Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 28
28 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
21. júlí 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 135.58
Sterlingspund 162.83
Kanadadalur 104.72
Dönsk króna 18.657
Norsk króna 13.65
Sænsk króna 13.233
Svissn. franki 140.05
Japanskt jen 0.985
SDR 178.87
Evra 138.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.8653
« Vísitala leiguverðs á höfuðborgar-
svæðinu var 219 stig í júní 2022 og
lækkar um 0,8% frá fyrri mánuði.
Gildið 100 miðast við stöðuna í jan-
úar 2011. Íbúðarhúsnæði er skipt í
flokka eftir herbergjafjölda og staðsetn-
ingu og er reiknað meðalfermetraverð
fyrir sex flokka íbúðarhúsnæðis.
Vísitalan stóð í 212,2 stigum í janúar
og hefur því hækkað um 3,2% á fyrri
hluta ársins. Til samanburðar hækkaði
vísitalan um 0,35% á fyrri hluta síðasta
árs en lækkaði um 2,4% á fyrri hluta
árs 2020. Sú lækkun skýrðist ekki síst
af kórónuveirufaraldrinum en hrun varð
þá í skammtímaleigu íbúða til erlendra
ferðamanna og efnahagshorfur versn-
uðu. Vísitalan var 204 stig í febrúar
2020 og náði ekki hærra gildi fyrr en í
ágústmánuði 2021, er hún var 207,8
stig. baldura@mbl.is
Leiguverðið lækkaði um
0,8% milli mánaða
Vísitala leiguverðs
Þróunin sl. 12 mánuði
230
220
210
200
190
201
219
221
júní 2021 júní 2022
Janúar 2011=100
Heimild: Þjóðskrá
6.mán.
+4,3%
12.mán.
+8,8%
BAKSVIÐ
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Samanlagður hagnaður viðskipta-
bankanna þriggja og Kviku var um
92 milljarðar króna í fyrra. Síðan þá
hefur vaxtastig tekið að hækka,
eignamarkaðir lækkað og innrás
Rússa hefur sett sinn svip á heims-
hagkerfið.
Snorri Jakobs-
son hjá Jakobs-
son Capital segir
að almennt hafi
hærra vaxtastig
jákvæð áhrif á
rekstur bank-
anna. Seðlabanki
Íslands hefur
hækkað stýri-
vexti á árinu um
2,75%, úr 2% í
4,75%, en þeir urðu lægstir 0,75% í
nóvembermánuði 2020.
„Stýrivextir voru komnir undir
1,0-1,5%, sem gerir rekstrarum-
hverfi erfitt fyrir banka. Þessar
vaxtahækkanir bankanna [í kjölfar
stýrivaxtahækkana] verða til þess að
vaxtatekjurnar, sem er meginuppi-
staða tekna viðskiptabankanna,
munu líklega aukast mikið. Þetta er
stærsti tekjuliðurinn þeirra,“ segir
Snorri.
Bjartsýnn á uppgjör bankanna
Aðspurður segist hann vera bjart-
sýnn á uppgjör stóru viðskiptabank-
anna og telur þau verða sterk. Hann
bendir þó á að útlitið fyrir fjárfest-
ingarbanka sé dekkra, þar sem
hærra vaxtastig geti haft neikvæð
áhrif á tekjur þeirra. Eins og mbl.is
greindi frá á þriðjudag, sendi Kvika
frá sér neikvæða afkomuviðvörun,
þar sem bankinn varaði við því að
hagnaður fyrir skatta yrði 1,8 millj-
örðum lægri en áætlað var 12. maí.
Minni hagnaður skýrist af lægri fjár-
festingartekjum vegna erfiðra að-
stæðna á verðbréfamörkuðum.
Horfurnar betri á Íslandi
Snorri tekur þó fram að rekstur
Kviku sé mun fjölbreyttari en fyrir
tveimur árum, vægi útlánasafns
bankans hafi aukist. Einnig samein-
uðust Kvika og TM í fyrra.
Snorri segir að efnahagshorfurnar
hér séu mun bjartari en til dæmis á
meginlandi Evrópu. Þar sé horft upp
á vaxtahækkanir auk samdráttar í
hagkerfinu, en samkvæmt Hagstofu
Íslands jókst landsframleiðsla um
8,6% á fyrsta ársfjórðungi.
„Hér er gríðarlega kröftugur hag-
vöxtur, sem drífur áfram mikinn út-
lánavöxt hjá bönkunum. Þeir fá bæði
hærri vaxtatekjur, líklega vegna
aukins vaxtamunar, og einnig gríð-
arlegan vöxt á lánasafninu.“
Nú hafa erlendir miðlar greint frá
því að hagnaður banka vestanhafs
hafi tekið að minnka og þeir búi sig
undir samdrátt. Lækkanir á eigna-
mörkuðum hafa spilað inn í þessa
lækkun og auk þess eru þeir farnir
að byggja upp varasjóði fyrir lán
sem fara mögulega í vanskil.
Erfitt að bera þá saman
Snorri segir í raun ekki hægt að
bera þetta saman við þróunina hér á
Íslandi vegna smæðar efnahags-
kerfisins hérlendis. Einnig hafi
myndast mun stærri bóla á eigna-
mörkuðum vestanhafs en hér, fyrst
og fremst í verði tækni- og vaxta-
fyrirtækja. „Hlutabréfamarkaður-
inn hér byggist að miklu leyti á
arðgreiðslufélögum sem vaxa hægt,“
segir Snorri Jakobsson.
Hækkandi vextir hafi
jákvæð áhrif á afkomu
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Bankar Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans hafa jákvæð áhrif á rekstur viðskiptabankanna, að mati sérfræðings.
- Samanlagður hagnaður bankanna í fyrra 92 milljarðar - Kröftugur hagvöxtur
Snorri
Jakobsson
Hlutabréfaverð í Marel hríðféll í gær
eftir að fyrirtækið gaf út afkomuvið-
vörun í fyrradag. Hlutabréfaverð
Marels lækkaði um tæplega 11% í
viðskiptum sem námu 744 milljón-
um. Gengið stendur nú í 606 krónum.
Gengi Kviku lækkaði einnig en ekki
jafn skarpt en þó um rúmlega 3% í
viðskiptum sem hlupu á 1,2 milljörð-
um króna. Marel er stærsta félagið í
Kauphöllinni og dró í kjölfarið Úr-
valsvísitöluna niður um tæp 5%.
Fækka starfsfólki um 5%
Líkt og mbl.is greindi frá í vikunni
hyggst Marel fækka starfsfólki um
5% á heimsvísu vegna krefjandi
rekstrarumhverfis. Í bráðabirgða-
uppgjöri fyrirtækisins segir að
rekstrarniðurstaða félagsins á
öðrum ársfjórðungi sé undir vænt-
ingum. Verkefnastaðan sé þó góð og
drifin áfram af nýsköpun og aukinni
markaðssókn um heim allan.
Líkt og Marel, sendi Kvika frá sér
afkomuviðvörun á þriðjudag þar sem
fyrirtækið varaði við því að hagnað-
ur fyrir skatta væri 1,8 milljörðum
minni en ráðgert var á öðrum árs-
fjórðungi. Það skýrist aðallega af
lægri fjárfestingartekjum, en að-
stæður á verðbréfamörkuðum hafi
verið krefjandi.
Icelandair lækkaði líka
Icelandair lækkaði einnig í við-
skiptum gærdagsins, eða um rúm-
lega 2%. Arion banki og Icelandic
Seafood International voru einu fé-
lögin sem hækkuðu á markaði í gær,
þó aðeins lítillega. logis@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Viðskipti Úrvalsvísitalan féll um
tæp 5% eftir afkomuviðvaranir.
Hlutabréfaverð
Marels hríðféll
- Afkomuviðvar-
anir settu sinn svip
á markaðinn í gær