Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 40

Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 40
nóvember 1991 og er sonur þeirra Brimar Leví, f. 2019. Faðir Alex- anders er Pétur Perpetuini Pét- ursson, f. 12. ágúst 1971. Skúli á dótt- urina Antoníu Eiri, f. 28. janúar 2000, móðir hennar er Lovísa Hannes- dóttir, f. 4. maí 1978. Foreldrar Skúla eru Ingi Rúnar Árnason, f. 13. febrúar 1942 og Hildur Theódórsdóttir, f. 9. apríl 1950, d. 11. mars 2009. Hólmfríður ólst upp í Mos- fellsbæ og bjó þar alla tíð fyrir utan námsárin í Danmörku. Hún gekk í Varmárskóla og Gagn- fræðaskóla Mosfellsbæjar. Hún sótti nám í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og lauk þaðan stúd- entsprófi árið 2001. Hún lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og cand. psych í sálfræði frá Háskólanum í Ár- ósum árið 2008. Auk þess lauk hún diplómanámi í fjölskyldu- meðferð árið 2011 og árið 2019 lauk hún tveggja ára sérnámi í hugrænni atferlismeðferð. ✝ Hólmfríður Dögg Einars- dóttir sálfræðingur fæddist í Reykjavík 13. apríl 1976. Hún lést í faðmi fjöl- skyldunnar á heim- ili sínu 9. júlí 2022. Foreldrar henn- ar eru Þórhildur Magnúsdóttir, f. 31. maí 1949 og Einar Finnbogason, f. 6. júní 1946. Systkini hennar eru: 1) Berg- lind Einarsdóttir, f. 4. október 1968. Börn hennar eru Steinar Þór Kristjánsson, f. 1993 og Jenna Katrín Kristjánsdóttir, f. 1994. 2) Finnbogi Einarsson, f. 10. október 1980, maki Jurgita Mazeikaité, f. 27. febrúar 1989. Dóttir þeirra er Rebekka, f. 2015. Hólmfríður giftist Skúla Theódóri Ingasyni, f. 30. júlí 1973, þann 7. júní 2019. Börn þeirra eru Theódór Ingi, f. 28. október 2004 og Anton Elí, f. 27. júlí 2007. Fyrir átti Hólmfríður Alexander Leví Pétursson, f. 21. nóvember 1994, maki hans er Hildur María Olafsdóttir, f. 29. Hólmfríður gegndi ýmsum störfum á starfsferlinum en öll tengdust þau umönnun og sál- gæslu. Á árunum 1999-2005 starfaði hún á sambýlinu í Hulduhlíð og á árunum 2008 til 2010 sem stuðningsfulltrúi í þjónustuíbúðum í Þverholti, hvorutveggja í Mosfellsbæ. Hún tók svo við starfi forstöðumanns þar árið 2010 og starfaði sem slíkur til 2017. Árið 2015 hlaut búsetukjarninn í Þverholti, sem hún veitti þá forstöðu, jafnrétt- isviðurkenningu Mosfellsbæjar fyrir að vinna markvisst að því að hafa jöfn kynjahlutföll í starfsmannahópnum. Hólm- fríður gegndi starfi sálfræðings barna hjá Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðisins á Heilsu- gæslunni í Mosfellsbæ á árunum 2016 til 2019. Frá 2020 vann hún sem sálfræðingur og fjöl- skyldufræðingur hjá Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins í Geðheilsuteymi Austur. Hólmfríður stofnaði og rak Fjölskyldu- og sálfræðistofuna Áleiðis ásamt samstarfskonu frá 2011 til 2018. Þá vann hún sem verktaki á hinum ýmsu stöðum í gegnum tíðina, m.a. hjá Erindi – samtökum um samskipti og skólamál, hjá Domus Mentis – geðheilsustöð og hjá Auðnast. Útför Hólmfríðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 21. júlí 2022, og hefst athöfnin kl. 13. Elskulega dóttir okkar. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Elsku Skúli, Alexander Leví, Theódór Ingi, Anton Elí, Antonía Eir, Hildur og Brimar Leví, við vitum að hún er í góðum drottins höndum. Mamma og pabbi. Ástkær mágkona okkar og svilkona, Hólmfríður Dögg Ein- arsdóttir, lést heima í faðmi fjöl- skyldunnar 9. júlí sl. Það er með trega sem við kveðjum elsku Fríðu. Hún var yndisleg kona, ró- leg, yfirveguð, hreinskiptin, góð móðir og eiginkona. Hún var sál- fræðingur að mennt, sá misjafnar breytur fólks vel, starfið valdi hana. Fríða fór alltof snemma, 45 ára með heimili í fullu fjöri, þvílík ósanngirni, við trúum því að hún sé komin til annarra starfa en fylgist áfram með þeim sem sitja eftir. Okkur langar að minnast ferð- arinnar til Gunnu og Sean í Li- titz, Pennsylvaniu, í desember 2017. Ferðin var ógleymanleg. Fríða hefur aldrei verslað eins mikið, að hennar sögn, fullar töskur geystust um rými vélar- innar og Fríða alsæl með góssið. Það er skrítið til þess að vita að Sean, mágur og svili okkar, lést úr krabbameini 6. janúar 2021, varla þremur árum eftir heim- sókn Fríðu og Skúla. Hverjum hefði dottið í hug að þau ættu eft- ir að deyja snemma frá fjölskyldu svo fljótt. Lífið er hverfult, covid tók völdin, við sáum lítið til Fríðu á þessum erfiðu tímum, það mátti ekki hittast. Við hittumst þó fyrr á árinu þegar pabbi/tengdapabbi átti 80 ára afmæli. Fríða átti þá góðan dag, það var gaman og gott að hittast. Fjórum dögum áður en Fríða lést átti Árni gott spjall við Fríðu um lífið og tilveruna. Æðruleysið hjá henni var svo magnað, hún ræddi lífið og dauð- ann svo opinskátt. Við erum þakklát fyrir að hafa þekkt Fríðu, hún var, eins og áður sagði, ynd- isleg og mögnuð manneskja. Elsku Skúli og fjölskylda. Við vottum ykkur okkar dýpstu sam- úð . Minning um fagra mann- eskju lifir áfram. Árni Rúnar Ingason og Eygló Eyjólfsdóttir. Hólmfríður Dögg hefur kvatt. Þessi fallega og duglega systur- dóttir mín hefur horfið á braut í blóma lífsins. Hennar verður sárt saknað. Fyrsta minning mín er þegar ég sá hana nýfædda. Hún var sér- staklega fríð, dökk, fínleg og með djúpt hökuskarð. Í gegnum árin hef ég fylgst með henni og alltaf kom hún á óvart. Hún eignaðist Alexander sinn ung og voru þau tvö ein í nokkur ár. Hún menntaði sig og eignaðist íbúð. Hún var ákveðin og gerði hlutina og var ekkert að tala um þá. Síðan kynnist hún Skúla og eignast þau tvo flotta stráka. Fríða hélt áfram að mennta sig og voru þau í Árósum í Dan- mörku í nokkur ár á meðan hún lauk námi sínu. Hún var komin í draumastarf- ið og allt var eins og það átti að vera, orðin amma sem veitti henni mikla gleði en þá kom höggið. Þrátt fyrir erfið veikindi sýndi hún mikinn styrkleika. Hún stóð eins og klettur gagn- vart fjölskyldunni og átti margar gæðastundir með mömmu sinni. Hún var ávallt boðin og búin að aðstoða foreldra sína. Það er erfitt að hugsa til þess að hún sé farin, þessi góða mamma, amma og mikla fjöl- skyldumanneskja sem hugsaði fyrir svo mörgu. Hugur minn er hjá fjölskyldu Fríðu, Skúla, börnunum, tengda- dóttur, barnabarni, foreldrum, systkinum og fjölskyldum þeirra. Góður guð veiti ykkur styrk í sorginni. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Unnur. Elsku Fríða. Við höfum verið vinkonur allt frá því að þið Ásta funduð mig á moldarbing úti í garði þegar ég var fimm ára, nýflutt í Mos- fellsbæinn sumarið 1982 og spurðuð hvort ég vildi leika. Síð- an eru liðin 40 ár. Sambandið hef- ur verið mismikið í gegnum tíðina en þráðurinn er sterkur þannig að þó stundum hafi liðið langt á milli þess að við hittumst var allt- af eins og það hefði verið í gær. Ég er þakklát fyrir ótal minn- ingar og samverustundir sem við höfum átt í gegnum tíðina. Þú varst svo umhyggjusöm og alltaf tilbúin að hlusta og gefa ráð. Hugsaðir oft meira um aðra en sjálfa þig. Við gátum alltaf talað saman um allt milli himins og jarðar og urðum aldrei uppi- skroppa með umræðuefni. Þú vildir hafa fallegt og snyrti- legt í kringum þig og varst sjálf alltaf vel tilhöfð. Þið Skúli og fjöl- skylda voruð búin að koma ykkur vel fyrir í nýja húsinu og búa ykk- ur fallegt heimili. Það er sárt til þess að hugsa að þið hafið ekki fengið meiri tíma til að njóta þess saman. Mér er minnisstæð heimsókn þín í Stykkishólm með Theódóri Inga og Antoni Elí. Hún varð svolítið styttri en ætlunin var því þið voruð komin vel áleiðis til Ak- ureyrar þegar það fattaðist að þið hefðuð gleymt að beygja. Við gát- um sem betur fer bara hlegið að því og áttum notalegan tíma sam- an og spiluðum með krökkunum og borðuðum góðan mat. Krakk- arnir okkar voru góð saman og strákarnir þínir einstaklega barngóðir. Við saumaklúbburinn höfum svo brallað ýmislegt saman. Far- ið í bústað, leikhús og þess háttar og fertugsferðin til Amsterdam verður lengi í minnum höfð. Óvæntar dag- og kvöldstundir með þér og Ástu stóðu líka alltaf fyrir sínu. Ég vona að þú vitir hvað ég er stolt af þér, kæra vinkona. Þú stóðst þig svo vel í því sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú varst klettur í lífi margra sem eiga nú um sárt að binda. Elsku Fríða mín, ég er þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með þér. Þú varst einstök og munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Þín er sárt saknað en minningin um þig mun lifa. Við vottum Skúla, Alexander Leví, Theódóri Inga, Antoni Elí, Antoníu Eir, Hildi, Brimari Leví, Lólý og Einari og öðrum að- standendum innilegar samúðar- kveðjur. Hulda Margrét Rúts- dóttir og fjölskylda. Elsku besta Fríða. Ég á svo erfitt með að koma öllum hugs- unum mínum niður á blað, þetta er ennþá svo sárt og óraunveru- legt. Það er svo óréttlátt að þú sért tekin burt frá okkur öllum svona ung, þú varst alltaf svo yndisleg og vildir öllum svo vel. Frá því að ég hitti þig fyrst höf- um við alltaf verið mjög góðar vinkonur og hefði ég ekki getað valið mér betri stjúpmömmu. Það var alltaf svo gott að tala við þig, leita til þín og þú varst alltaf tilbúin að hlusta. Ég á svo marg- ar góðar minningar um vináttu okkar og mun ég varðveita þær vel. Mikið á ég eftir að sakna þín, allra samverustundanna og góðu spjallstundanna sem við áttum. Ég veit að ég mun hitta þig aft- ur seinna en þangað til munum við passa hvert upp á annað, við pabbi, Hildur og strákarnir. Hugsa í þögninni. Enn og aftur falla tárin. Allt er hljótt. Eitt lauf enn hefur fallið af fallega trénu. (Solla Magg) Elska þig. Þín Antonía Eir. Elsku Fríða, það er eitthvað svo fjarstæðukennt að ég skuli sitja hér og skrifa minningar- grein um þig, yndislega góða og trausta vinkona mín. Að þú sért farin, að ég muni aldrei sjá þig, knúsa þig, tala við þig eða hlæja með þér aftur. Mikið á ég eftir að sakna þín. Þegar ég sit hér og skrifa þessi orð, streyma fram tárin og allar minningarnar. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar við unnum á næturvöktum á Reykjalundi og svo seinna í Hulduhlíðinni. Við áttum það sameiginlegt að vera ungar mæð- ur og áttum stráka sem fæddir voru á sama ári, Alexander og Daníel. Ég minnist þess þegar við hittumst með þá, þegar þeir voru yngri og þeir léku saman á meðan við spjölluðum um allt á milli himins og jarðar. Seinna fluttum við báðar til Árósa í Dan- mörku og bjuggum í sömu götu, Bøgehaven. Þaðan á ég ótrúlega margar góðar minningar með þér. Yngstu börnin okkar fædd- Hólmfríður Dögg Einarsdóttir 40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS SIGURLAUG FRIÐRIKSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, áður til heimils á Hrannargötu 1, Ísafirði, lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu Sléttuvegi, Reykjavík, laugardaginn 16. júlí. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 25. júlí klukkan 15. Hafþór Einar Guðbjartsson Deljane Kum-Naksch Helgi Þór Guðbjartsson Berglind Ólafsdóttir Rakel, Þórdís og ástvinir Okkar ástkæra, TELMA KJARTANSDÓTTIR, Ljósalandi 20, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 9. júlí. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 26. júlí klukkan 15. Óskar Alfreð Beck María Ósk Beck Jakub Biegaj Kjartan Magnússon Magnús Ingi Kjartansson Silja Kjartansdóttir Gísli Óskarsson Hildur Petersen Halldór Kolbeinsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GYLFI KRISTINN SIGURÐSSON ökukennari, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð að morgni fimmtudagsins 14. júlí. Útförin fer fram frá Lindakirkju miðvikudaginn 3. ágúst klukkan 15. Jensína Sigurborg Jóhannsdóttir Guðrún Helga Gylfadóttir Bjartmar Bjarnason Sigurður Smári Gylfason Hulda Ruth Ársælsdóttir Jóhanna María Gylfadóttir Elías Þór Pétursson Steinunn Margrét Gylfadóttir Helgi Mar Hallgrímsson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN FRIÐGEIR KÁRASON, bóndi og fyrrverandi oddviti frá Ketilsstöðum, Tjörnesi, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 13. júlí. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 25. júlí klukkan 14. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar. Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðu Húsavíkurkirkju. Einnig má nálgast hlekk á streymi á mbl.is/andlat. Anna María Sigurðardóttir börn tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, LILJA SIGRÍÐUR JENSDÓTTIR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, andaðist sunnudaginn 10. júlí. Jarðsett verður frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 23. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða. Guðrún Erla Guðlaugsdóttir Ingólfur Geirdal Rúnar Helgi Bogason Helga Guðlaugsdóttir Pétur Laxdal Svanhildur Guðlaugsdóttir Jóhannes Ólafsson Gylfi þór Guðlaugsson Erna Guðlaugsdóttir Hlynur Leifsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.