Morgunblaðið - 21.07.2022, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 21.07.2022, Qupperneq 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 ✝ Sigríður Bern- höft (Siddý) fæddist 30. ágúst 1949. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 7. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru Dómhild- ur Guðmunds- dóttir, f. 3. ágúst 1924, d. 8. nóv- ember 2011, og Árni Valdimarsson, f. 6. des- ember 1923, d. 16. maí 2004. Systkini Sigríðar eru Magnús Árnason, f. 1953, og Marta Árnadóttir, f. 1956. Sigríður giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Birgi Bern- höft, f. 11. apríl 1948, hinn 8. nóvember 1969. Foreldrar hans voru Kristrún Bernhöft, f. 5. nóvember 1908, d. 8. febr- úar 1990, og Jóhann Gotfred, f. 12. janúar 1905, d. 29. sept- ember 1964. Börn Sigríðar og Birgis eru: 1) Gotti, f. 26. febrúar 1970. Börn hans og Valgerðar Helgu Schopka eru Júlía Helga, Júlí Mosi og Lilja Ljós. 2) Árni Valdi, f. 19. apríl 1976. Börn hans og Ingibjargar Ás- dísar Ragn- arsdóttur eru Andrea Örk og Birgir Rafn. 3) Kristrún Helga, f. 25. febrúar 1982. Börn hennar og Kristófers Þórs Pálssonar eru Árni Kristinn, Brynjar Páll og Elísabet Guðrún. Eftir hefð- bundna skólagöngu vann Sig- ríður hjá Eimskip og síðar Blossa allt þar til hún stofnaði ásamt eiginmanni sínum og foreldrum byggingavöruversl- unina BB Byggingavörur. Skólagöngu Sigríðar var ekki lokið og hún fór í Öldunga- deild Menntaskólans í Hamra- hlíð þar sem hún kláraði stúd- entsnámið. Eftir pásu frá námi lá leið hennar í Kennarahá- skólann þar sem hún tók kennsluréttindi og fór svo til Englands í framhaldsnám og bætti við sig sérkennslurétt- indum og vann við það bæði í Hjallaskóla og Árbæjarskóla. Útför Sigríðar fer fram frá Kópavogskirkju, í dag, 21. júlí 2022, klukkan 13. Í dag kveðjum við móður mína, Sigríði Bernhöft (Siddý). Mamma hafði glímt við krabba- mein í tæp tvö ár og fór bæði í uppskurð og lyfjameðferð vegna þess. Hún hafði mikla trú á meðferðinni og ætlaði að sigra. Lokaorrustuna bar brátt að, stóð stutt yfir og kom frá- fallið okkur öllum á óvart. Eftir sitja nánastu ættingjar og syrgja og á tíma sem þessum eru minningar og þakklæti efst í huga. Helstu áhugamál mömmu voru lestur, ferðalög, skíði og golf síðar meir og var henni mikið í mun að iðka sín áhuga- mál með fjölskyldunni. Á ég góðar minningar úr barnæsku frá skíðaferðum fjölskyldunnar í Bláfjöllum, í Kerlingarfjöllum, á Akureyri og einnig erlendis. Minningar um útiveru, samveru og heitt kakó með roða í kinn- um eftir góðan dag ylja. Fjöl- skylduferðirnar erlendis voru ófáar og allar skjalfestar með ljósmyndum sem gleðja svo sannarlega í dag. Mömmu var afar umhugað um að afkomendur hennar fengju tækifæri til að hafa un- un af sömu áhugamálum og hún. Svo mikið að oftar en ekki leyndist skíða- eða golfbúnaður í afmælis- eða jólapökkum okk- ar systkinanna eða barna- barnanna. Þá var sett upp golf- grín og teigar á sumar- bústaðalandið og hinsta ósk hennar var að við fjölskyldan færum saman erlendis í skíða- ferð, með eða án hennar. Mamma var kennari af lífi og sál og lagði m.a. mikið upp úr því að undirbúa barnabörnin undir grunnskólagöngu. Nánast öll okkar síðustu samskipti snerust um það hvenær hún gæti hitt Elísabetu (sex ára), dóttur mína, til þess að kenna henni að lesa. Síðasta hugmynd sem hún fékk í þeim efnum var að ég kæmi með hana austur í bústað og færi í golf með pabba á meðan hún læsi með Elísa- betu. Þarna náði hún að slá ansi margar flugur í einu höggi (fá fjölskyldumeðlimi í bústað- inn, senda mig og pabba í golf og lesa með Elísabetu, tékk, tékk, tékk!). Það er ekki hægt að minnast mömmu án þess að nefna sum- arbústaðinn á Laugarvatni en þar átti hún sitt annað heimili með pabba. Þar leið henni vel, naut samvista með pabba, spil- aði golf á Dalbúa, eldaði góðan mat og fékk oft á tíðum fjöl- skyldumeðlimi eða vini í heim- sókn. Það gladdi mömmu mikið að sjá barnabörnin njóta sín í bústaðnum og umbúnaðurinn slíkur að yngri meðlimir geta spriklað frjálsir um landareign- ina, hoppað á trampólíni, farið í pottinn, rólað eða rennt sér í rennibraut, slegið golfkúlur inn á grín eða spilað fótbolta. Ein- hvern veginn held ég að andi hennar verði alltaf með okkur þar framvegis, sitjandi á pall- inum með dagblað að fylgjast með barnabörnunum, með hvít- vínsglas fyrir matinn í gleði- stund með fjölskyldunni, eða segjandi kaldhæðna brandara við matarborðið. Mamma var afar raunsæ og jarðbundin manneskja, laus við sýndarmennsku og prjál. Hún var kannski ekki hávær og fyr- irferðarmikil en nærvera henn- ar mikilvæg engu að síður. Elsku mamma, ég þakka þér fyrir samfylgdina öll þessi ár og fyrir lífsspekina sem þú gafst mér. Við höldum minn- ingu þinni á lofti í bústaðnum, á skíðum, í ferðalögum og í golfi. Megir þú hvíla í friði. Kristrún Bernhöft. Nú hefur elskulega amma mín kvatt þennan heim eftir hetjulega baráttu við krabba- mein. Ég mun svo innilega sakna þess að borða kvöldmat á kvöldin og hlusta á hana segja mér sögur frá því að ég var lítil eða þegar við fórum um ferða- lög um Ísland og hún sagði okkur alltaf hvar við værum á landinu. Ég elska þig alltaf og mun sakna þín að eilífu. Andrea Örk Bernhöft. Kæra Sigríður er látin eftir erfið veikindi. Við kynntumst fyrir 45 árum þegar við festum kaup á húsum í nýju hverfi fyr- ir norðan Nýbýlaveginn. Þar voru enn smábýli, þar sem fólk- ið drýgði tekjurnar með alls kyns ræktun. Það var nóg pláss í Fossvogsdalnum og eftir Vestmannaeyjagosið var skipu- lagt þarna nýtt hverfi, Snæ- landshverfið. Svo mætti unga barnafólkið og kom sér upp þaki yfir höfuðið. Þarna hitt- umst við Siddý fyrst, eigin- menn okkar og börnin. Hún var með soninn Gotta og ég með Völu og Júlíus. Þarna kynntust þau og léku sér saman í allri ringulreiðinni á byggingar- svæðinu. Niðri í dalnum var yndislegt óbyggt svæði fyrir okkur nýbúana og börnin. Árni Valdi fæddist á þessum árum og svo seinna Sissa systir þeirra bræðra og Rúna bættist í systkinahópinn hjá mér. Börnin stækkuðu og varð vel til vina. Komu í barnaafmæli og við foreldrarnir fylgdumst með. Birgir Bernhöft, eiginmaður Siddýjar, átti það til að baka gómsætar kökur eins og hann á kyn til. Birgir er líka snillingur að leggja gott til málanna, sem kom sér vel í hverfi sem var í byggingu. Á þessum árum voru Siddý og Birgir að byggja upp fyrirtæki sitt, BB byggingar- vörur, sem var innarlega á Suð- urlandsbraut. Ég man svo vel eftir að á tímabili fór Siddý fót- gangandi að heiman frá Birki- grund og alla þessa leið á vinnustað og það á tímum þeg- ar ekki var svo algengt eins og seinna varð að ganga svona langar leiðir í vinnu. Ég dáðist svo að henni og man hvað hún var alltaf smekklega klædd. Seinna settist Siddý aftur á skólabekk og lauk stúdents- prófi. Svo kom að því að hún menntaði sig frekar og hélt til Bretlands og lagði stund á kennslufræði og stærðfræði. Alltaf vann hún jafnframt við fyrirtæki þeirra hjóna en eftir námsdvölina sneri hún sér að kennslu. Mikið fannst mér hún dugleg, sannkölluð kjarnorku- kona. Þau reistu sér sumarbú- stað á Laugarvatni. Einhverju sinni vorum við hjónin stödd þar og rákumst á þau og það kom ekki annað til greina en að bjóða okkur heim í kvöldverð í bústaðinn og fara í skoðunar- ferð um svæðið. Þegar ég eign- aðist mitt þriðja barn var þriðja barnið hjá nágrönnunum aðeins eldra og Siddý gaf mér fötin sem dóttirin var vaxin upp úr. Það kom sér vel fyrir okkur í blankheitum á hús- byggingarárunum. Mörgum ár- um seinna endurnýjuðu Gotti og Vala dóttir mín kynnin og eignuðust saman þrjú börn. Þá eignuðumst við nágrannarnir fyrsta barnabarnið í báðum fjölskyldum, Júlíu Helgu, sem lauk stúdentsprófi 4. júní sl. Þar hittumst við afarnir og ömmurnar, glöddumst og átt- um yndislega stund saman. Siddý leit svo vel út og það var ekki hægt að merkja að hún væri alvarlega veik. Við von- uðum að hún ætti lengri lífdaga fyrir höndum en rúmum mán- uði seinna andaðist elsku Siddý. Við eigum minningar um yndislega konu sem reynd- ist barnabörnunum okkar svo vel. Við kveðjum hana með þökk í hjarta og vottum Birgi og allri fjölskyldunni innilega samúð. Helga Skúladóttir. Látin er góð vinkona, Sigríð- ur Bernhöft, Siddý, ekki grun- aði okkur að svona stutt væri eftir, hélt að ég hefði nægan tíma til að kalla á ykkur í kaffi, sé eftir því. Við Siddý kynntumst í Öld- ungadeildinni í Hamrahlíð 1976, hún mikill námsmaður en ég skrölti í gegn. Ég dáðist að dugnaði hennar, Kennaraskól- inn og svo sérmenntun í Eng- landi þar sem hún fór ein. Við kynntumst Birgi manni hennar fljótt og börnunum, úr varð einstakur vinskapur og samgangur mikill. Stutt var að milli heimila okkar, aðeins Fossvogslækurinn á milli, þau í Kópavogi og við í Fossvogi, var oft rölt á milli. Siddý var góður kokkur og óhrædd að prófa nýja hluti, voru matarboðin mörg og alltaf gaman að koma í Birkigrundina. Ferðirnar voru margar sem við fórum í og oft í stórum hópi vina, skíði í Kerl- ingarfjöllum fyrstu helgi í júlí í mörg ár, skíðaferðirnar til Ak- ureyrar í mörg ár, þá erum við búin að fara á Vínartónleika í yfir þrjátíu ár held ég og hefur Birgir haldið utan um þann við- burð. Ógleymanleg er ferð Vín- arvina til Búdapest 2018. Sum- arbústaðaferðirnar voru líka allmargar. Síðasta ferð okkar var golfferð til Orlando en loks tókst Siddý að draga okkur með þangað en það var korter í Covid, ferð sem við geymum og varðveitum í minningunni. Siddý hafði mjög gaman af að spila golf og var ótrúlegt hvað hún náði góðum árangri þrátt fyrir sína gigt. Börnin okkar minnast margra góðra stunda með fjöl- skyldunni og þakka fyrir þær, við Bjarni þökkum Siddý fyrir áralanga vináttu, sorglegt að árin hafi ekki verið fleiri. Elsku Birgir og fjölskylda, við send- um ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum al- mættið að leiða ykkur. Steingerður. Elsku Siddý. Þú fórst allt of fljótt frá okkur, en þegar krabbamein tekur völdin þá ráðum við engu. Við höfum átt margar góðar stundir í sum- arbústaðnum síðustu 20 árin en næstu ár verða ekki eins án þín. Þegar Gotti og Mæja buðu upp á hvílaukssnigla um daginn í sumó fórum við að rifja upp kvöldið þegar þú og Haddi feng- uð ykkur hvítlaukssnigla á Gulna hananum fyrir ca. 40 ár- um. Eftir matinn fórum við á Brodway í Breiðholti og ætl- uðum við að fá okkur drykk á barnum. Það var biðröð þegar við komum en hann tæmdist strax, þannig að við þurftum ekkert að bíða. Barþjónninn sem reyndar var vinur okkur bað okkur vinsamlegast að færa okkar þar sem við lyktuðum svo mikið af hvítlauk að enginn gat verið nálægt okkur. Áður en við yfirgáfum barinn gaf hann okk- ur sítrónu og steinselju til þess að slá á hvítlaukslyktina en það má segja að við vorum ekki hús- um hæf þetta kvöld. Það sem stendur upp úr síð- ustu árin var ferðin okkar til Chile í Suður-Ameríku. Ógleymanleg ferð þar sem við áttum mjög góðar stundir sam- an með Grími og Binnu rétt fyrir Covid. Þar eyddum við saman 3 vikum og ég held að við getum fullyrt að við höfum aldrei gert eins mikið eins og við gerðum þessar vikur. Við byrjuðum á að skoða vínhéruð norðarlega í Chile sem voru í ótrúlega fallegu umhverfi, síð- an var farið með flugi til Buenos Aires í Argentínu þar sem við borðuðum góðan mat og drukkum góð vín og skoð- uðum þessa fallegu borg. Við skoðuðum mjög skemmtilega skíðabæi í Argentínu og Chile og enduðum svo sunnarlega í Chile hjá Grími og Binnu. Sumó er búinn að vera okkar staður og þar fannst þér best að vera eins og okkur. Við vit- um að þú verður með okkur í öllu því sem við erum að gera og framkvæma og passar upp á að golfflötin þín verði nú vel slegin. Birgir, Gotti, Árni, Sissa og fjölskylda. Við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Marta og Hafsteinn. Sigríður Bernhöft ✝ Guðbjörg Þór- isdóttir fæddist í Neskaupstað 28. ágúst 1936. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 12. júlí 2022. Guðbjörg var dóttir hjónanna Guðna Þóris Ein- arssonar, f. 15.5. 1913, d. 29.9. 1978, og Elísabetu Sigþrúðar Berg- mundsdóttur, f. 21.3. 1916, d. Klöru Jónasdóttur, Arndísi Hjartardóttir, f. 27.9. 1961, gift Vilhjálmi Skúlasyni, og Sigþór Hjartarson, f. 14.2. 1968, giftur Heiðlóu Ásvaldsdóttur. Hjörtur og Guðbjörg áttu saman níu barnabörn og fjórtán barna- barnabörn. Guðbjörg var fædd í Norð- firði og bjó þar alla sína ævi. Hún fór snemma að vinna í fiski í frystihúsinu og vann þar alla sína starfsævi ásamt því að sinna störfum húsmóður. Guðbjörg og Hjörtur voru ung þegar þau kynntust og giftu þau sig 24. maí 1958. Þau bjuggu alla sína búskapartíð í Neskaupstað. Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag, 21. júlí 2022, klukkan 14. 10.7. 1981. Guð- björg átti tvö yngri systkini, þau Guð- nýju Þóru Þór- isdóttur, f. 5.7. 1941, d. 26.2. 1981 og Jóhann Ævar Þórisson, f. 19.2. 1946. Guðbjörg var gift Hirti Arnfinns- syni, f. 5.11. 1936, d. 29.10. 2019. Sam- an áttu þau þrjú börn, Kristin Hjartarson, f. 10.10. 1958, giftur Elsku amma, þú varst mér svo kær. Ég á svo margar góð- ar minningar með þér, þú varst mér alltaf svo innilega góð. Þú nánast gekkst mér í móðurstað þegar mamma veiktist og ég einungis fimm ára gömul. Ég man alltaf eftir þeim tíma, allt- af nóg af poppi, ís, spilum og knúsum. Ég fékk alltaf að kúra á milli ykkar afa og þar fannst mér langbest að vera, vildi ekki sjá það að vera í gestaherberg- inu og það skipti ykkur aldrei neinu máli. Þú söngst fyrir mig á hverju kvöldi úr söngbókinni þinni það þótti mér alltaf ynd- isleg gæðastund. Kanaríferðirnar okkar eru mér ofarlega í minni. Mér þótti svo gaman að fara með ykkur til útlanda og gat óspart platað ykkur afa í að fara að kaupa „bara einn ís“ í viðbót. Þið vild- uð endalaust leika við mig og ef ég stakk upp á einhverju þá var svarið alltaf já. Ég kom daglega til þín alla mín barnæsku því hjá ykkur afa var yndislegt að vera. Einn- ig leitaði ég stíft til þín með prjónaverkefnin mín úr skólan- um þar sem ég bað þig um að- stoð. Svo var prjónaverkefnið fljótt búið og prjónakennarinn hrósaði mér sífellt fyrir flott prjón þó svo að hana grunaði að einhver annar en ég hafi verið að verki. Sem barn og sem fullorðin var svo gott að koma til ykkar afa, ég var alltaf velkomin og fann fyrir svo mikilli ást og um- hyggju í hverri heimsókn. Allt- af tilbúin með nýbakaðar kræs- ingar og mjólk eða djús sem varð svo kaffi á mínum eldri ár- um. Okkar tími saman hefur verið mér svo afar dýrmætur og ég myndi ekki vilja breyta neinu, þú ert langbesta amma sem nokkur gæti hugsað sér. Eins og þú sagðir svo oft við mig „ég skil ekki fólk sem hef- ur ekki gaman af því að eyða tíma með barnabörnunum sín- um, fjölskyldan er mér það dýrmætasta og svo mikilvægt að halda góðum tengslum“. Þið afi stóðuð svo sannarlega við þessi orð því það þótti öllum alltaf svo gott að koma til ykk- ar og vera. Ég elska þig amma mín. Elísa Krist- insdóttir. Langamma Guðbjörg var mjög góð kona og ég sakna hennar mjög. Alltaf þegar ég kom til hennar beið opinn faðmurinn eftir mér. Hjá henni voru alltaf pönnsur og prjóna- dót. Nú er hún alltaf hjá okkur í hjartanu. Hvíldu í friði, elsku langamma. Rúna Guðbjargardóttir Petersen. Elsku amma. Mikið er erfitt að kveðja þig og heyra ekki röddina og hláturinn þinn leng- ur. Amma átti sérstakan stað í hjarta okkar allra. Við eigum það öll sameiginlegt að hafa varið miklum tíma hjá henni og afa í gegnum tíðina. Það vildu allir vera hjá ömmu og afa en það var alltaf fyrsta val, bæði þegar átti að fara í pöss- un og seinna meir þegar farið var í morgunkaffibollann. Þeg- ar við vorum lítil spiluðum við og sungum saman sem breytt- ist svo í spjall eftir því sem við eltumst. Þá var iðulega rætt um gamla tíma og oft gat amma stungið kvæðum inn í spjallið. Amma sýndi okkur öllum áhuga, var dugleg að hringja, fylgjast með okkar lífi og heim- sækja okkur. Hún var mikill þátttakandi í lífi okkar allra og ef hún var ekki á staðnum sagðist hún koma á kústinum. Amma hafði endalausa þolin- mæði fyrir okkur og okkar mis- góðu hugmyndum í gegnum tíð- ina, það var einhvern veginn alveg sama hvað við gerðum, hún klappaði okkur á bakið og fann eitthvað jákvætt, stundum þannig að tengdabörnunum þótti nóg um. Amma var sérlega flink í handavinnu hvort sem það var að hekla, prjóna, sauma eða bródera. Hún passaði vel upp á afkomendur sína og í dag get- um við ekki aðeins yljað okkur við fallegar minningar, heldur einnig í prjónaafurðum hennar og er af nógu að taka. Amma var alltaf vel til höfð og hafði gaman að því gera sig fína og punta sig. Einkenndi hana glys og litagleði þó að fjólublár hafi alltaf verið í miklu uppáhaldi. Amma hafði þann hæfileika að kortleggja sögu þeirra afa í gegnum heimilið og má segja að það endurspeglaði þau, þeirra líf og áhugamál. Alltaf stóðu dyrnar hjá ömmu og afa opnar og var mik- ið um gestakomur enda þau með eindæmum frændrækin og höfðingjar heim að sækja. Allt- af var til heimabakað bakkelsi og munu minningarnar um all- ar pönnukökurnar ylja okkur um ókomna tíð. Takk fyrir allt sem þú hefur gert og fyrir það sem þú hefur verið, elsku amma. Þú ert sú allra besta. Það er örlítil hugg- un að vita að þú sért komin til afa en við vitum að þú hefur saknað hans mikið. Mikið eigum við eftir að sakna þess að hafa þig hjá okk- ur en minningin um dásamlega konu lifir í hjörtum okkar að ei- lífu. Amma, við elskum þig og biðjum að heilsa afa. Þín ömmubörn, Hjörtur, Margrét,- Guðbjörg, Eva, Skúli, Ásvaldur, Freyja og Arnfinnur. Guðbjörg Þórisdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.