Morgunblaðið - 21.07.2022, Síða 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2022
» Kammersveitin
Elja hélt sumar-
tónleika í Iðnó fyrr í
vikunni undir stjórn
Bjarna Frímanns
Bjarnasonar. Á
efnisskránni var
samtímatónlist í
bland við þjóðlaga-
skotið popp sem féll
vel í kramið.
Kammersveitin Elja hélt vel sótta sumartónleika í Iðnó fyrr í vikunni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hæfileikafólk Kammersveitina Elju skipar ungt, íslenskt tónlistarfólk sem hefur síðustu ár einbeitt sér að hvers kyns tónlistarflutningi.
Skörp Einbeiting hljóðfæraleikaranna leyndi sér ekki. Tónleikagestir Una Björg Bjarnadóttir og Ásrún Óskarsdóttir.
Tónelskir Gunnar Kristinn Óskarsson og Steinn Völundur Halldórsson.Tónn Hluti hljóðfæraleikaranna lék meðal tónleikagesta á tónleikunum.
Lista- og upp-
skeruhátíð Skap-
andi sumarstarfa
í Kópavogi verð-
ur haldin í Mol-
anum í Kópavogi
í dag milli kl. 17
og 20. Þar gefst
gestum tækifæri
til að sjá afrakst-
ur tveggja mán-
aða vinnu hjá
listafólki sumarsins.
„Á dagskránni má sjá stutt-
myndagerð og myndlistarsýningar,
hlusta á hverfisskiptan söng þrasta,
skoða járn unnið úr mýrarrauða,
tónlistargjörninga, vegglist, bók-
verk, einleik í útileikhúsi og margt
fleira,“ segir í tilkynningu frá
Kópavogi. Þar kemur fram að
starfið veiti ungu listafólki á aldr-
inum 18-25 ára tækifæri til að vinna
að eigin listsköpun „og hefur það
reynst mikilvægur stökkpallur fyr-
ir margt af efnilegasta listafólki
landsins“.
Skapandi sumar-
störf á lokahátíð
Molinn Frá loka-
hátíðinni 2019.
Íranska kvik-
myndaleikstjór-
anum Jafar
Panahi, sem
hnepptur var í
varðhald í
Tehran í síðustu
viku, hefur verið
tilkynnt að hann
muni sæta fang-
elsisvist næstu
sex árin. Frá þessu greinir BBC.
Íranskir fréttamiðlar segja að
Panahi hafi verið handtekinn eftir
að hann lagði leið sína í Evin-fang-
elsið til að leita frétta af tveimur
öðrum kvikmyndaleikstjórum sem
nýverið voru handteknir. Tahereh
Saeedi, eiginkona Panahi, segir að
honum hafi þá verið tilkynnt að
hann ætti útistandandi sex ára
fangelsisdóm. Líkir hún handtök-
unni við mannrán og segir að
hvorki hafi verið gætt að laga-
legum né borgaralegum réttindum
Panahi. Leikstjórinn, sem er 62 ára,
hefur hlotið fjölda virtra alþjóð-
legra verðlauna fyrir myndir sínar.
Panahi bíður
sex ára fangelsi
Jafar Panahi
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Vefverslun
selena.is
Ný sending af
sundfötum og
strandfatnaði
2013
2018
Reki ehf • Skemmuvegur 46 • 200 Kópavogur • Sími 562 2950
www.reki.is
Við sérhæfum okkur í síum
í allar gerðir véla
Eigum til flest allar gerðir af síum á lager
Áratuga reynsla í þjónustu við íslenskan iðnað