Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 26

Læknablaðið - 01.04.2022, Blaðsíða 26
190 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 S ve fn le ng d (m ín út ur ) 700 600 500 400 300 200 100 0 Virkir dagar Helgar Allir dagar vikunnar Svar við spurningu um svefnlengd Svefnskrá Virknimælir Y F I R L I T S G R E I N unnar og svefngæðum síðustu svefnlotu á undan. Dægurklukkan stillir inn kjörsvefntíma, það er hvenær heppilegast er að sofna með tilliti til annarra líkamsferla. Að vissu marki lýtur svefninn þó viljanum. Við getum ákveðið að fresta svefni tímabundið, en óhjákvæmilega sigrar svefninn að lokum. Fullnægjandi svefn er oftast skilgreindur sem sá tími sem við- komandi þarf að sofa til þess að vakna endurnærður. Augljóslega verður svefnlengdin að vera nægileg, en svefntíminn og svefngæði skipta líka máli.11 Samspil svefnlengdar, svefntíma og svefngæða stjórna því þannig hvort svefn er fullnægjandi.12 Mælingar á svefnlengd og svefntímum Rannsóknir á svefnlengd og svefntímum hafa lengst af verið gerð- ar með notkun spurningalista og svefnskráar, sem byggir á hug- lægu mati (mynd 1). Á seinni árum hefur notkun beinna mælinga, það er hlutlægs mats, til að meta svefnlengd aukist, einkum með tilkomu handhægra virknimæla (actigraphs). Virknimælarnir hafa sýnt góða samsvörun við niðurstöður mælinga á svefnlengd með svefnheilariti (polysomnography),13 sem er sú aðferð sem gefur besta mynd af svefni. Hins vegar sýna þeir styttri svefn miðað við hug- lægar mælingar, sem talið er skýrast af ofmati á vöku á svefntím- anum, vegna hreyfinga í svefni (mynd 2 ).14,15 Kostur við hlutlægar aðferðir er að þær byggja á lífeðlisfræðilegum merkjum, en á móti takmarkar aukinn kostnaður vegna mælitækja jafnan stærð rann- sóknarhópsins. Huglægar aðferðir eru hentugar til að kanna svefn hjá fjölda fólks í faraldsfræðilegum rannsóknum en hafa þann ókost að upplýsingar byggja á minni og tilfinningu þátttakenda, sem gæti haft áhrif á niðurstöður. Af huglægum aðferðum til að meta svefnlengd hefur svefnskrá, sem fyllt er í á hverjum morgni, verið talin gefa áreiðanlegustu niðurstöðurnar en áreiðanleiki beinna spurninga um svefnlengd hefur verið dreginn í efa.14 Aðrir aðferðafræðilegir þættir, svo sem tímasetning rannsóknar (árstíð, helgar/virkir dagar), lengd tímabils sem spurt er um (vika/mánuð- ur) sem og gerð og framsetning spurninga, skipta einnig miklu máli.16,17 Hversu lengi þarf að sofa? Svefnlengd ákvarðast af mörgum þáttum og þar af ráða erfðir all- miklu18 en aldur er sú breyta sem tengist svefnlengd hvað sterk- ast,19 en jafnframt er ljóst að talsverður breytileiki er innan hvers aldurshóps.20-22 Bent hefur verið á að útilokað sé að nefna ákveðinn fjölda klukkutíma sem hentar öllum einstaklingum á sama aldurs- skeiði.19 Leiðbeiningar um kjörsvefnlengd eftir aldri til að viðhalda góðri heilsu hafa verið settar fram af svefnrannsóknafélögum í Banda- ríkjunum og mikið hefur verið vitnað til þeirra í umfjöllun um svefnlengd á síðustu árum (mynd 3).23,24 Ráðleggingarnar byggjast á áliti sérfræðinga á grunni birtra vísindagreina um svefnlengd Mynd 1. Sýnishorn af svefnskrá. Fyllt er í skrána á hverjum morgni með því að setja strik þann tíma sem sofið var síðastliðinn sólarhring. Mynd 2. Meðalsvefnlengd á virkum dögum, um helgar og yfir vikuna, eftir því hvaða rannsóknaraðferð var notuð: spurningar um svefnlengd (dökkgrátt), svefnskrá (meðal­ grátt) eða virknimælir (ljósgrátt). (n=225 unglingar).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.