Læknablaðið - 01.06.2021, Blaðsíða 9
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 277
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Steinunn Þórðardóttir
sérfræðingur í lyf- og
öldrunarlækningum,
yfirlæknir heilabilunar-
einingar Landspítala,
formaður Læknaráðs
Landspítala
steintho@landspitali.is
Mikilvægt er að horfa á kerfið í
heild, innan og utan spítalans,
og tryggja að sjúklingar fái
rétta þjónustu á réttum tíma
og á réttu þjónustustigi og að
auðvelt sé að vísa sjúklingum
rétta leið í kerfinu. Enginn er
betur til þess fallinn að leiða
þá vinnu en fagfólkið sjálft
doi 10.17992/lbl.2021.06.638
Íslenskt samfélag býr svo vel að eiga heil-
brigðisstarfsfólk í fremstu röð. Margt af því hefur
dvalið langdvölum erlendis og hlotið menntun
hjá virtustu háskólum og háskólasjúkrahúsum
heims, aflað sér víðtækrar reynslu og þekkingar
og stundað vísindastörf á heimsmælikvarða. Slíkur
mannauður er ómetanlegur og hefur æ ofan í æ
skipað íslenska heilbrigðiskerfinu í efstu sætin í
alþjóðlegum samanburði. Í heimsfaraldri COVID-19
hafa stjórnendur heilbrigðiskerfisins borið gæfu til
að treysta þessum mannauði til að leiða viðbragð
okkar við faraldrinum, bæði á landsvísu og innan
einstakra stofnana. Heilbrigðisstarfsfólki, sem vant
er að vinna framlínustörf í beinum tengslum við
sjúklinga, voru falin raunveruleg völd og heimild
til að taka mikilvægar ákvarðanir með reynslu og
menntun sína að leiðarljósi. Úr þessum jarðvegi
spratt meðal annars COVID-19-göngudeildin, en
starfið sem unnið er þar hefur hlotið einróma lof fyrir
fagmennsku, skilvirkni, frábæra nálgun og stuðning
við þá sjúklinga sem deildin sinnir. Á deildinni voru
nýjar og snjallar tæknilausnir þróaðar á ógnarhraða
og vísindastarf blómstraði.
Því miður er ljóst að þegar faraldrinum lýkur
og rykið sest munu gömlu brotalamirnar í rekstri
heilbrigðiskerfisins skjóta aftur upp kollinum. Sem
lækni er mér hugleikin æ minni aðkoma lækna og
fagfélaga þeirra að stjórnun og þeirri ákvarðanatöku
sem sannanlega snýr að lækningum. Vissulega er
boðað til samráðsfunda og vinnustofa með reglu-
legu millibili, en raunveruleg áhrif slíks samráðs á
stefnumótun eru óljós, stundum engin, og eftirfylgd
skortir.
Lækna- og Hjúkrunarráð Landspítala voru
þurrk uð út úr lögum og aðkoma fagfólks spítalans
að stefnumótun og ráðgjöf innan hans þannig
torvelduð enn frekar. Brotthvarf Lækna- og
Hjúkrunarráðs úr skipuriti spítalans leggur einnig
stein í götu vísindastarfs innan veggja hans,
sem alla jafna er talið svo nauðsynlegt. Frábær
sjúkraskrárlausn, Heilsugátt, hönnuð af fagfólki í
framlínunni af mikilli elju og litlum efnum, hefur
ekki hlotið þann stuðning og brautargengi sem hún
á svo sannarlega skilið.
Hlutverk Landspítala er illa skilgreint og of
umfangsmikið, en það, auk víðtækra gloppa í kerf-
inu utan spítalans, birtist í útskriftarvanda, erfiðu
starfsumhverfi, allt of hárri rúmanýtingu og glund-
roða á bráðamóttökunni. Fagfólk spítalans býr við
þann veruleika að bera ábyrgð án raunverulegs
valds, þar sem einstakir starfsmenn eiga á hættu
Fagfólk til forystu
að vera ákærðir fyrir mistök sem verða vegna fjár-
skorts, ómanneskjulegs vinnuálags og ófullnægj-
andi starfsumhverfis.
Dvínandi vægi vísindastarfs innan háskóla-
sjúkrahússins með versnandi árangri í alþjóðlegum
samanburði er einnig gríðarlegt áhyggjuefni.
Lykillinn að því að tryggja gæði og velsæld heil-
brigðisþjónustunnar við landsmenn til framtíðar
er að hlúa að mannauðnum sem þjónustuna veitir.
Tryggja þarf aðkomu heilbrigðismenntaðs starfs-
fólks í framlínu að raunverulegri ákvarðanatöku,
en hluti af því væri endurreisn Lækna- og Hjúkrun-
arráðs Landspítala innan ramma laganna þótt það
væri einungis lítið skref í langri vegferð. Mikilvægt
er að horfa á kerfið í heild, innan og utan spítalans,
og tryggja að sjúklingar fái rétta þjónustu á réttum
tíma og á réttu þjónustustigi og að auðvelt sé að vísa
sjúklingum rétta leið í kerfinu. Enginn er betur til
þess fallinn að leiða þá vinnu en fagfólkið sjálft.
Tryggja þarf vænlegt starfsumhverfi og góða
öryggismenningu þar sem einstakir
starfsmenn eru ekki kallaðir
til ábyrgðar fyrir kerfislægar
brota lamir. Forgangsraða þarf
sameigin legu sjúkraskrárkerfi
á landsvísu sem samtengir alla
þjónustuveitendur og er hannað
af fagfólki, með þarfir fagfólks og
öryggi sjúklinga að leiðarljósi.
Að lokum þarf að tryggja
veg og vanda vísindastarfs á
eina háskólasjúkrahúsi landsins,
en öflugt vísindastarf dregur
sannanlega að sér hæft og metnaðarfullt starfsfólk
og skilar meira fjármagni í ríkiskassann en það
tekur. Bæta mætti umgjörð vísindastarfs umtalsvert
með veglegum samkeppnissjóði helguðum
heilbrigðisvísindum og mun hærri fjárframlögum
til vísindastarfs innan Landspítala sem eyrnamerkt
væri þeim verkefnum og ekki skert þegar harðnar í
ári í daglegum rekstri. Tryggja þarf vísindafólki á
spítalanum verndaðan tíma og nauðsynlega innviði
því til stuðnings.
Ég skora á alþingi, heilbrigðisráðherra og stjórn-
endur í heilbrigðiskerfinu að stórauka samráð
við fagfólk í framlínu og nýta menntun þeirra og
reynslu í mun ríkari mæli en nú er gert. Ég skora á
sömu aðila að styrkja verulega stoðir vísindastarfs
á Landspítala, en í því býr fjöregg heilbrigðisþjón-
ustunnar til framtíðar. Við erum öll tilbúin í sam-
talið.
Steinunn Þórðardóttir MD
Consultant geriatrician,
Department of Geriatric
Medicine, Head of the
Dementia Unit at Landspitali,
The National University
Hospital of Iceland
Put health care
professionals in the lead