Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 30
Fyrir tveimur árum benti vinkona
hennar á að ÍSAM væri að leita að
þátttakendum til að prufa nýjan
hárkúr. Hún sló til og að tveimur
árum liðnum er hún komin með
sítt og mikið hár og laus við óeðli-
legt hárlos. „Fyrir um tuttugu
árum síðan byrjaði ég að finna
fyrir miklu hárlosi og hárþynn-
ingu. Á sama tíma greindist ég
með vanvirkan skjaldkirtil. Alla
tíð síðan hefur hárið verið þunnt
og lélegt og hreinlega vonlaust að
reyna að safna síðu hári. Hárlosið
var svakalegt, það hreinlega datt
af mér hvert sem ég fór. Ég „fór úr
hárum“ eins og persneskur köttur,“
segir Auður.
Hafði engu að tapa
Prófunin byrjaði í ágúst 2020
og Auður byrjaði með einni
töflu tvisvar á dag, einni töflu í
hádeginu og þeirri seinni fyrir
svefn. „Ég hafði fyrir fram engar
sérstakar væntingar um árangur,
enda búin að prufa alls konar
hárkúra sem höfðu ekkert virkað.
Þar af leiðandi var ég búin að gefast
upp á að finna nokkra lausn við
mínum hárvanda. Ég hafði engu að
tapa þegar ég ákvað að vera með í
Nourkrin-prófunum, sem byrjuðu
með myndatöku. Þær myndir
sýndu að hárið var í mun verra
ástandi en ég hafði talið. Það var
kominn skallablettur á hvirfilinn
sem margir höfðu víst tekið eftir.
Ég er með náttúrulega krullað hár
sem hefur hjálpað við að fela hár-
þynninguna, en tókst ekki að fela
skallablettinn sem var byrjaður
að myndast á hvirflinum. Hár-
þynningin hefði verið mun meira
áberandi ef hárið hefði verið slétt.“
Skallabletturinn hvarf
„Ég ákvað strax að taka Nourkrin
mjög samviskusamlega samkvæmt
leiðbeiningum, tvisvar á dag, svo
úr yrði marktæk prófun. Ég vildi
vita hvort Nourkrin virkaði fyrir
mig. Eftir aðeins mánaðarprófun
fann ég mikinn mun. Hárlosið sem
hafði verið aðalvandamálið var
hætt. Þessi jákvæða svörun kom
mér skemmtilega á óvart. Ég hafði
aldrei búist við því að hárlosið
myndi hætta eftir aðeins mánaðar-
inntöku á Nourkrin.
Ég ákvað því að halda áfram að
taka Nourkrin tvisvar á dag, en
með því næst keðjuverkun yfir
allan sólarhringinn og tólf tíma
verkun helst. Um leið og sleppt er
úr degi slitnar keðjuverkunin sem
verður að lokum til þess að fólk fær
enga virkni af Nourkrin. Þetta fann
ég vel þegar ég hafði ekki verið
samviskusöm í inntöku Nourkrin
einn mánuðinn og misst út dag
og nokkra hálfa daga. Þennan
mánuð stóð ég hreinlega í stað. Ég
lét þetta ekki koma fyrir aftur og
tók Nourkrin-töflurnar samvisku-
samlega tvisvar á dag. Árangurinn
skilaði sér fljótt. Á nokkrum
mánuðum var skallabletturinn
nánast horfinn, hárlosið gleymt
og grafið, hárið orðið sterkara
og þykkara og ekki lengur matt,
heldur glansandi.“
Algengt vandamál
„Ég veit að hárlos og þunnt hár
er algengt vandamál sem hrjáir
margar konur og karla líka. Heilsu-
farsleg vandamál hafa yfirleitt
mikil áhrif á bæði hár og neglur,
sérstaklega þegar um langvinn
veikindi er að ræða. Í mínu tilfelli
var það vanvirkur skjaldkirtill.
Hjá öðrum geta aðrir sjúkdómar
eða þættir haft langvarandi áhrif
á heilsu fólks, sem kemur yfirleitt
fram í lélegu hári. Þrátt fyrir að
hárvandamál séu mjög algeng eru
þau viðkvæmnismál hjá báðum
kynjum og lítið rædd. Fólk segir
ekki frá prófunum á vöru gegn
hárlosi og þaðan af síður ef varan
virkar síðan ekki. Ýmsar vörur eru
í boði með alls kyns fullyrðingum
um góða virkni og erfitt að velja á
milli þegar einu upplýsingarnar
koma frá framleiðendum varanna.
Þess vegna hef ég valið að segja
frá minni reynslu og mæla með
Nourkrin, einfaldlega vegna þess
að Nourkrin virkar.“
Tekur tvöfaldan skammt
Í júní síðastliðnum ákvað Auður
að gera aðra tilraun á sjálfri sér.
„Ég er með vanvirkan skjaldkirtil
og því almennt með lélega upp-
töku á bæti- og næringarefnum.
Því datt mér í hug að athuga hvort
ég myndi fá meiri virkni með
því að tvöfalda skammtinn af
Nourkrin. Ég hugsaði að í versta
falli myndi engin breyting verða
eða ég fengi einhverja meiri
virkni.
Tvöfaldi Nourkrin-skammtur-
inn var á sama hátt og áður, en
nú tvær töflur í hádeginu og tvær
töflur fyrir svefn. Þegar ég byrjaði
þennan skammt í júní þá var ég
með axlarsítt hár en í nóvember
var ég komin með sítt hár niður
á bak. Það er hársídd sem ég hef
ekki náð í 20 ár! Vá, þvílík virkni
og breyting. Hárið varð mun
þéttara (skallabletturinn gjör-
samlega horfinn), hárið varð mun
sterkara og meiri vöxtur og enn
meira glansandi. Breytingin var
svo mikil að ég hafði samband við
ÍSAM og teknar voru myndirnar
sem hér eru sýndar.
Gamla „Hollywood“-hárið mitt
er komið aftur!“
Engin áhrif á annan hárvöxt
„Ég hef fengið margar spurningar
varðandi hárið því breytingin
hefur ekki farið fram hjá neinum
sem þekkir mig. Og ég hef sagt
mörgum frá Nourkrin og tvö-
falda skammtinum mínum. Þá
hef ég stundum fengið spurningar
um hvort ég hafi nokkuð fengið
„óæskilegan“ hárvöxt. Nei, ég hef
ekki orðið vör við neinn skegg-
vöxt, ef það hefði gerst þá hefði
ég snarlega farið aftur í einfaldan
skammt! Það byrjar ekki hár-
vöxtur á líkamssvæðum þar sem
ekki var hárvöxtur áður. Augn-
hárin tóku hins vegar við sér, en
þau voru orðin mjög döpur. Það er
eini viðbótar hárvöxturinn sem ég
Auður var með skallablett á kollinum eftir mikið hárlos. Eftir nokkurra mánaða inntöku á Nourkrin var skallabletturinn horfinn.
Nourkrin hárbætiefnið er 100% lyfja-
laust og eina hárbætiefnið sem byggir
á fjölda klínískra rannsókn. Hag-
stæðast er að kaupa þriggja mánaða
skammt í stað mánaðarskammts.
Fyrir Nourkrin
Eftir Nourkrin
hef orðið vör við og er að sjálfsögðu
hæstánægð með.
Þetta sýnir bara hvað það er góð
virkni í þessu bætiefni. Sumum
þykir þetta dýrt, en í dag er þetta
jafn ómissandi hluti og að taka lýsi
fyrir mig. Ég vel að taka Nourkrin
því hárið skiptir mig meira máli en
neglur eða augnháralengingar og
vegna þess að það svínvirkar fyrir
mig. Ég veit það líka að ef ég myndi
hætta að taka þetta inn þá dytti
verkunin niður og ég fengi gamla
lélega og þunna hárið aftur, og ég
hef engan áhuga á að fá það hár
aftur!“
Nourkrin virkar vel gegn hárlosi
Rannsóknir sýna að Nourkrin
bætiefnið vinnur gegn hárlosi og
stuðlar að eðlilegum hárvaxtar-
hring. Hárlos getur haft ýmsar
orsakir en Nourkrin nærir hár-
sekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Hár er mikilvægur partur af
útliti okkar og sjálfstrausti. Þetta
kemur enn frekar fram þegar upp
koma hárvandamál eða hármissir
og þá gera sérstaklega konur sér
enn frekar grein fyrir mikilvægi
hársins. Hárvandamál eru algeng
en talað er um að allt að 60 prósent
kvenna upplifi óeðlilega mikið
hárlos einhvern tímann á lífsleið-
inni. Oft er þetta mikið feimnismál
og því lítið rætt og reynt að láta
sem minnst á því bera. Það er því
gaman að geta sagt frá Nourkrin
hárbætiefninu, sem hægt er að
sýna með klínískum rannsóknum
að virki.
Byltingarkennt bætiefni
Eðlileg hringrás hárvaxtar
líkamans kallast hárvaxtarhring-
ur. Í eðlilegum hárvaxtarhring
eru 85-90% háranna á vaxtar-
stigi á meðan 10-15% þeirra eru
á hvíldarstigi eftir að hafa náð
fullum vexti. Þegar hárlos á sér
stað brenglast hinn hefðbundni
hárvaxtarhringur vegna þess að
hársekkirnir fá ekki réttu nær-
ingarefnin. Helstu ástæður hárloss
eru meðal annars stress, veikindi,
sykursýki, lyf, reykingar, með-
ganga, fæðing, hármeðhöndlun og
fleira.
Nourkrin hárbætiefni fyrir
konur og karlmenn hefur verið
selt á Íslandi síðan 2018, en verið
til á heimsvísu síðan 1986 og er
margverðlaunað hárbætiefni, það
vinsælasta í Bretlandi. Nourkrin
hárbætiefnið er 100% lyfjalaust
og eina hárbætiefnið sem byggir
á fjölda klínískra rannsókna sem
birtar hafa verið í ritrýndum
vísindatímaritum. Nourkrin
inniheldur hið byltingar-
kennda Marilex bætiefni sem er
einkaleyfisvarið efni, unnið úr
þykkni úr fiskbeinum og inni-
heldur rétt hlutfall af svokölluðum
próteóglýk önum, sem næra hár-
sekkina svo þeir geti viðhaldið
eðlilegum hárvaxtarhring.
Nourkrin er algjörlega öruggt
og allir mega nota það, nema
þeir sem hafa ofnæmi fyrir fiski
og skelfiski, þar á meðal ófrískar
konur og konur með barn á brjósti.
Hefðbundin meðferð er tvær töflur
daglega í sex mánuði. Ástæðan
fyrir lengd meðferðarinnar er sú að
það tekur hárvaxtarhringinn sex
mánuði að ná jafnvægi. Hársekk-
irnir geta verið á misjöfnum stað í
sínum hring þegar meðferð hefst
og því tekur þetta þennan tíma.
Góður árangur í prófun
Árið 2020 var farið af stað með
fyrsta prófanahópinn á Íslandi
fyrir Nourkrin. Sextán ein-
staklingar á aldrinum 26-75 ára,
fimmtán konur og einn karlmaður,
voru valin til að prófa vöruna í sex
mánuði. Meðalaldur þátttakenda
var 50 ár. Ástæður hárloss hjá þátt-
takendum voru misjafnar en flest
höfðu glímt við hárlos í töluverðan
tíma og prófað margt til að minnka
það. Niðurstöður rannsóknar-
innar voru mjög ánægjulegar og
sýndu að allir þátttakendur fundu
mun á hárinu eftir að hafa tekið
inn Nourkrin.
Helstu ástæður hárloss þátttak-
enda í rannsókninni voru:
n Vanvirkur skjaldkirtill
n Sjálfsofnæmi (Alopecia)
n Legslímuflakk
n Sykursýki 2
n Skortur á B12
n Psoriasis, psoriasis gigt
n Lyf
n Álag, stress í kjölfar veikinda,
dauðsfalla eða annarra per-
sónulegra ástæðna
Einnig hafa nýleg gögn sýnt fram
á að Nourkrin virkar mjög vel á
fólk sem hefur lent í hárlosi í kjöl-
far Covid-19.
Vilt þú vera í
Nourkrin prófanahópi?
Ef þú eða einhver í kringum þig er
með hárvandamál þá er hægt að
sækja um að komast í Nourkrin
prófanahóp hjá OJK-ÍSAM. Sendu
tölvupóst á joninab@ojk-isam.is.
Nourkrin fæst í öllum helstu
apótekum. Nánari upplýsingar á
isam. is/nourkrin n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
2 kynningarblað A L LT 13. ágúst 2022 LAUGARDAGUR