Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 25

Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 Notaðir bílar Sjáðu bílanna á notadir.benni.is Bílabúð Benna | Krókhálsi 9 | Reykjavík | 590 2035 B irt m e ð fy rirv a ra u m m y n d a - o g te x ta b re n g l. Opel Combo Van Enjoy l1 ‘20, sjálfskiptur, ekinn 1 þús.km. Verð: 4.290.000 kr. SsangYong Tivoli XLV HLX ‘17, sjálfskiptur, ekinn 89 þús.km. Verð: 2.990.000 kr. Chevrolet Trax It ‘13, sjálfskiptur, ekinn149 þús. km. Verð: 1.250.000 kr. Hyundai I20 classic ‘19, beinskiptur, ekinn 67 þús.km. Verð: 1.890.000 kr. SsangYongRextonHLX ‘16, sjálfskiptur, ekinn 49þús. km. Verð: 4.590.000 kr. SsangYong Korando Dlx ‘17, sjálfskiptur, ekinn 88 þús. km. Verð: 2.590.000 kr. Opel Crossland X Innovation ‘19, sjálfskiptur, ekinn 85 þús. km. Verð: 2.490.000 kr. 592307 591843 591391 800535 800485 Opel Insignia Sports Tourer SW ‘16, sjálfskiptur, ekinn 39 þús.km. Verð: 2.990.000 kr. 592306 800495 800714 Opel Astra Enjoy ‘17, sjálfskiptur, ekinn 47 þús.km. Verð: 2.590.000 kr. 446787 Við erum fluttir inn í glæsilegan sýningarsal Bílabúðar Benna. 4x4 4x4 4x4 Sum ar- og vetrardekk ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA Á GÓÐUM VERÐUM! Vegna góðrar sölu vantar okkur allar tegundir bíla á skrá! Bílabúð Benna notaðir bílar framleiðendur,“ játar Þórir, „og það er mjög sérstakt að koma inn í þetta og vinna með fólki sem hefur alltaf verið hinum megin við borðið, þótt ég sé búinn að vera lengi í brans- anum. Í gegnum dreifinguna hef ég lært að sjá stóru myndina í þessum kvikmyndaheimi en sem framleið- andi hef ég alltaf þurft að einbeita mér fullkomlega að kvikmyndinni sem ég er að gera hverju sinni og djöfla henni áfram,“ bætir hann við. Skyldi hann vera mikið á vett- vangi sjálfur, þegar framleiðsla er annars vegar? „Nei, oftast ekki. Sem framleiðandi felst hlutverk mitt helst í því að skapa rammann áður en tökur fara í gang og tryggja fjár- mögnun. Það er margra ára und- irbúningur sem ég hef vonandi skil- að vel af mér. Líklegast hefur eitthvað farið úrskeiðis ef ég þarf að vera mikið á setti. Það tók mig reyndar nokkur ár að læra þetta, að það hefur ekkert upp á sig að ég hangi við mónitorinn og andi ofan í hálsmálið á leikstjóranum eða spásseri um settið í bíóúlpu og drekki kaffi úr „takeaway“-bolla. Í dag treysti ég mínum leikstjórum og öðrum lykilsamstarfsmönnum til að leysa sín verkefni.“ Með sex veitur heima Blaðamann fýsir að vita hvernig kvikmyndamarkaðurinn sé í Skand- inavíu miðað við mun stærri lönd og markaðssvæði. Hvað segir Þórir um það? „Hann er allgóður. Ég held til dæmis að dýrasti bíómiði í heimi sé í Noregi,“ svarar hann og hlær við. „En annars er þessi markaður bara stöðugur, auðvitað eru breytingar á markaðnum núna út af streymisveit- unum og Covid og þessu öllu. Maður veit ekkert hvort markaðurinn kem- ur til baka eins og hann var en fólk mun horfa á bíómyndir áfram og skandinavíski markaðurinn er nokk- uð góður. Hann er búinn að vera í miklu uppnámi núna. Ég veit ekki hvað þú ert með en ég er kominn með alla vega sex veitur heim til mín, ég er með Disney, Paramount, Netflix, Amazon, HBO og Viaplay. Úrvalið er mjög mikið,“ segir Þórir. Hann segir sjónvarpsþáttaraðir ef til vill hafa tekið ákveðinn hluta af markaðnum frá bíóinu. „En bíó- myndin mun alltaf lifa, ég trúi því,“ segir Þórir af einurð. „Hún verður kannski öðruvísi fram sett en áður,“ heldur hann áfram og segir for- vitnilega sögu af réttindamálum í kvikmyndahúsum á Norðurlöndum. „Sýningarrétturinn í bíó á Norð- urlöndum var 90 dagar. Ég setti kannski mynd út og þótt hún gengi ekki neitt, enginn kæmi í bíó, og hún væri tekin úr sýningu eftir 15 daga þurfti ég samt að bíða í 75 daga þangað til ég mátti setja hana á ein- hverja veitu. Þannig voru samning- arnir bara. Breytingin á þessu er helsta byltingin núna, Warner Brothers settu Batman út og eftir 45 daga var hún komin á HBO Max en samt áfram sýnd í bíó,“ segir Þórir og kveður þetta mikil vatna- skil. Annað samtal – aðrar áherslur Hann er þeirrar skoðunar að við- skiptavinurinn skuli ráða ferðinni, hann geti séð mynd í bíó en sé hún ekki sýnd í bíó, eigi hann að geta séð hana heima hjá sér án tafar. „Ef mynd gengur ekki í bíó, á hún að vera komin heim til þín mjög fljótt,“ segir Þórir og bætir því við að fólk sé auðvitað flest með mismargar streymisveitur í áskrift. „Veit kúnn- inn að mynd er til dæmis á Viaplay þótt hún sé enn í bíó?“ spyr hann og leggur ríka áherslu á þátt neytand- ans í markaðssetningunni. Hvað með framtíðina hjá Scan- box, hvernig sér Þórir næstu miss- eri fyrir sér? „Við í framkvæmda- stjórn Scanbox keyptum fyrirtækið í fyrra, þannig að pabbi og aðrir fjár- festar eru farnir út. Það er önnur orka þegar eigendahópurinn er á gólfinu og með því á sér stað öðru- vísi samtal og áherslurnar verða aðrar. Við ætlum að auka verulega umsvifin í framleiðslu hjá okkur. Á síðasta ári keypti ég út Skúla Malm- quist, sem stofnaði Zik Zak með mér, og setti Zik Zak inn í grúppuna okkar hjá Scanbox og maður er kannski að reyna að búa til sterkari samnorræna tengingu,“ segir Þórir, sem dreymir um að gera myndir sem njóti áhorfs í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Milli þessara landa liggi ógreinileg mörk sem séu hefð- bundnum landamærum torfærari. „Mér finnst furðulegt hvað við horfum lítið hvert á annað og skil ekki hvernig stendur á því. Ég bý hálftíma frá Malmö [í Svíþjóð] og ég veit ekkert hvað er að gerast þar,“ segir Þórir og hlær. „Norð- urlöndin eru svo samofin að myndir og þættir ættu að geta ferðast mun auðveldar yfir þessi landamæri, sem auðvitað Brúin [dansk-sænsku spennuþættirnir Broen] gerði og var til fyrirmyndar, en mig langar að gera meira þarna,“ segir Þórir og kveðst einnig hafa stærri verk- efni í huga, en alls ekki í Hollywood, tekur hann fram grafalvarlegur. Spurður út í áhugamál undir lok- in nefnir Þórir bakaríið Brauð & Co. sem hann stofnaði árið 2016 með þeim Ágústi Einþórssyni, Birgi Bieltvedt og Elíasi Guð- mundssyni. „Þar gat ég sameinað tvö áhugamál, bakkelsi og við- skipti,“ segir Þórir glettnislega en játar þó að hann fáist ekki beint við baksturinn sjálfur. „Nei nei nei, en ég smakka mikið og er með ein- hverjar meiningar,“ segir hann hlæjandi. Hangið í old boys „Svo er það bara fótbolti og lík- amsrækt. Ég hangi enn þá inni í einhverjum old boys-fótbolta, það er ótrúlegt hvað maður er slakur miðað við tímann sem maður hefur sett í þetta. En líkamsræktin er bara orðin eins og trúarbrögð, mað- ur getur ekki lifað án hennar,“ segir Þórir og blaðamaður samsinnir af heilum hug, enda sagt þjóðhagslega hagkvæmt að miðaldra fólk hreyfi sig. Sambýliskona Þóris er Elsa María Jakobsdóttir, leikstjóri, sem lokið hefur námi frá danska kvik- myndaskólanum. „Við vorum að gera mynd saman sem heitir Villi- bráð og kemur út um áramótin. Tyrfingur Tyrfingsson leikskáld skrifaði handritið með Elsu. Hér er á ferðinni mesta stjörnukast sem sést hefur í íslenskri bíómynd. Við erum að tala um Nínu Dögg [Fil- ippusdóttur], Hilmi Snæ [Guðna- son], Gísla Örn [Garðarsson], Björn Hlyn [Haraldsson], Anítu Briem, Þuríði Blæ [Jóhannsdóttur] og Hilmar Guðjónsson. Ég legg ekki meira á ykkur!“ segir Þórir kíminn. Forneldri í kóngsins Køben Eðlilega segir hann mikið rætt um kvikmyndir á heimilinu, auðvitað séu þær helsta áhugamálið þrátt fyrir ellibolta og líkamsrækt. Þá hefur Þórir skilað þremur börnum í þennan heim. „Ég er víst svokallað forneldri og á tvö lítil börn, Sögu Sigurveigu, sem verður þriggja ára í september, og svo eina tæplega fjögurra mánaða ónefnda stúlku. Svo á ég einn hálfdanskan, Lúkas, sem varð 18 ára í maí. Allt þetta brölt hérna í Danmörku er nú til komið út af honum. Óvænt og skemmtileg stefna sem líf mitt og annarra hefur tekið,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson, forstjóri Scan- box Entertainment, að lokum. Hann kveðst þó ekkert á leiðinni heim frá Danmörku. Ekki í bili alltént.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.