Morgunblaðið - 21.07.2022, Qupperneq 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
HLAUPASKÓR
Í MIKLU ÚRVALI
Við hjálpum þér að velja réttu skóna
Bíldshöfða 9 | 517 3900 | stod.is
R
aðmorðingjar hafa orðið
mörgum yrkisefni og
Söndru Brown tekst sér-
lega vel upp í spennusög-
unni Klækjabrögðum, kemur les-
andanum hvað eftir annað á óvart og
heldur honum við efnið allan tímann
í langri sögu.
Sagan snýst fyrst og fremst um
meintan raðmorðingja, sem felur sig
meðal annars á bak við ýmis nöfn, og
Drex Easton, sérverkefnafulltrúa
hjá bandarísku alríkislögreglunni.
Hann sem hefur lengi fylgt mann-
inum eftir og beitir óhefðbundum
aðferðum sem falla yfirvaldinu ekki
alls kostar í geð.
Þegar böndin beinast að
ákveðnum manni í Suður-Karólínu
stekkur Drex strax í djúpu laugina,
flytur í hús við hliðina á húsi Jaspers
Fords, sem hann telur vera Weston
Graham, og hefst
handa við að
afhjúpa hann sem
raðmorðingja.
Jasper er ekkert
barn að leika sér
við og í hönd fer
mjög spennandi
atburðarás, þar
sem ómögulegt
virðist vera að
grípa Jasper glóðvolgan, enda er
hann háll sem áll og gefur engan
höggstað á sér. Og morðunum fjölg-
ar.
Söguþráðurinn er vel spunninn og
helstu persónur eru skapaðar í hlut-
verkin. Allt virðist ganga vel fyrir
sig en á sama tíma er ekkert í lagi og
þegar á reynir virðist fátt ganga
upp. Nema glæpirnir.
Samskipti fólksins eru líka ljóslif-
andi. Á yfirborðinu virðist allt vera
slétt og fellt en flestir hafa samt var-
ann á. Nándin er stundum mikil en
ekki er allt sem sýnist. Áfram brun-
ar lestin, traustinu er hvergi fyrir að
fara, morðinginn er alltaf skrefinu á
undan en í huga Drex snýst málið
einfaldlega um að duga eða drepast.
Sandra Brown hakar í öll boxin og
Klækjubrögð er ekki aðeins spenn-
andi bók heldur líka góð tilbreyting
frá norrænu glæpasögunum.
Eltingaleikur
við glæpamann
Glæpasaga
Klækjabrögð bbbbm
Eftir Söndru Brown.
Ragnar Hauksson íslenskaði.
Kilja. 485 bls. Ugla 2022.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Spennandi
„Sandra Brown
hakar í öll boxin
og Klækjubrögð
er ekki aðeins
spennandi bók
heldur líka góð
tilbreyting frá
norrænu glæpa-
sögunum.“
Ljósmynd/Andrew Eccles
„Mig langaði að semja eitthvað fal-
legt,“ segir Einar Bjartur Egilsson
um nýju breiðskífuna sína, Kyrrð,
sem kom út 10. júní sl. Kyrrð er önn-
ur breiðskífa Einars Bjarts á eftir
Heimkomu frá árinu 2016 sem hann
samdi og tók upp í Hollandi, þar sem
hann stundaði meistaranám í Kon-
servatoríinu í Maastricht, hjá Katiu
Veekmans. Undanfarið hefur hann
gefið út fjórar smáskífur, Dansandi
skugga, Upphaf, Kalda birtu og Bak
við tjöldin, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Þörf til að skapa sjálfur
Einar Bjartur Egilsson hóf píanó-
nám sjö ára í Tónlistarskólanum í
Reykjahlíð við Mývatn. „Þegar ég
var yngri var markmiðið ekki endi-
lega að verða píanóleikari, ég ákvað
það rúmlega tvítugur þegar ég hóf
klassískt píanónám í Listaháskóla
Íslands undir handleiðslu Peters
Máté. Það var í LHÍ sem áhugi minn
á að semja tónlist vaknaði og í kjöl-
farið fór ég í meistaranám í Hollandi
þar sem ég samdi mína fyrstu plötu,
Heimkomu. Ég fann að mig langaði
að búa til og skapa eitthvað sjálfur
þótt ég hefði áður aðallega verið að
spila annarra manna tónlist.
Kyrrð er verk sem ég er búinn að
hafa í huganum í nokkur ár eða alla-
vega elstu lögin og platan heitir í
rauninni eftir fyrsta verkinu sem ég
samdi fyrir plötuna, „Kyrrð“. Það
má segja að platan sé tilraun mín til
þess að finna innri ró og skapa þann-
ig stemningu. Tónlistina geri ég fyr-
ir sjálfan mig, hún er mitt tungumál
og mín leið til þess að tjá eitthvað
sem ég get ekki tjáð með orðum.
Mér finnst auðveldara að tjá mig
með tónlist heldur en með orðum.“
Einar Bjartur segir tónlistina sína
tilheyra svokölluðum nýklassískum
eða kvikmyndatónlistarstíl. „Tón-
listin er svona lífsferðalag, í henni er
að finna ákveðna möguleika og
bjartsýni þótt undirtónninn sé dap-
urlegur.“
Breiddin í tónlist meiri í ár
Að sögn Einars Bjarts á tónlistar-
maðurinn Snorri Hallgrímsson stór-
an hluta í plötunni en hann annaðist
upptöku, hljóðblandaði og hjálpaði
Einari Bjarti við tónsmíðarnar.
Hljóðheiminn sem skapast hefur á
plötunni mynda, auk Einars Bjarts,
Chrissie Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari og Ólöf Sigursveinsdóttir selló-
leikari:
„Á fyrri plötunni minni, Heim-
komu, er meira af hefðbundnum
píanóverkum og aðeins minna af
strengjum. Í Kyrrð langaði mig að
kafa aðeins dýpra og fá strengi og
um leið meiri breidd í tónlistina,
þróa mig áfram. Ég tók upp píanóið
heima hjá mér, ég er með lítinn flyg-
il í stofunni, sem ég dempaði svo til
að fá mjúkan tón. Tökurnar fóru því
fram heima hjá mér og svo í stúdíói
með strengjaleikurunum.“
Nóg er á döfinni hjá Einari Bjarti
en þegar viðtalið var tekið var hann
staddur í La Paz í Bólivíu og var
búin að vera á ferðlagi í Suður-
Ameríku í rúman mánuð. Einar
Bjartur er píanókennari og vinnur
mikið sem meðleikari. Í lok þessa
mánaðar heldur hann tónleika á
Ólafsfirði á Berjadögum og seinna
litla tónleika á Selfossi. Einar Bjart-
ur er síðan spenntur fyrir því að
geta haldið útgáfutónleika fyrir nýju
plötuna vonandi einhvern tímann í
haust.
Að sögn Einars Bjarts megum við
eiga von á fleiri plötum frá honum en
þó ekki strax: „Ég er ánægður með
útkomuna á Kyrrð og mig langar að
halda áfram að þróa tónlistina
mína.“ jonagreta@mbl.is
Bjartsýni og mögu-
leikar í tónlistinni
- Einar Bjartur Egilsson gefur út breiðskífuna Kyrrð
Tjáningarleið Einar Bjartur Egilsson tónlistarmaður er höfundur nýju
breiðskífunnar Kyrrðar, sem er hans tilraun til þess að finna innri ró.
Ein af minnisbókum sænska leik-
skáldsins Augusts Strindbergs, sem
hvarf frá Konunglega bókasafninu í
Stokkhólmi fyrir 50 árum, skaut ný-
verið óvænt upp kollinum þegar hún
var sett til sölu hjá uppboðsfyrirtæk-
inu Sotheby’s í London. Þar var bók-
in verðmetin á 15.000 pund sem sam-
svarar um 2,4 milljónum íslenskra
króna. Þessu greinir sænska dag-
blaðið Dagens Nyheter frá. Þar
kemur fram að starfsfólk Kon-
unglega bókasafnsins hefur kært
þjófnaðinn til lögreglunnar. Við-
brögð forsvarsmanna Sotheby’s
þegar þeim var gert viðvart var að
taka bókina umsvifalaust úr sölu.
August Strindberg er einn þekkt-
asti rithöfundur Svíþjóðar. Í samtali
við Dagens Nyheter segir Göran
Söderström, sérfræðingur hjá
Strindbergfélaginu, að þjófnaðurinn
á bókinni sé með alvarlegri hand-
ritaþjófnuðum samtímans.
Segir hann minnisbókina, sem
Strindberg skrifaði í á árunum 1893-
95, vera ómetanlegt gagn í höfund-
arferli skáldsins. „Bókin er sér-
staklega mikilvæg vegna þess að
hún fjallar um tímann eftir að
Strindberg yfirgaf Svíþjóð 1892 og
hélt til Þýskalands og Parísar. Fáir
vita það, en bókin inniheldur fjölda
heimilisfanga fólks sem Strindberg
var í samskiptum við,“ segir Söder-
ström, sem er einn fárra sérfræð-
inga sem náðu að skoða minnisbók-
ina áður en hún hvarf, en hann rakst
á bókina þegar hann var að skrifa
doktorsritgerð sína fyrir hálfri öld.
Samkvæmt frétt Dagens Nyheter
var bókin hluti af safni Vilhelms
Carlheims Gyllenskölds, en hann
mun hafa keypt bókina af Fanny
Falkner, sem var síðasta kærasta
Strindbergs. Sænska lögreglan er
nú með málið til rannsóknar.
Ómetanlegt gagn
í ferli Strindbergs
- Horfin minnisbók sett á uppboð
Ljósmynd/Herman Anderson
Þekktur August Strindberg á mynd
sem sennilega var tekin 1902.