Fréttablaðið - 13.08.2022, Blaðsíða 37
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 2. september nk.
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is.
Framkvæmdastjóri
Vatnajökulsþjóðgarðs
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs auglýsir laust embætti framkvæmdastjóra
þjóðgarðsins. Leitað er að drífandi einstaklingi með góða samskiptahæfni
til að leiða áframhaldandi uppbyggingu þjóðgarðsins. Umhverfis-, orku-
og loftslagsráðherra skipar framkvæmdastjóra til fimm ára í senn
samkvæmt tillögum stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs. Meginstarfsstöðvar
Vatnajökulsþjóðgarðs eru sex, á Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri,
Skriðuklaustri, í Ásbyrgi, Mývatnssveit og Skaftafelli, en aðalstarfsstöð
framkvæmdastjóra verður á Höfn í Hornafirði.
Helstu verkefni
• Daglegur rekstur Vatnajökulsþjóðgarðs
• Þátttaka í störfum stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og framfylgja
ákvörðunum hennar
• Yfirstjórn mannauðsmála þjóðgarðsins
• Ábyrgð á fjármálum þjóðgarðsins og reikningsskilum í samráði
við fjármálastjóra
• Tryggja að þjóðgarðurinn starfi í samræmi við lög og
stjórnvaldsfyrirmæli
• Samskipti við umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti, fjölmiðla,
innlenda og erlenda samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi
• Árangursrík reynsla af stefnumiðaðri stjórnun, rekstri og teymisvinnu
• Þekking og áhugi á náttúruvernd
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Hæfni til að leiða árangursríkt samstarf ólíkra hagaðila og leysa
úr ágreiningsmálum
• Framúrskarandi samskiptanæmni
• Framsækni og frumkvæði í vinnubrögðum
• Gagnrýnin og umbótamiðuð hugsun
• Góð færni í ræðu og riti á íslensku og ensku
Vatnajökulsþjóðgarður starfar samkvæmt
lögum nr. 60/2007. Þjóðgarðinum er ætlað
að vernda landslag, lífríki, jarðmyndanir og
menningarminjar. Á sama tíma er skýrt markmið
að bjóða almenningi aðgengi og veita fræðslu
um náttúru, sögu og mannlíf. Þá er þjóðgarðinum
ætlað að stuðla að rannsóknum og styrkja
byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni hans.
Þjóðgarðurinn var skráður á heimsminjaskrá
UNESCO árið 2019 þar sem hann hefur að geyma
einstakar náttúruminjar. Að staðaldri starfa um
40 manns hjá þjóðgarðinum að margvíslegum
verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu
við gesti þjóðgarðsins en yfir sumartímann fer
starfsmannafjöldi vel yfir 100 manns.
Nánari upplýsingar um þjóðgarðinn má finna
á vatnajokulsthjodgardur.is.
hagvangur.is
Sótt er um starfið
á hagvangur.is