Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Side 16

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Side 16
16 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - JÚLÍ 2021 R I T R Ý N D F R Æ Ð I G R E I N TENGILIÐUR: thordisgunni@gmail.com ÚTDRÁTTUR Bakgrunnur: Joð gegnir mikilvægu hlutverki á meðgöngu fyrir eðli- legan vöxt, þroska og efnaskipti fósturs. Nýlega greindist joðskortur í fyrsta skipti á Íslandi og það á meðal barnshafandi kvenna, líklega vegna minnkaðrar neyslu á fiski og mjólk. Markmið rannsóknar- innar var að skoða hvers vegna barnshafandi konur neyta ekki lengur fæðutegunda sem eru mikilvægar uppsprettur joðs. Aðferð: Um er að ræða megindlega rannsókn með þversniði. Barnshafandi konur (n=100) svöruðu spurningalista í símavið- tali þar sem meðal annars var spurt um neyslu á joðríkum fæðu- tegundum og fæðubótarefnum. Niðurstöðurnar voru bornar saman við ráðleggingar Embættis landlæknis um neyslu á mjólkurvörum og fiski. Gögnin voru greind með lýsandi tölfræði og niðurstöður settar fram með tíðnitölum og hlutföllum. Niðurstöður: Hlutfall kvenna sem sagðist aldrei neyta mjólk- urvara var 13% og aðeins 27% þeirra neytti ráðlagðra tveggja skammta á dag eða meira. Ýmsar skýringar voru gefnar fyrir lítilli neyslu mjólkurvara, til dæmis sögðust 14% kvenna ekki finnast þær góðar en 24% gáfu enga skýringu. Hlutfall kvenna sem sagðist aldrei borða fisk var 9% og einungis 27% borða fisk tvisvar í viku eða oftar. Ástæður lítillar fiskneyslu voru fjölbreyttar en 10% kvennanna fannst fiskur ekki góður og 18% gáfu enga skýringu. Einungis 7% þátttakenda tók fæðubótarefni sem innihélt joð. Ályktanir: Niðurstöður benda til þess að margvíslegar ástæður liggi að baki því að konur neyti ekki nóg af joðríkum fæðutegundum til að fullnægja þörf. Notkun á fæðubótarefnum sem innihalda joð er sjaldgæf. Mikilvægt er að koma upplýsingum um mikilvægi joðríkrar fæðu til kvenna í mæðravernd. Lykilorð: meðganga, mataræði, fiskur, mjólkurvörur, fæðubótar- efni, joð ABSTRACT Background: Iodine plays an important role during pregnancy for normal growth, development, and the metabolism of the fetus. Iodine deficiency was recently observed for the first time in Iceland, among pregnant women, most likely due to lower fish and dairy consumption when compared to previous studies. The aim of the study was to examine why pregnant women do not consume food items that are important sources of iodine. Method: This was a quantitative cross-sectional study. Pregnant women (n=100), answered a questionnaire through a telephone interview, on consumption of fish, dairy and supplements contain- ing iodine. The results were compared with the Food Based Dietary Guidelines (FBDG) from the Directorate of Health. Findings: The percentage of women claiming they never consume dairy was 13% and only 27% consumed two or more portions a day, which is in line with the FBDG. Various explanations were given for not following the guidelines on dairy consumption, e.g. 14% of the women said they did not like dairy but 24% gave no specific reason. The percentage of women who said they never consume fish was 9% and only 27% consume fish two or more times a week. Various reasons were given for not following the guidelines on fish consumption but 10% of the women do not like fish while 18% gave no reason. Only 7% of women took supplements containing iodine. Conclusions: The findings suggest that there are several different reasons for low consumption of food items rich in iodine and use of AF HVERJU NEYTA BARNSHAFANDI KONUR EKKI HELSTU JOÐGJAFA FÆÐUNNAR? Berglind Hálfdánsdóttir, dósent í ljósmóðurfræði við heilbrigðisvísindasvið HÍ Þórdís Björg Kristjánsdóttir, ljósmóðir á heilsugæslunni Firði Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði við HÍ og deildarstjóri næringarstofu LSH WHAT ARE THE MAIN REASONS FOR SUBOPTIMAL IODINE INTAKE OF PREGNANT WOMEN IN ICELAND?

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.