Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 29

Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 SPORTÍS SKE I FAN 1 1 1 08 REYKJAV ÍK S POR T I S . I S 520-1000 - VELDU HOKA UTANVEGASKÓ FYRIR ÆVINTÝRI SUMARSINS - HOKA FÆR FRÁBÆRA DÓMA FRÁ RUNNERS WORLD MAGAZINE! SVÍFÐU YFIR JÖRÐINA! Boris Johnson, fráfarandi forsætis- ráðherra og leiðtogi breska Íhalds- flokksins, gerði ein af þekktari um- mælum kvikmyndasögunnar að sínum, þegar hann kastaði kveðju á breskt þing og þjóð í gær að loknum umdeildum ferli og á köflum skraut- legum. „Hasta la vista, baby,“ sagði for- sætisráðherra einfaldlega og hafði þar uppi línu sem margir minnast úr helsta sumarsmelli íslenskra kvik- myndahúsa árið 1991, kveðjuorð Arn- olds Schwarzeneggers, í hlutverki framtíðarvélmennisins T-800, í garð álmennisins T-1000 sem leikarinn Ro- bert Patrick túlkaði eftirminnilega. Tókst svona að mestu Kveðjuorðum Johnsons, sem á ís- lensku útleggjast sjáumst síðar, fylgdu þau ummæli að hann hefði – að sinni – náð markmiði sínu að mestu í embætti, „Mission largely accom- plished – for now“, eins og hann orð- aði það. „Við höfum hjálpað til, ég hef hjálp- að til, við komum þessu landi gegnum heimsfaraldur og vörðum aðrar þjóð- ir fyrir villimönnum. Satt að segja má vel lifa við það. Markmiðin náðust að mestu,“ sagði Johnson meðal annars í kveðjuræðu sinni í gær. „Hann hefur ákveðið að yfirgefa gullhúðað byrgi sitt hið síðasta sinn til að tjá okkur að allt sé í þessu fína. Mikið á ég eftir að sakna þessara ranghugmynda,“ sagði stjórnarand- stöðuleiðtoginn Keir Starmer í gær og dró ráðherrann fráfarandi sundur og saman í logandi háðinu. Lét Johnson sér hins vegar fátt um finnast og svaraði því til að ummæli stjórnarandstöðuleiðtogans væru „hrein satíra“. AFP/PRU Sjáumst síðar Túlka má kveðju Borisar Johnsons svo að hann hafi ekki endilega sagt sitt síðasta orð. „Hasta la vista, baby“ sagði Boris - Kvaddi þing og þjóð með tilþrifum „Mér er öllum létt,“ segir SAS- flugmaðurinn Steffan Kvamme í samtali við norska rík- isútvarpið NRK. Kvamme er einn 560 flugmanna sem fékk upp- sagnarbréf í hendur meðan kórónuveirufaraldurinn geisaði, en nýir samningar í kjölfar harðvítugs 15 daga verkfalls flugmanna hljóða upp á endurráðningu 450 þeirra sem sagt var upp. „Þetta eru býsna góðar fréttir, ástandið hefur verið ískyggilegt síðustu tvö árin,“ segir Kvamme, sem nú fær að fljúga um loftin blá á ný undir stýri farþegaþotna flug- félagsins skandinavíska, sem bjarg- að hefur verið oftar frá þroti en elstu menn muna. „Við ráðum flug- mennina aftur í hollum eftir því sem markaðurinn skilar sér til baka eftir faraldurinn,“ segir Tonje Sund, fjölmiðlafulltrúi SAS, við NRK. NOREGUR SAS-flugmenn tak- ast á loft af gleði Steffan Kvamme gleðst yfir sáttum. Ljóst er nú að slagurinn um stól Borisar Johnsons, fráfarandi for- sætisráðherra og leiðtoga breska Íhaldsflokksins, stendur milli utan- ríkisráðherrans Liz Truss og fyrr- verandi fjármálaráðherrans og nú þingmannsins Rishi Sunak. Hlaut sá síðarnefndi 137 atkvæði flokks- systkina sinna við atkvæðagreiðslu í gær en Truss 113. Viðskiptaráðherrann Penny Mor- daunt, sem talin var sigurstrang- leg, hlaut ekki náð fyrir augum þingflokksins og hverfur af vígvell- inum með 105 atkvæði. Með at- kvæðagreiðslunni náðist naumlega að skera úr um lokakandídata áður en breska þingið fer í sumarfrí í dag. Nú er það undir 160 þúsund íhaldsflokksmönnum komið að velja leiðtoga flokksins. Atkvæða- greiðslunni lýkur 2. september og þann 5. september verður tilkynnt um nýjan forsætisráðherra. BRETLAND Tvö koma til greina Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Gærdagurinn var annasamasti dag- ur slökkviliðsins í Lundúnum síðan í síðari heimsstyrjöldinni,“ sagði Sadiq Khan, borgarstjóri þar, í samtali við Sky News í gær og vísaði til gróður- og húsbruna um alla borg. Hitabylgjan sem legið hefur yfir Evrópu síðustu daga, sumum til gleði og öðrum til þjáningar, jafnvel dauða, stendur líkast til fram yfir helgi að yf- irsýn fræðinga og veðurspámanna álfunnar. Slökkvilið flestra Evrópu- landa hafa staðið í ströngu við að bjarga húsum og öðrum verðmætum frá því að verða bráð loganna, sam- tímis því sem tugir þúsunda hafa þurft að rýma heimili, vinsæla ferða- mannastaði og aðra staði þar sem fólki hefur ekki verið talið óhætt. „Við finnum mikla brunalykt núna. Fórum úr húsi klukkan 18 og urðum ekki vör við neitt en á leiðinni heim sáum við reyk og fundum mikla lykt,“ sagði Guðrún Elísabet Stef- ánsdóttir í samtali við mbl.is í gær. Þau Hilmar Veigar Pétursson, eig- inmaður hennar, búa ásamt börnum sínum í Twickenham í Lundúnum og fóru ekki varhluta af hitanum. Skóla sem betur fer lokið „Hitinn fór upp í 39 gráður hjá okkur og þá er eins gott að búa í gömlu múrsteinshúsi með þykkum veggjum,“ sagði Guðrún enn fremur og þakkaði fyrir að börn þeirra Hilmars luku vorönninni í skólanum í síðustu viku, þar sem breskir skólar séu vanbúnir loftkælingu. „Foreldr- ar komu með viftur í skólann svo börnum þeirra yrði líft í kennslu- stundum,“ sagði Guðrún. Rúmlega 500 dauðsföll á Spáni síð- ustu daga hafa að sögn Reuters- fréttastofunnar verið tengd við hita- stigið, auk þess sem yfir 30 skógar- eldar hafa kviknað þar í landi. Greinir Reuters enn fremur frá því að eldri hjón hafi fundist látin í bif- reið sinni, sem brunnið hafði til kaldra kola í Portúgal. Höfðu hjónin að sögn fréttastofunnar ætlað að forða sér undan skógareldi í bænum Murca í Norður-Portúgal og lent í árekstri við aðra bifreið. „Bíllinn var brunninn til ösku er að var komið. Hjónin mættu þar ör- lögum sínum. Ótrúlegir hlutir eiga sér stað í Murca um þessar mundir, meira en hálfur bærinn brennur,“ sagði Mário Artur Lopes bæjarstjóri við Reuters. Þá barðist slökkvilið í Grikklandi við 73 elda á mánudag og vara stjórnvöld þar í landi við eldfimu ástandi áfram í hitabylgjunni sem nú skilur eftir sig sviðna jörð í Evrópu og Bandaríkjunum. Komu með viftur í skólann - Annasamasti dagur slökkviliðs Lundúna síðan í heimsstyrjöldinni - Engin loft- kæling í breskum skólum - Íslendingur í Twickenham ræddi við mbl.is í gær AFP/Niklas Halle’n Komast hvergi Lestir Lundúna stöðvuðust vegna bruna við teinana. Aðvörun um „háskalega hitabylgju“ náði til 110 milljóna Bandaríkja- manna í rúmlega tuttugu ríkjum landsins í gær. „Komið ykkur á svala staði og gætið hvert að öðru,“ hljóm- uðu einföld skilaboð frá stjórnvöld- um þar. Hve heitast hefur orðið í kolunum í Suðvestur- og syðri miðríkjum Bandaríkjanna, svo sem í Texas, þar sem hitastig fór yfir 100 gráður á Fa- hrenheit í gær, 38 gráður á Celsíus. Keyrði raforkunotkun þar um þver- bak, þegar fólk knúði loftkælingar- búnað heimila sinna til hins ýtrasta. Reikna veðurfræðingar vestanhafs með því að ekkert lát verði á hitanum fyrr en í fyrsta lagi eftir helgi, auk þess sem rakt loft í mörgum ríkjum gerir ástandið þungbærara þeim sem viðkvæmir eru fyrir miklum hita. Hitabylgja geisar beggja vegna Atlantsála og knýja Bandaríkjamenn loftkælingar sínar til hins ýtrasta Fólk hvatt til að leita svalra staða AFP/Getty Images/Brandon Bell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.