn áfram.
Eru kaup á dreifingarrétti kvik-
mynda á hátíðum þá bardagi upp á
líf og dauða? „Já, þetta getur verið
harður heimur. Við byrjum kannski
á að bjóða í tíu titla sem okkur líst á
og þetta geta verið tilboð upp á eina
og hálfa til tvær milljónir dollara. Þá
reynum við að sannfæra seljandann
um að hann eigi að koma til okkar
en ekki fara til keppinautanna. Svo
koma símtöl til baka um að hinn
kaupandinn sé búinn að hækka til-
boðið og við verðum að hækka okk-
ur svo þetta getur verið taugastríð
og störukeppni langt fram á nætur,“
segir Þórir frá.
Batman ekki á þennan markað
Hann segir slaginn um sjálf-
stæðar bíómyndir hve blóðugastan.
„Það eru myndir sem ég kaupi. Ég
kaupi ekki Warner Brothers-, Uni-
versal-, Disney- eða Marvel-myndir,
þeir eru með sína samstarfsaðila úti
um allan heim. Myndir eins og Bat-
man koma aldrei á þessa markaði.
Við erum hins vegar að bítast um
þessa stærstu bita í sjálfstæðum
kvikmyndum sem koma á kvik-
myndamarkaðina. Það er að segja
myndir sem eru ekki framleiddar í
þessum stóru amerísku stúdíóum,“
heldur Þórir áfram og játar að sam-
komulagið á Norðurlöndunum sé
öllu skárra en á stærri mörkuðum.
Blaðamaður er forvitinn um
hvernig kaupin gangi fyrir sig á eyr-
inni á kvikmyndahátíðum, mætir
hann bara á staðinn með sínu fólki
og gerir tilboð?
„Já, það er í rauninni þannig,“
svarar Þórir, „hátíðin sjálf og
„Þetta er alveg galinn bransi“
- Hefur ekkert upp á sig að hanga á
settinu í bíóúlpu með „takeaway“-bolla
Ljósmynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir
Kvikmyndafjölskylda Þórir ásamt sambýliskonu sinni, Elsu Maríu Jakobsdóttur leikstjóra, og börnunum.
5 24