Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 44

Morgunblaðið - 21.07.2022, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022 ✝ Nanna Sæ- mundsdóttir fæddist 5. ágúst 1950 í Skagafirði. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hömrum 10. júlí 2022. Foreldrar hennar voru Sæ- mundur Jónsson, f. 28. nóvember 1915, d. 13. maí 1993, og Mínerva Gísladóttir, f. 14. september 1915, d. 9. febrúar 1998. Systkini Nönnu: Erla, f. 1936, d. 2010, Jón, f. 1939, Soffía, f. 1940, Sig- urbjörg, f. 1942, Oddný, f. 1943, Sigríður, f. 1946, d. 2014, Gísli, f. 1947, drengur, f. 1949, d. 1949. Nanna ólst upp á Bessastöð- um í Sæmundarhlíð. Hún klár- börn Nönnu eru sex talsins: Bjarmi Leó, Daníel Smári, Nanna, Stefán Ingi, Davíð Þór og Arnar Freyr. Nanna hafði unun af að ferðast með fjölskyldu og vin- um. Bakstur og eldamennska áttu stóran sess í hennar lífi og hafði hún gaman af að undirbúa veislur með systrum sínum og taka á móti fjöl- skyldu og vinum. Það verður nú samt að segjast að hennar helsta áhugamál voru barna- börnin og hlúði hún að þeim af einstakri natni. Sjúkraliða- starfinu unni hún af öllu hjarta, hún naut þess að starfa á Landspítalanum og eignaðist hún þar sínar bestu vinkonur. Nanna var heilsuhraust lengst af en árið 2018 greind- ist hún með alzheimersjúk- dóminn sem tók hana alltof hratt. Síðasta rúma árið bjó hún á hjúkrunarheimilinu Hömrum. Nanna verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju í dag, 21. júlí 2022, klukkan 13. aði barnaskóla Staðarhrepps og vann í verslun Bjarna Har á Sauðárkróki, við matseld á Hólum í Hjaltadal og Sól- heimum í Gríms- nesi. Nanna flutti til Reykjavíkur 1971 og lauk sjúkraliðaprófi frá Landspítalanum það sama ár. Á Landspít- alanum vann hún sleitulaust á árunum 1971-2017, lengst af á deild 11-B. Árið 1971 giftist Nanna Stefáni Helgasyni, f. 19. sept- ember 1934, d. 27. febrúar 2017. Fyrir átti Stefán börnin Skafta, Þórólf og Helgu. Börn Stefáns og Nönnu eru Hlynur Freyr og Bylgja Rún. Barna- Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku mamma. Okkur fannst þetta ljóð segja svo margt um síðustu ár. Við erum svo þakklát fyrir þig og árin sem við áttum saman. Við brölluðum margt, utanlands- ferðir, sumarbústaðaferðir, sunnudagskvöldin og bara hversdagsleikinn frá degi til dags. Við systkinin og fjöl- skyldur röðuðum okkur í kring- um ykkur pabba, það segir margt um hversu notalegt hef- ur verið að hafa ykkur í okkar lífi. Takk fyrir allt, elsku mamma, þú varst sú allra besta. Hlynur og Bylgja. Elsku tengdamamma okkar, þegar við sitjum hér saman og rifjum upp liðna tíma þá erum við svo full af þakklæti fyrir all- ar þær góðu stundir sem við höfum átt með þér. Það er svo ótalmargt sem við höfum brall- að saman sem skilur eftir svo ljúfar og góðar minningar. Það sem er okkur efst í huga er sunnudagsmaturinn sem var al- gjörlega ómissandi en þá hitt- umst við öll, fórum yfir vikuna, ræddum um daginn og veginn og nutum þess að vera saman í góðum félagsskap. Þarna núll- stilltum við okkur fyrir vikuna. Við vorum kannski ekki alltaf sammála, Nanna mín, um það hver grilltíminn ætti að vera á kjötinu því krafan frá þér var að allt kjöt væri steikt í gegn, en við leystum það að sjálf- sögðu þannig að allir fengu sitt. Við erum sammála um það að betri ferðafélaga er vart hægt að hugsa sér. Árlegar sumarbú- staðaferðir og ótalmörg fjöl- skyldufrí til hinna ýmsu landa skilja eftir hafsjó af ljúfum minningum. Jólaferð okkar stelpnanna til Heidelberg var frábær þar sem við keyptum fallegt jólaskraut og fengum okkur púrtvín, þar varst þú í essinu þínu. Þið Stebbi voruð einstök. Frá fyrstu kynnum vorum við velkomin inn í ykkar líf og heimili. Þar var ávallt gott að koma. Þið voruð ósérhlífin og nutuð þess að hafa barnabörnin hjá ykkur öllum stundum. Heimilið oft undirlagt eftir leik barnanna og ykkur stóð á sama um það. Það sem þeim þótti gott að dvelja hjá ykkur. Hjá ömmu og afa lærðu allir að spila og þegar farið var á rúnt- inn með ömmu var hlustað á Johnny Cash. Mögulega vegna þess að diskurinn var fastur í tækinu. Mikil var lífsins lukka að fá að vera samferða þér í lífinu. Þú ert okkur fyrirmynd með svo ótal margt og skilur mikið eftir. Við gátum ávallt leitað til þín og gerðum við það óhikað. Það var gott að leita til þín. Okkur þótti vænt um að hafa þig viðstadda fæðingu allra okkar barna, þar lagðir þú svo sannarlega grunninn að þeim sterku tengslum sem þú áttir við öll þín barnabörn. Við verð- um þér ævinlega þakklát fyrir það hve traust og góð þú varst við okkur. Þinn stuðningur og leiðsögn var okkur dýrmæt. Þú átt stóran stað í hjarta okkar og við minnumst þín með hlý- hug. Megir þú hvíla í friði, elsku Nanna, minning þín lifir. Þín tengdabörn, Bjarni og Matta. Elsku amma. Við sitjum hér öll saman barnabörnin þín og erum öll sammála um það hve hlý og góð þú varst. Þú varst alltaf til staðar. Við munum öll eftir því að hafa farið eftir hvern einasta dag í fyrsta bekk til ömmu beint úr skólanum. Það var heilmikið ferðalag þar sem við þurftum að klífa Reykásbrekk- una sem var ekkert grín þegar maður var í fyrsta bekk. Hún gat verið krefjandi að klífa vegna erfiðra aðstæðna eins og í snjó og rigningu. En þegar komið var á leiðarenda varð allt þess virði því amma og afi biðu okkar með besta mat í heiminum tilbúinn. Þar var far- ið yfir heimsmálin og amma kenndi okkur öllum t.d. marg- földunartöfluna, faðirvorið og að spila. Á hótel Reykási áttu allir sinn tannbursta og sæng og kodda. Einnig var heims- frægur veitingastaður á hótel- inu þar sem amma eldaði sinn fræga mat. Frægasti rétturinn hennar ömmu var grillaður kjúklingur á teini. Þegar lýð- urinn heyrði fréttirnar að það væri kjúklingur á teini missti hann vitið. Það var einn dagur á ári þegar við krakkarnir forðuð- umst Reykásinn. Það var á Þorláksmessu þegar afi var að sjóða skötuna. Þegar kokkur- inn var í fríi var farið með lýð- inn á Skalla í Árbænum og keypt bland í poka. Síðan var farið á vídeóleiguna og leigðar tvær myndir, ein gömul og ein ný. Á leiðinni heim var síðan hækkað í græjunum og Johnny Cash spilaður. Það var ekki verið að slá nein hraðamet á leiðinni heim í akstrinum. Þeg- ar komið var heim var ann- aðhvort spilað langt fram á kvöld eða horft á mynd. Ef það var mikill æsingur í mann- skapnum glímdum við en það vita ekki margir að amma var rosaleg í glímu. Hún var þó með einn veikleika, hún var mjög kitlin. Það jafnaði samt aðeins leikana. Amma var líka svakalegur húsasmiður. Það sem hún hjálpaði okkur alltaf að búa til heilu virkin inni í stofu úr stólum, pullum og teppum. Það var öllu tjaldað til. Svo var amma líka smá safnari. Vínbúðin myndi fá minnimáttarkennd ef þeir sæju áfengissafnið hennar ömmu þar sem það þakti vegginn fyrir of- an eldhúsborðið. Hellingur af litlum vínflöskum í öllum litum og tegundum. Amma passaði alltaf að allir færu frá mat- arborðinu pakksaddir. Það vantaði aldrei mat heima hjá ömmu og var ísskápurinn alltaf troðfullur. Ef maður t.d. nefndi við ömmu að manni fyndist eitthvert kex gott var daginn eftir búið að fylla allar hillur af kexinu. Það var sko alvöru þjónusta hjá ömmu. Amma var yndislegasta manneskja sem við höfum hitt. Við krakkarnir vorum alltaf hjá henni þegar við vorum yngri og Reykásinn var annað heimilið okkar. Hún var rosalega bón- góð, umburðarlynd og gerði hvað sem er fyrir okkur. Takk fyrir allar góðu stundirnar, elsku amma okkar. Við munum sakna þín. Bjarmi Leó, Daníel Smári, Nanna, Stefán Ingi, Davíð Þór og Arnar Freyr. Elsku frænka mín, hún Nanna frænka, hefur kvatt okkur. Ég er ævinlega þakklát fyrir samfylgdina í gegnum lífið og mun geyma allar góðu minning- arnar okkar í hjarta mér. Nanna var í raun mín föð- urfjölskylda, hún heimsótti mig alltaf á Þorláksmessu þegar ég var lítil og færði mér pakka frá afa og ömmu. Þegar ég fékk bílpróf fór ég að heimsækja Nönnu á Þorláksmessu og þeg- ar ég var búin að eignast stelp- urnar mínar færðum við daginn okkar yfir á laugardag eða sunnudag í desember þar sem ég mætti með þær í kaffi til Nönnu og þá var nú heldur bet- ur veisla, ekki minna en átta sortir af smákökum, lagtertur, peruterta, pönnukökur og alltaf heitur réttur, heitt súkkulaði og kaffi. Þetta var borið á borð fyrir okkur þrjár. Eydís og Birgitta lærðu fljótt inn á þennan sið okkar Nönnu og voru ekki nema 3-4 ára þegar þær fóru að spyrja í desember: „Hvenær förum við að heim- sækja Nönnu frænku?“ Þær voru oft búnar að æfa söng eða dansatriði sem þær sýndu Nönnu og Stebba. Svo vorum við alltaf búnar að finna eitt- hvert fallegt jólaskraut til að færa Nönnu okkar. Nanna var mikið jólabarn og það var svo skemmtilegt að kaupa fallegt jólaskraut og færa henni. Við söknum þessara stunda sem við áttum fyrir jólin með Nönnu frænku og við varðveitum minningarnar. Elsku Hlynur, Bylgja og fjöl- skyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Ég er þakklát fyrir Nönnu mína og samfylgdina með henni í gegnum lífið, hún var uppá- haldsfrænkan mín og ég mun varðveita minningu hennar. Selma Gísladóttir. Útbreiddur faðmur og inni- legt faðmlag, þannig minnumst við Nönnu okkar. Ásamt gleði hennar, rökfesti, ákveðni og hlýju, enda ómaði hláturinn oft þar sem hún var. Vinnusemi og vandvirkni, alltaf allt hreint og fínt og nýtt kaffi að hellast upp á. Fjölmargar minningar eigum við bræður af henni úr barn- æsku okkar sem eru okkar afar kærar í dag. Það eru einhvern veginn endalaust góðar minn- ingar þegar horft er til baka, samverustundir í sumarbústöð- um, í Gunnarsholti, Reykási, Munaðarnesi eða Skagafirði voru svo margar, fjörugar og ánægjulegar. Minnisstæðar eru þrettándaveislurnar sem hún hélt í Reykásnum en þær voru með allra bestu veislum sem við fórum í og við hlökkuðum til allt haustið. Það er óhætt að fullyrða að borðið svignaði und- an kræsingunum, ættingjar sem við höfðum ekki séð lengi og síðan út að sprengja flug- elda og upplifa þrettándann í Reykjavík. Einnig þegar við vorum í pössun hjá henni sem börn, það var alltaf tilhlökk- unarefni, einhvern veginn var alltaf nóg að gera og gleði og fjör í loftinu, og gaman fyrir sveitastrákana að koma til Reykjavíkur og upplifa borg- ina. Þegar horft er til baka þá sjáum við alltaf betur og betur hve einstakt lag hún hafði á börnum, enda var sá hæfileki og umhyggja fyrir ungviðinu alltaf með henni, líka undir lok- in þegar veikindin herjuðu á, þá samt passaði hún að litla fólkið fengi athygli, nóg að borða og hún hafði lag á að tengja við þau og hjálpa þeim þegar vantaði upp á þroska og getu. Ekki er hægt að hugsa til Nönnu okkar án þess að að nefna hversu mikill afburða- kokkur og afbragðsbakari hún var. Þar sem við bræður höfum alltaf verið miklir matmenn þá var alltaf gott að koma í Rey- kásinn, smakka nýjar gerðir af smákökum og spjalla um heima og geima. Hún gat sett saman afbragðsveislu á engum tíma, bara á sinn gleðilega og jákvæða hátt birtist kaka, smákökur, kakó og kaffi, enda var það ekki fyrr en seinna þegar við ætluðum að leika þetta eftir að við sáum að þetta er ekki á færi venjulegra einstaklinga Hugur okkar er hjá Bylgju og Bjarna, Hlyni og Möttu og krökkunum. Það er sárt að missa Nönnu okkar, en hún var sannarlega búin að gefa af sér alla sína tíð og hennar ævi að kveldi komin þegar hún kvaddi þennan heim. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Runólfur, Páll og Sæ- mundur Sveinssynir. Elsku Nanna móðursystir mín er fallin frá eftir löng og ströng veikindi. Ég er svo heppin að vera komin af sterk- um og heilsteyptum konum. Nanna er heldur betur í þeim hópi og mun ég ávallt líta upp til hennar í leik og starfi með þakklæti fyrir allt sem hún hef- ur kennt mér. Öll hennar iðja einkenndist af dugnaði, festu og áreiðan- leika. Hún og mamma mín heit- in, Sigríður Sæmundsdóttir, voru afar nánar og samrýmdar í öllu sínu. Því skipa Nanna og fjölskylda stóran sess í öllum okkar hefðum s.s. í jólaundir- búningi og þegar einhverjir við- burðir hafa verið. Þær mamma bökuðu t.d. alltaf fyrir jólin og voru búnar að því um miðjan nóvember ár hvert. Auk þess matbjuggu þær ýmislegt sama árið um kring og voru allar frystikistur fylltar af slátri, steiktum kleinur og flatbrauð svo eitthvað sé nefnt. Þegar þær voru að bardúsa í þessu öllu áttum við krakkarnir gæðastundir við að hjálpa smá til en aðallega að leika okkur saman. Þrátt fyrir að hafa unnið mikið alla tíð þá var Nanna mikil húsmóðir, hélt fallegt heimili og átti alltaf til bakkelsi með kaffinu. Enginn gerði betri súkkulaðiköku en Nanna. Það eru ófá dásemdar samtölin sem við áttum við eldhúsborðið í Reykásnum og einnig á ég margar góðar minningar um samverustundir við Nönnu mína, bæði í sveitinni á Bessa- stöðum i Skagafirði og svo við eldhúsborðið hjá ömmu og afa á Öldustígnum á Króknum. Elsku frænka ég mun svo sannarlega sakna þín en minn- ingarnar sem þú og mamma sköpuðu fyrir okkur eru ómet- anlegar og munu lifa með okk- ur um alla tíð. Takk fyrir allt. Elsku Bylgja, Hlynur og fjöl- skyldur missirinn er stór þegar maður missir mömmu sem var mamma og amma af lífi og sál. En á sama tíma er hægt að ylja sér við minningarnar og hefð- irnar sem hún skapaði. Hvíl í fríði elsku Nanna mín. Íris Eik Ólafsdóttir. Drottinn blessi alla, er unna þér, sem eru farnir, eða dvelja hér, og gefi þeim að lifa í ljóssins trú, sem leggur milli sólkerfanna brú. Mér gefur sýn, þú kemur heill í hlað, heilsa vinir þér á fögrum stað. Mér gefur sýn, og gleðin hrífur mig, guðleg birta ljómar kringum þig. (Jón Jónsson Skagfirðingur) Svo kvað afi Nönnu frá Bessastöðum í Sæmundarhlíð. Við kveðjum í dag elskulega mágkonu mína, en bjartar minningar um vináttu hennar og tryggð munu lifa áfram í huga okkar. Nanna ólst upp í skagfirsk- um dal við búskap og sveita- menningu. Hún giftist ung Skagfirðingnum Stefáni Helgasyni frá Tungu. Hann lést fyrir nokkrum árum eftir erfiðan sjúkdóm. Þá var hún farin að finna fyrir þeim veik- indum sem nú hafa bundið enda á líf hennar, langt um aldur fram. Margar ógleyman- legar ánægjustundir áttum við með þeim hjónum yfir veislu- mat eða kaffibolla og ræddum um Skagafjörðinn eða bara um lífið og tilveruna. Það var ávallt tilhlökkunarefni fyrir okkur þegar við komum til Reykjavíkur að koma í morg- unkaffi til Nönnu og mæta þar einstakri hlýju og gestrisni. Við minnumst þeirra samveru- stunda með söknuði og virð- ingu. Heimili þeirra hjóna í Reykjavík var afar smekklegt og glæsilegt í senn enda þau einstaklega gestrisin og höfð- ingjar heim að sækja. Nanna var einstök húsmóðir, listagóð matreiðslukona og við borð hennar var alltaf pláss. Heim- ilishættir þeirra hjóna voru rómaðir eins og mætur maður skrifaði. Allir sem þau hjónin sóttu heim hafa góðar minn- ingar frá heimili þeirra. Nanna var gædd miklum mannkostum, góðum gáfum, velviljuð og vinaföst. Hún var einstaklega hæfileikarík og allt virtist leika í höndunum á henni. Hún var ákaflega hóg- vær kona, rólynd og yfirveguð, en það var aldrei langt í gleðina og húmorinn. Nanna var trygg vinum sínum og afar heilsteypt manneskja og hnjóðaði aldrei í neinn. Það voru forréttindi að fá að kynnast henni og eiga hana að vinkonu um langt árabil. Að leiðarlokum er mér efst í huga söknuður og þakklæti fyrir ára- langa vináttu og samskipti sem aldrei bar skugga á. Ég er henni ævarandi þakklátur fyrir hversu elskuleg hún var við syni okkar Oddnýjar. Öll voru þau samskipti á einn veg, hún var traustur félagi, hrein og bein, vinaföst og frá henni staf- aði mikil innri hlýja. Fjölskyld- ur, ættingjar og vinir kveðja nú mikilhæfa konu með söknuði og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvistanna við hana. Við hjónin vottum Bylgju Rún, Hlyni Frey og fjölskyld- um þeirra innilega samúð okk- ar. Sveinn Runólfsson. Nú er hún Nanna okkar fall- in frá. Nanna var sjúkraliði á Land- spítala við Hringbraut og hafði unnið þar í mörg ár. Þegar meltingar- og nýrnadeild flutt- ist á 12E við Hringbrautina ár- ið 2006 byrjaði hún að vinna þar. Það voru forréttindi að vinna með Nönnu. Hún var dugnaðarforkur, stundvís, dríf- andi, ósérhlífin og góður leið- beinandi. Hún sinnti sínum sjúklingum afar vel, af hlýju, natni, rósemi, yfirvegun, kost- gæfni og virðingu. Það var allt- af gott að vinna með henni. Hún var sterkur karakter, hreinskilin, hlý, glettin, trygg og traust. Nanna var elskuð og dáð af samstarfsfólki og sjúk- lingum. Hún var góð í gegn. Margar minningar koma í hugann tengdar henni Nönnu okkar, sem hægt væri að telja endalaust upp. Nanna var alltaf fyrst að mæta í vinnu upp úr klukkan sjö. Nanna var fyrst að standa upp ef við áttum að fara að gera eitthvað og sagði: „Jæja, komið þið stelpur mínar, drífum þetta af.“ Ég sé fyrir mér Nönnu að ganga eftir ganginum í ljósgula vinnu- jakkanum, alltaf að vinna og fara inn á stofurnar til sjúk- linga á sinn yfirvegaða hátt. Eitt stendur þó upp úr en það er sörurnar og marenskakan hennar, sem hún kom oft með á Þorláksmessukvöld eða yfir jól- in. Sörurnar voru himneskar og marenskakan ekki síðri. Nanna verður alltaf Nannan okkar vinnufélaga á deild 12E og hennar er sárt saknað. Nanna var gæfukona í einka- lífi og var fjölskyldan henni af- ar dýrmæt. Við þökkum Nönnu okkar samfylgdina og vottum ástvin- um hennar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Nönnu Sæ- mundsdóttur. F.h. samstarfsmanna á deild 12E á Landspítalanum, Guðrún Yrsa Ómarsdóttir hjúkrunar- deildarstjóri. Nanna Sæmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.