Læknablaðið - 01.06.2021, Síða 7
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 275
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Multidisciplinary Pain
Treatment at Landspitali
through the years
Guðmundur Björnsson
MD, specialist in anesthesia
and intensive care with special
training in advanced pain
medicine.
Landspitali, The National
University Hospital, Iceland
Guðmundur Björnsson
sérfræðingur í svæfinga-
og gjörgæslulækningum
með sérhæfingu í
verkjalækningum
á verkjamiðstöð
Landspítala, Hringbraut
og Holtasmára 1
Þverfagleg verkjameðferð á
Landspítala gegnum árin
Í blaði mánaðarins birtist grein um „fjölþætt svæðis-
bundið verkjaheilkenni“ eftir Kristján G. Guðmunds-
son lækni. Greinin tengist starfsemi á vegum Félags
svæfinga- og gjörgæslulækna á Norðurlöndum, sem
undirritaður hefur átt aðild að síðustu tvo áratugi.
Félagið stendur meðal annars fyrir viðbótar menntun
í verkjafræðum (advanced pain medicine) fyrir sér-
fræðinga og er opin læknum í öðrum sérgreinum
sem tengjast verkjum.
Heilkennið er dæmi um ástand sem á að með-
höndla á þverfaglegri verkjaklíník samkvæmt klín-
ískum leiðbeiningum IASP.
Af því tilefni langar mig að rekja stuttlega sögu
þver faglegrar verkjameðferðar á Landspítala undan-
farinn aldarfjórðung frá mínum sjónarhóli.
Á 10. áratugnum varð almenn vakning með aukn-
um áhuga á verkjum og meðferð þeirra. Það leiddi til
stofnunar Verkjafræðafélags Íslands sem eru þver-
fagleg samtök heilbrigðisstarfsfólks með áhuga á
verkjum. Fyrsti vísir að þverfaglegri verkjameðferð
á Landspítala, sem mér er kunnugt um, var samstarf
læknanna Torfa Magnússonar og Ragnars Finnsson-
ar í Fossvogi. Þeir hittu sjúklinga sameiginlega.
Um miðjan áratuginn hófst á Hringbraut sam-
vinna þriggja lækna, þeirra Sigurðar Árnasonar,
krabbameinslæknis, Halldórs Jónssonar, bæklunar-
læknis, og undirritaðs ásamt Eiríki Líndal, sálfræð-
ingi. Á reglulegum fundum var leitað lausna á fjöl-
þættum vandamálum verkjasjúklinga.
Fleiri starfsstéttir bættust í hópinn, hjúkrunar-
fræðingar, lyfjafræðingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálf-
ari, félagsráðgjafi, sem og fleiri læknar. Frumkvæðið
var starfsfólksins. Var undantekning að tíma eða
fjármunum væri sérstaklega veitt til þeirrar vinnu,
en verkjateymi var staðreynd. Við höfðum í flimting-
um, að tími okkar væri „stolinn“. Nær hefði verið að
kalla hann gjöf starfsmanna til spítalans.
Þegar best lét, upp úr aldamótunum, störfuðu
þverfagleg verkjateymi bæði á Hringbraut og í Foss-
vogi, sem stundum héldu sameiginlega fundi.
Samhliða urðu miklar framfarir á spítalanum í
stillingu bráðaverkja í tengslum við skurðaðgerðir.
Nefna má sídreypi í mænugöng og sjúklingastýrða
verkjalyfjagjöf. Gísli Vigfússon leiddi þá vinnu.
Þó var einn galli á gjöf Njarðar. Ekki var til stað-
ar neitt sem kallast gæti sérhæfð verkjamóttaka
eða verkjamiðstöð. Þrátt fyrir eldmóð starfsmanna
fékkst ekki hljómgrunnur fyrir því meðal stjórnenda
að láta í té aðstöðu sem nauðsynleg var til þess að
starfsemin dafnaði. Því fór svo að henni hnignaði
og þessi góði hópur tvístraðist án þess að nýir kraft-
ar fylltu skörðin. Að lokum hökti vélin á tveimur
strokkum. Tveir starfsmenn, Anna Gyða Gunnlaugs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, og undirritaður sinntu
ráðgjafarbeiðnum, hvorugt í fullu starfi á þeim vett-
vangi. Á þeim tímapunkti, árið 2007, var verkjateymi
Landspítalans formlega lagt niður.
Einsdæmi var á Norðurlöndum að helsta há-
skóla sjúkrahús landsins hefði hvorki verkjateymi né
verkja klíník.
Verkjavandi sjúklinga hvarf vitanlega ekki við
þetta, en beindist að miklu leyti í annan farveg.
Ég hélt áfram að sinna ráðgjafarbeiðnum vegna
verkja frá deildum spítalans eftir því sem tími
vannst til frá öðrum skyldum. Ákveðinn sjúklinga-
hópur leitaði til mín persónulega.
Sex ár liðu, en fyrri hluta annars áratugarins jókst
með nýju blóði aftur áhugi á að veita góða fjölþætta
verkjameðferð á spítalanum. Þá reyndust viðhorf
stjórnenda gagnvart mikilvægi þverfaglegrar verkja-
meðferðar jákvæðari en áður.
Undirbúningur að Verkjamiðstöð
Landspítala hófst 2013. Hún tók til
starfa 2014 með þátttöku þriggja svæf-
ingalækna með þjálfun í sérhæfðum
verkjalækningum og Sigríðar Zoëga,
hjúrunarfræðings og sérfræðings í
verkjum.
Starfsemin átti loks ákveð inn
sama stað. Umfang hennar hefur
aukist ár frá ári og starfsfólki fjölg-
að. Þverfaglegt verkjateymi tók jafn framt til starfa.
Verkjamiðstöð sinnir nú einnig utanaðkomandi til-
vísunum og biðlistar hafa lengst síðustu árin, eink-
um eftir ýmsum verkjastillandi inngripum sem
krefjast gegnumlýsingar og skurðstofuaðstöðu.
Skortur er á slíkri aðstöðu á Landspítala.
Árið 2019 kom Bjarni Valtýsson, svæfingalæknir,
til liðs við verkjamiðstöð Landspítala og þá hófust
einnig viðræður um formlegt samstarf spítalans og
Corpus Medica með aðkomu Sjúkratrygginga Ís-
lands. Þær báru ávöxt í byrjun þessa árs með aukinni
aðstöðu verkjamiðstöðvar til móttöku sjúklinga og
verkjastillandi inngripa í Holtasmára 1. Starfsemin á
Hringbraut helst að mestu óbreytt.
Senn líður að starfslokum hjá mér en ég sé fyrir
mér að Verkjamiðstöðin muni þróast áfram með nýj-
um starfskröftum og aukinni þekkingu. Þegar nýr
meðferðarkjarni Landspítala verður tekinn í notkun
tel ég að verkjamiðstöð verði mikilvægur hlekkur
í starfseminni þar með aðstöðu á einum stað sem
sjálfstæð eining.
doi 10.17992/lbl.2021.06.637
Þrátt fyrir eldmóð starfsmanna
fékkst ekki hljómgrunnur fyrir
því meðal stjórnenda að láta í
té aðstöðu fyrir verkjateymið
sem nauðsynleg var til þess að
starfsemin dafnaði
gudmbjor@landspitali.is