Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 38

Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 ✝ Sigurborg Ing- unn Einars- dóttir fæddist á Ísafirði 11. maí ár- ið 1932. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Hulduhlíð á Eskifirði laugar- daginn 9. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru þau Guð- rún Friðrika Pét- ursdóttir, f. 7.9. 1908, d. 20.12. 1982 og Einar Ólafur Eyjólfsson, f. 8.9. 1900, d. 6.3. 1939. Stjúpfaðir Sigur- borgar var Eyjólfur Guðmund- ur Ólafsson, f. 27.12. 1916, d. 31.1. 2006. Systkini Sigurborgar eru: Þorvaldur Einarsson, f. 22.2. 1937, Einar Eyjólfur Eyjólfs- son, f. 6.1. 1940, d. 5.4. 2010, Ólafur Guðjón Eyjólfsson, f. 16.6. 1942, d. 3.3. 2020, Helga Eyjólfsdóttir, f. 30.10. 1944, Ingólfur Birkir Eyjólfsson, f. 5.7. 1946, Þráinn Eyjólfsson, f. 10.3. 1949 og Rúnar Eyjólfs- son, f. 7.8. 1954. Sigurborg var gift Sören Sörensen bifreiðarstjóra, f. 26.6. 1924, d. 13.9. 2004. Sam- an eignuðust þau einn son, Pétur Þór Sörensson, f. 2.1. 1964. Pétur er giftur Þórunni taka á móti hundruðum Aust- firðinga og sinna mæðra- og ungbarnaeftirliti. Árið 2020 var Sigurborg sæmd heiðurs- merki hinnar íslensku fálka- orðu og fékk hún riddara- krossinn fyrir framlag sitt til heilbrigðisþjónustu í heima- byggð. Sigurborg var fyrsti formað- ur Ljósmæðrafélags Austur- lands, sem stofnað var árið 1975, og gegndi ýmsum trún- aðarstörfum. Hún var í stjórn Krabbameinsfélags Austur- lands og formaður þess um tíma. Hugur hennar snerist ætíð um velferð og heilsu og tók hún fyrstu skóflustunguna að núverandi heilsugæslustöð á Eskifirði, en bygging hennar hófst haustið 1992. Þau hjónin Sigurborg og Sören höfðu mörg sameiginleg áhugamál, en þar má til dæmis nefna gríðarlegan áhuga á steinasöfnun og ferðuðust þau víða um land í þeim tilgangi. Steinasafn þeirra hjóna hefur vakið mikla athygli og var gef- in út bók sem heitir Íslenskir steinar þar sem fjöldinn allur af steinum úr safninu varð fyr- ir valinu til umfjöllunar. Steinasafnið var opið almenn- ingi til margra ára og gaf það þeim hjónum ómælda ánægju að sýna safnið þeim fjölmörgu gestum sem heimsóttu það. Útför Sigurborgar verður gerð frá Eskifjarðarkirkju í dag, 21. júlí 2022, og hefst at- höfnin kl. 14. F. Víðisdóttur og eiga þau tvo syni, þá Víði Þór og Daníel Sören. Pét- ur á fyrir dótt- urina Ingunni. Sig- urborg ól upp tvær dætur Sörens af fyrra hjóna- bandi, þær Jak- obínu Sörens- dóttur, f. 29.6. 1951 og Helenu Sörensen, f. 28.5. 1954. Jakob- ína er gift Vilhjálmi Björnssyni og eiga þau þrjú börn, þau Júl- íönu, Björn Inga og Ívar Sö- ren, fimm barnabörn og eitt barnabarnabarn. Helena er gift Jónasi Þór Guðmundssyni og eiga þau þrjú börn, þau Kristin Þór, Guðmund og Guð- rúnu Líneyju og fjögur barna- börn. Sigurborg útskrifaðist sem ljósmóðir árið 1956 og sem hjúkrunarfræðingur fimm ár- um síðar eða árið 1961. Hún fluttist austur á Eskifjörð árið 1963 þar sem hún bjó til dauðadags. Hún starfaði sem héraðshjúkrunarkona, ljós- móðir og síðar hjúkrunar- forstjóri allt til ársins 1998. Á starfsævi sinnti hún fjölbreyttu hjúkrunarstarfi ásamt því að Látin er tengdamóðir mín og góður vinur, Sigurborg Ingunn Einarsdóttir. Okkar kynni hófust þegar ég, ungur að árum, fór að heim- sækja stjúpdóttur hennar, hana Jakobínu mína. Strax frá byrj- un tók hún mér vel og fljótlega urðum við góðir vinir. Aldrei bar nokkurn skugga á þá vin- áttu heldur jókst hún með ár- unum. Sigurborg var traust manneskja, sem með dugnaði, heiðarleika og þrautseigju tókst á við lífið og tókst það vel. Hún reyndist mér afar vel í alla staði og þáði ég mörg góð ráð frá henni í gegnum tíðina. Það voru forréttindi að fá að kynnast þessari góðu konu. Ég hef alla tíð litið á mig sem tengdason hennar, þótt Jakob- ína mín sé stjúpdóttir hennar. Börnin okkar og barnabörn voru alin upp við það að hún væri amma þeirra, sem hún var og hún tók þeim alltaf þannig. Um leið og ég kveð tengda- móður mína og vin þakka ég henni samfylgdina í gegnum ár- in. Blessuð sé minning Sigur- borgar Ingunnar Einarsdóttur. Vilhjálmur Björnsson. Elsku amma. Þegar ég lít til baka og hugsa um tímann sem við feng- um saman er þakklæti mér efst í huga: Takk fyrir öryggið sem þú og afi veittuð mér í æsku, takk fyrir að vera alltaf til staðar, takk fyrir allt spjallið, takk fyr- ir að hlusta og skilja, takk fyrir öll góðu ráðin, takk fyrir að hafa trú á mér, takk fyrir góð- vildina, takk fyrir vináttuna, takk fyrir að reynast börnunum mínum vel, takk fyrir að bjóða okkur alltaf velkomin, takk fyr- ir allt. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Farðu í friði, elsku amma, þín verður sárt saknað. Þín Júlíana. Sigurborg Ingunn Einarsdóttir ✝ Guðrún Jóns- dóttir var fædd í Hattardal í Álftafirði 8 nóvem- ber 1925. Hún lést á Vífilsstöðum 11. júlí 2022. Guðrún, eða Stella, eins og hún var alltaf kölluð, var dóttir hjón- anna Guðrúnar Maríu Guðnadótt- ur, f. 22.7. 1899, d. 7.1. 1977, og Jóns Júlíusar Bentssonar, f. 26.7. 1901, d. 8.5. 1981. Systk- ini hennar voru: Lára, Matt- hías, Bent og Sigurður og eru þau öll látin. Guðrún var í barnaskóla Guðrún og Elías eignuðust fjögur börn en Elías átti fyrir einn son, Óskar Karl, f. 30.11. 1953, d. 8.9. 2014. Óskar Karl á þrjú börn, sjö barnabörn og eitt barnabarnabarn. Börn Guðrúnar eru: Anna María, f. 1956, maki Þorbjörn Sigurðs- son, f. 1952. Helga Hrönn, f. 1958, maki Einar Haraldsson, f. 1954. Jón Óttar, f. 1960. Gunn- ar Þröstur, f. 1961, maki Kirs- ten Moesgaard, f. 1956. Barna- börnin eru sjö og barnabarna- börnin sex. Guðrún og Elías hófu búskap í Hattardal á hálfri jörðinni á móti systur Guðrúnar og stund- uðu búskap allt til ársins 1979 er þau fluttu til Súðavíkur þar sem Guðrún fór að vinna í fiski. Það gerði hún meðan heilsan leyfði. Árið 1994 fluttu hjónin til Reykjavíkur. Útför Guðrúnar fer fram frá Kapellunni í Fossvogi í dag, 21. júlí 2022, klukkan 13. Súðavíkur tvo vet- ur og fór síðan í héraðsskólann í Reykjanesi. Einnig stundaði hún nám í kvennaskólanum á Löngumýri í Skagafirði. Eftir kvennaskólavistina fór Stella til Reykjavíkur og var í „vist“ hjá „heldri hús- freyjum“ í Reykjavík og síðan vann hún á saumastofu hjá klæðskera. Eiginmaður Guðrúnar var Elías Gunnar Þorbergsson, f. 22.9. 1926, d. 11.5. 2005. Þau gengu í hjónaband 6. júní 1954. Á yfirborðinu var amma Stella týpísk, íslensk amma. Hún prjónaði, saumaði út, spil- aði kana, söng vísur og passaði að eiga alltaf eitthvað heima- bakað með kaffinu. Undir yfir- borðinu hafði hún þó merkilega nýmóðins skoðanir og lét fólk heyra það ef henni fannst það ganga of langt. Hún kallaði nefnilega ekki allt ömmu sína. Amma var heldur sein að kynna sér netheima en hún fékk spjaldtölvu í afmælisgjöf þegar hún varð níræð. Hún lét ekki deigan síga og var fljótlega komin með Facebook-aðgang þar sem hún nýtti tæknina til að fylgjast með sínum nánustu um allan heim. Hún lét ekki þar við sitja heldur fann hún mynd- bönd á YouTube og lærði af þeim nýjar hekluppskriftir. Hún missti aldrei áhugann á að læra eitthvað nýtt og var þann- ig dýrmæt fyrirmynd. Eitt sinn verða allir menn að deyja eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það, en samt ég verð að segja að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Elsku amma, ég mun ávallt geyma dýrmætu stundirnar sem við áttum saman. Ég er of- boðslega þakklát fyrir að þið Kristín Helga hafið náð að kynnast. Ég kveð þig með trega en veit að þú ert hvíldinni fegin. Guðrún Kristín Einarsdóttir. Elsku amma Stella, ég trúi varla enn að þú sért farin. En þú varst alveg tilbúin. Sagðir mér að sumar nætur dreymdi þig afa Ella, að hann biði eftir þér, að fá þig til sín. Hálfgerð vonbrigði að vakna upp frá slík- um draumum. En biðin er loks á enda og þú eflaust fegin því að fá loks að hvíla, og þá í faðmi afa eins og þú sást fyrir þér. Ég, og sjálfsagt við öll sem eftir sitjum, erum glöð að hafa haft þig hjá okkur svona lengi. Yfir 96 ár er langt líf en gerir það að verkum að maður verður vanur að hafa þig innan seil- ingar. Það að ekki geta hringt í þig eða komið við hjá þér, sest niður og heklað með þér, sú breyting er og verður erfið. Þú varst allt það sem ömmur áttu að vera í mínum huga sem barn. Með gráar krullur, mjúk, eldaðir góðan mat, bakaðir dýr- indis kökur, áttir alltaf ís, saumaðir, heklaðir og prjónaðir ásamt svo mörgu fleiru. Alltaf nóg að gera. Þú mundir allt og maður fékk aldrei nóg af sög- unum sem þú sagðir okkur frændsystkinunum frá æskuár- unum fyrir vestan í Hattardal. Bestu minningarnar úr minni æsku eru svo einmitt heimsókn- irnar og sumardvalirnar vestur í Súðavík, hjá ykkur afa. Það að ég fann mér svo mann á æskuslóðum afa þíns í Noregi var svo frekar sérstakt og fannst þér Morten bara al- veg ágætis strákur og góður. Ég er svo glöð að sonur okkar, Tóbías Ýmir, hafi náð að heilsa upp á þig nokkur skipti og að ykkur hafi komið svo vel sam- an, það er dýrmætt. Þú óttaðist ekki dauðann en þú áttir ekki skilið að mæta honum með þessum hætti. Ég mun sakna þín mikið og lengi, bið að heilsa afa Ella. Kata þín, Katrín Erna Þorbjörnsdóttir. Guðrún Jónsdóttir Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Ástkær bróðir minn, ÓLAFUR ÞÓR FRIÐRIKSSON verslunarmaður, áður til heimilis í Krummahólum 6, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 16. júlí. Páll Friðriksson Ástkær móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGURBORG INGUNN EINARSDÓTTIR Lambeyrarbraut 5, Eskifirði, lést á Hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð Eskifirði laugardaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju fimmtudaginn 21. júlí klukkan 14. Pétur Þór Sörensson Þórunn F. Víðisdóttir Jakobína Sörensdóttir Vilhjálmur Björnsson Helena Sörensen Jónas Þór Guðmundsson og fjölskyldur Okkar ástkæri, DANÍEL P. BALDURSSON, Hlíðarvegi 45, Siglufirði, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 16. júlí. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju 25. júlí klukkan 13 og verður streymt á: https://youtu.be/bKRNto5qoAQ Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl./andlat. Baldur Jörgen Daníelsson Guðrún Friðriksdóttir Sigurbjörg Daníelsdóttir Halldór Ó. Sigurðsson Daníel Pétur Daníelsson Rakel Gústafsdóttir og fjölskyldur Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir, DANÍEL JÓNASSON, tónmenntakennari og organisti, Vesturbergi 16, varð bráðkvaddur í Noregi laugardaginn 16. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Ingunn Lilja Leifsdottir Risbakk Ólafía Daníelsdóttir Ari Tryggvason Guðbjörg Daníelsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTBJÖRN ALBERTSSON, kennari og Njarðvíkingur, lést á krabbameinsdeild LSH mánudaginn 18. júlí. Útför hans fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 26. júlí klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Ungmennafélag Njarðvíkur. Jóhannes A. Kristbjörnsson Guðrún S. Jóhannesdóttir Jens Kristbjörnsson Sesselja Woods Kristinsdóttir barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.