Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2021, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.06.2021, Blaðsíða 7
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 275 R I T S T J Ó R N A R G R E I N Multidisciplinary Pain Treatment at Landspitali through the years Guðmundur Björnsson MD, specialist in anesthesia and intensive care with special training in advanced pain medicine. Landspitali, The National University Hospital, Iceland Guðmundur Björnsson sérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum með sérhæfingu í verkjalækningum á verkjamiðstöð Landspítala, Hringbraut og Holtasmára 1 Þverfagleg verkjameðferð á Landspítala gegnum árin Í blaði mánaðarins birtist grein um „fjölþætt svæðis- bundið verkjaheilkenni“ eftir Kristján G. Guðmunds- son lækni. Greinin tengist starfsemi á vegum Félags svæfinga- og gjörgæslulækna á Norðurlöndum, sem undirritaður hefur átt aðild að síðustu tvo áratugi. Félagið stendur meðal annars fyrir viðbótar menntun í verkjafræðum (advanced pain medicine) fyrir sér- fræðinga og er opin læknum í öðrum sérgreinum sem tengjast verkjum. Heilkennið er dæmi um ástand sem á að með- höndla á þverfaglegri verkjaklíník samkvæmt klín- ískum leiðbeiningum IASP. Af því tilefni langar mig að rekja stuttlega sögu þver faglegrar verkjameðferðar á Landspítala undan- farinn aldarfjórðung frá mínum sjónarhóli. Á 10. áratugnum varð almenn vakning með aukn- um áhuga á verkjum og meðferð þeirra. Það leiddi til stofnunar Verkjafræðafélags Íslands sem eru þver- fagleg samtök heilbrigðisstarfsfólks með áhuga á verkjum. Fyrsti vísir að þverfaglegri verkjameðferð á Landspítala, sem mér er kunnugt um, var samstarf læknanna Torfa Magnússonar og Ragnars Finnsson- ar í Fossvogi. Þeir hittu sjúklinga sameiginlega. Um miðjan áratuginn hófst á Hringbraut sam- vinna þriggja lækna, þeirra Sigurðar Árnasonar, krabbameinslæknis, Halldórs Jónssonar, bæklunar- læknis, og undirritaðs ásamt Eiríki Líndal, sálfræð- ingi. Á reglulegum fundum var leitað lausna á fjöl- þættum vandamálum verkjasjúklinga. Fleiri starfsstéttir bættust í hópinn, hjúkrunar- fræðingar, lyfjafræðingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálf- ari, félagsráðgjafi, sem og fleiri læknar. Frumkvæðið var starfsfólksins. Var undantekning að tíma eða fjármunum væri sérstaklega veitt til þeirrar vinnu, en verkjateymi var staðreynd. Við höfðum í flimting- um, að tími okkar væri „stolinn“. Nær hefði verið að kalla hann gjöf starfsmanna til spítalans. Þegar best lét, upp úr aldamótunum, störfuðu þverfagleg verkjateymi bæði á Hringbraut og í Foss- vogi, sem stundum héldu sameiginlega fundi. Samhliða urðu miklar framfarir á spítalanum í stillingu bráðaverkja í tengslum við skurðaðgerðir. Nefna má sídreypi í mænugöng og sjúklingastýrða verkjalyfjagjöf. Gísli Vigfússon leiddi þá vinnu. Þó var einn galli á gjöf Njarðar. Ekki var til stað- ar neitt sem kallast gæti sérhæfð verkjamóttaka eða verkjamiðstöð. Þrátt fyrir eldmóð starfsmanna fékkst ekki hljómgrunnur fyrir því meðal stjórnenda að láta í té aðstöðu sem nauðsynleg var til þess að starfsemin dafnaði. Því fór svo að henni hnignaði og þessi góði hópur tvístraðist án þess að nýir kraft- ar fylltu skörðin. Að lokum hökti vélin á tveimur strokkum. Tveir starfsmenn, Anna Gyða Gunnlaugs- dóttir, hjúkrunarfræðingur, og undirritaður sinntu ráðgjafarbeiðnum, hvorugt í fullu starfi á þeim vett- vangi. Á þeim tímapunkti, árið 2007, var verkjateymi Landspítalans formlega lagt niður. Einsdæmi var á Norðurlöndum að helsta há- skóla sjúkrahús landsins hefði hvorki verkjateymi né verkja klíník. Verkjavandi sjúklinga hvarf vitanlega ekki við þetta, en beindist að miklu leyti í annan farveg. Ég hélt áfram að sinna ráðgjafarbeiðnum vegna verkja frá deildum spítalans eftir því sem tími vannst til frá öðrum skyldum. Ákveðinn sjúklinga- hópur leitaði til mín persónulega. Sex ár liðu, en fyrri hluta annars áratugarins jókst með nýju blóði aftur áhugi á að veita góða fjölþætta verkjameðferð á spítalanum. Þá reyndust viðhorf stjórnenda gagnvart mikilvægi þverfaglegrar verkja- meðferðar jákvæðari en áður. Undirbúningur að Verkjamiðstöð Landspítala hófst 2013. Hún tók til starfa 2014 með þátttöku þriggja svæf- ingalækna með þjálfun í sérhæfðum verkjalækningum og Sigríðar Zoëga, hjúrunarfræðings og sérfræðings í verkjum. Starfsemin átti loks ákveð inn sama stað. Umfang hennar hefur aukist ár frá ári og starfsfólki fjölg- að. Þverfaglegt verkjateymi tók jafn framt til starfa. Verkjamiðstöð sinnir nú einnig utanaðkomandi til- vísunum og biðlistar hafa lengst síðustu árin, eink- um eftir ýmsum verkjastillandi inngripum sem krefjast gegnumlýsingar og skurðstofuaðstöðu. Skortur er á slíkri aðstöðu á Landspítala. Árið 2019 kom Bjarni Valtýsson, svæfingalæknir, til liðs við verkjamiðstöð Landspítala og þá hófust einnig viðræður um formlegt samstarf spítalans og Corpus Medica með aðkomu Sjúkratrygginga Ís- lands. Þær báru ávöxt í byrjun þessa árs með aukinni aðstöðu verkjamiðstöðvar til móttöku sjúklinga og verkjastillandi inngripa í Holtasmára 1. Starfsemin á Hringbraut helst að mestu óbreytt. Senn líður að starfslokum hjá mér en ég sé fyrir mér að Verkjamiðstöðin muni þróast áfram með nýj- um starfskröftum og aukinni þekkingu. Þegar nýr meðferðarkjarni Landspítala verður tekinn í notkun tel ég að verkjamiðstöð verði mikilvægur hlekkur í starfseminni þar með aðstöðu á einum stað sem sjálfstæð eining. doi 10.17992/lbl.2021.06.637 Þrátt fyrir eldmóð starfsmanna fékkst ekki hljómgrunnur fyrir því meðal stjórnenda að láta í té aðstöðu fyrir verkjateymið sem nauðsynleg var til þess að starfsemin dafnaði gudmbjor@landspitali.is

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.