Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 77
Fyrir fjörutíu árum lagðist
franska skemmtiferðaskipið
Mermoz að bryggju með fursta-
hjónin frá Mónakó, Rainer fursta
og eiginkonu hans, kvikmynda-
stjörnuna Grace Kelly, innan-
borðs. Múgur og margmenni
mætti á höfnina til að líta þau
hjónin augum.
benediktboas@frettabladid.is
Fyrir fjörutíu árum komu furstahjónin
í Mónakó, Rainer og sjálf Grace Kelly til
landsins í helgarferð ásamt börnum
sínum. Töluvert margmenni mætti í
Sundahöfn til að taka á móti þeim og
skoða franska skemmtiferðaskipið
Mermoz sem þau ferðuðust með. Fursta-
hjónin fóru að Bessastöðum fyrsta
kvöldið þar sem þau þáðu kvöldverðar-
boð frú Vigdísar Finnbogadóttur.
Dr. Sturla Friðriksson hafði veg og
vanda af skipulagningu heimsóknar
furstahjónanna og sagði hann við Tím-
ann að furstahjónin hefðu verið afar
ánægð með heimsóknina og þótt mikið
til þess koma sem þau sáu hér.
Daginn eftir komuna til landsins fór
furstafjölskyldan af stað í ferðalag og
byrjaði á að fara í Árbæjarsafnið. Þaðan
var haldið í Kjós þar sem þeir feðgar,
Rainer og Albert, renndu fyrir lax. Sam-
kvæmt frásögn Tímans settu þeir feðgar
í einhverja smáfiska og vildu helst ekki
hætta veiðum enda laxinn að stökkva
allt um kring. Þeir stoppuðu við ána í
um klukkustund.
Frá Kjós var haldið yfir til Þingvalla
þar sem vindur var allmikill. Hafði Kelly
mikinn áhuga á gjánum og sprungunum
og spurði margs. Við Lögberg var sagan
rakin. Eftir Þingvelli var haldið inn á
Laugardalsvellina upp undir hellinn,
þar sem tjaldi var slegið upp og skjól
myndað svo furstahjónin gætu borðað
úti. Samkvæmt frásögnum fjölmiðla
minnti hlaðborðið helst á atriði úr Stellu
í orlofi því laxinn var borinn fram í alls
konar formi. Þá var að sjálfsögðu hákarl
í boði fyrir þá sem þorðu.
Fram kom í Tímanum að Karólína
ætti íslenskan hest sem hún héldi mikið
upp á og hafi fundist stórkostlegt að sjá
íslenska hesta hlaupa um í náttúrunni.
Síðan var brunað að Gullfossi og Geysi
þar sem unga fólkið dáðist að Strokk,
sem gaus nokkrum sinnum meðan
furstahjónin skoðuðu hann. Þaðan lá
leið aftur að Sundahöfn og furstahjónin
héldu af landi brott.
Morgunblaðið náði tali af Kelly og
sagði stjarnan að þau hefðu gjarnan
viljað hafa haft meiri tíma. „Það er fal-
legt land sem þið eigið. Land fullt af
andstæðum og það er það sem gerir það
áhugavert. Við höfum átt skemmtilega
ferð.“
Mánuði síðar, eða 14. september,
lést Kelly eftir hörmulegt bílslys sem
hún lenti í degi fyrr. Hún var að keyra
til Mónakó eftir dvöl á sveitasetri fjöl-
skyldunnar þegar hún fékk heilablóð-
fall og missti stjórn á bílnum, sem fór
fram af hárri klettabrún. Stéphanie,
dóttir hennar, sem var farþegi í bílnum,
reyndi hvað hún gat til að afstýra slysinu
en fékk ekki við neitt ráðið.
Kelly hlaut töluverðan heilaskaða í
Það er fallegt land sem þið
eigið. Land fullt af and-
stæðum og það er það
sem gerir það áhugavert.
Grace Kelly
Grace Kelly birtist í Reykjavík
Grace Kelly gengur niður landganginn með Rainer fursta á eftir sér og Caroline og
Albert fyrir aftan. MYNDIR/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Rainer fursti
og Caroline af
Mónakó skoða í
Rammagerðinni.
Samkvæmt frá-
sögn Morgun-
blaðsins keypti
fjölskyldan
nánast hálfa
búðina og fór
út með marga
böggla.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
tengdasonur, bróðir og mágur,
Þorsteinn Arnoddur
Vilmundarson
lést á líknardeild Landspítalans í
Fossvogi sunnudaginn 24. júlí 2022.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Ástvinir þakka auðsýnda samúð við andlát og útför.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið og Kraft.
Svala Þyri Garðarsdóttir
Daníel Smári Þorsteinsson
Díana Sól Þorsteinsdóttir
Vilmundur Þorsteinsson Bjarney Jóhanna
Sigurleifsdóttir
Kristján Eyfjörð Guðmundsson Lilja Aðalbjörg
Þórðardóttir
Leifur Ingi Vilmundarson Sigurlaug Vigdís
Gestsdóttir
og börn.
Jóhann Ernir Vilmundarson
Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir Erlingur Þór
Erlingsson
og börn.
Klara Ösp Kristjánsdóttir Þorlákur Helgi
Pálmason
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir
Seljalandi 1, Reykjavík,
lést á Hrafnistu
fimmtudaginn 11. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Jóhanna Jóhannsdóttir Guðmundur Óli Kristinss.
Haukur Skarphéðinn Ingason Marian Ingason Carlen
Guðmundur Birgir Ingason Ingunn Ólafsdóttir
Ásgeir Þór Ingason
Linda Björk Ingadóttir Ólafur Björn Björnsson
Hilmar Ingason María Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Emil L. Guðmundsson
Skúlagötu 40, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi sunnudaginn 7. ágúst
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
föstudaginn 19. ágúst nk. kl. 15.00.
Jóna Lára Pétursdóttir
Ellen Vestmann Emilsdóttir
Emil Emilsson
Steinunn Baldursdóttir Jóhannes G. Harðarson
Guðný Baldursdóttir
Lilja Margrét Hreiðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Bjarnason
Krummahólum 6, Reykjavík,
andaðist á Landspítalanum
í Fossvogi miðvikudaginn 3. ágúst.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju
fimmtudaginn 18. ágúst kl 14.00.
Hægt er að nálgast streymi á slóðinni:
https://youtu.be/ngeO1LBl4fU
Bjarni Þ. Ólafsson Vigdís E. Vignisdóttir
Þorgeir G. Ólafsson Helena Halldórsdóttir
Elín Ólafsdóttir Elís Þ. Sigurðsson
Jón S. Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
slysinu og komst ekki til meðvitundar
þannig að Rainier ákvað að hún skyldi
tekin úr öndunarvél. Hún er af mörgum
talin ein besta leikkona sem Hollywood
ól af sér, en hún lagði leiklistina á hilluna
aðeins 26 ára til að taka við sem fursta-
frú.
Kelly hlaut mörg virt verðlaun á ferl-
inum og hampaði þar á meðal einni
Óskarsverðlaunastyttu fyrir leik sinn
í The Country Girl frá árinu 1954. Hún
lék í ellefu kvikmyndum á stuttum en
glæstum ferli þar sem hún deildi tjaldinu
með mörgum af frægustu leikurum kvik-
myndasögunnar, til dæmis Clark Gable,
Ava Gardner, Gary Cooper, Cary Grant,
Frank Sinatra og Bing Crosby, undir
stjórn leikstjóra á borð við Hitchcock,
John Ford og Fred Zinnemann. n
Okkar heittelskaði sonur, bróðir,
ömmu- og afastrákur, frændi, vinur,
gleðigjafi og hjartaknúsari,
Pétur Uzoamaka Nwaokoro
Destinysson
kvaddi þennan heim aðfaranótt fimmtudags
4. ágúst í faðmi foreldra sinna. Útför hans verður frá
Garðakirkju föstudaginn 19. ágúst klukkan 13.
Árdís Ösp Pétursdóttir
Destiny Mentor Nwaokoro
Ásmundur Obiageri Nwaokoro Destinysson
og aðstandendur um allan heim.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Þorsteinn Viðar Ragnarsson
Vallarbraut 2, Akranesi,
frá Höfðabrekku í Mýrdal,
sem lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða þann 27. júlí, verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 14.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju.
Kristín Þorgerður Reynisdóttir Yves Deferne
Björk Þorsteinsdóttir Gunnlaugur Kristinsson
Elín Ragna Þorsteinsdóttir Ómar Rögnvaldsson
Guðrún Lilja Þorsteinsdóttir Valdimar K. Sigurðsson
Elías Kristján Þorsteinsson Marta Valsdóttir
afabörnin, langafabörnin og systkini hins látna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Erla Ásmundsdóttir
lést á Sólteig, Hrafnistu í Reykjavík,
29. júlí sl. Útförin hefur farið fram.
Hjartans þakkir til starfsfólks Sólteigs
fyrir fallega og hlýja umönnun.
Dagmar Agnarsdóttir Ómar Valdimarsson
Kristín Agnarsdóttir
Agnar Agnarsson Guðný Stefánsdóttir
Margrét Bára Sigmundsdóttir
og fjölskyldur.
FRÉTTABLAÐIÐLAUGARDAGUR 13. ágúst 2022 Tímamót 37