Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 26

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 26
26 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - JÚLÍ 2021 þær ætluðu sér í upphafi. Gegnumgangandi var að þeim fannst baráttan við erfiðleikana í upphafi margfalt þess virði þegar upp var staðið. Fyrsta undirþemað nefndist þá fór þetta að verða bara svona einfaldara. Konurnar lýstu því hvernig brjóstagjöfin varð þægilegri og einfaldari þegar á leið. Kvíðinn yfir því að hafa næga mjólk fyrir barnið var ekki eins yfirþyrmandi. Þær lýstu því hversu notalegar stundir þær áttu með barninu á meðan á brjóstagjöfinni stóð og nándin við barnið var þeim mikilvæg. Margar þeirra upplifðu einnig brjóstagjöfina róandi og þægilega. „Þetta er svo róandi [...] það er svo þægilegt ef það er eitt- hvað að pirra þau þá sækja þau bara í brjóstið og maður getur huggað þau þannig.“ (Sara) Sumar þeirra sögðu frá líkamlegum og andlegum áhrifum hormóna í brjóstagjöfinni sem kölluðu fram sælutilfinningu hjá þeim. Sunna lýsir vel líðan sinni: Einmitt þessi tilfinning þegar maður er nýbúinn í ræktinni eða búin að hreyfa sig þá er maður bara eitthvað aahh hvað þetta er gott, ánægð með sjálfa mig og svona pínu vellíðan, ég fæ svona pínu þannig tilfinningu fyrst þegar ég var að gefa brjóst. Annað undirþema, áhrif umhverfis, lýsir þeim áhrifum sem fagað- ilar og nærsamfélag höfðu á reynslu kvennanna af brjóstagjöf. Allar konurnar töluðu um nauðsyn þess að fá stuðning fagaðila og í nærsam- félaginu, hvort sem það var til þess að halda brjóstagjöfinni áfram eða þær höfðu ákveðið að þetta væri komið gott og þær ætluðu að hætta. Konunum fannst mikilvægt að fá hrós frá ljósmæðrum og hjúkrunar- fræðingum í ungbarnaverndinni. Sunna sagði: „Hún meira að segja bara klappaði mér bara sérstaklega á bakið nokkrum sinnum þegar ég kom í skoðun með hann: „Ha, þú ert með svo frábæra mjólk,“ og ég bara: „Já geggjað“.“ Upplifun Möggu var að í ungbarnaverndina vantaði að hugsa um móðurina: „Það var alltaf allt svo eðlilegt. Það er eðlilegt að gráta eftir fæðinguna, að líða illa og vera með verki og því þarftu ekki að hafa áhyggjur.“ Vinkonur, mæður, tengdamæður og ömmur höfðu áhrif á reynslu kvennanna af brjóstagjöfinni. Þær fundu að bæði væri í lagi með börn sem ekki höfðu verið á brjósti, en einnig fundu þær þrýsting um að vera með börn sín á brjósti. Oft leituðu þær ráða hjá mæðrum og vinkonum sínum sem reyndust þeim vel. „Það er gott að geta leitað eftir ráðum og stuðningi, en það getur líka verið jafn vont að fá alls konar ráð, viðhorf og visku [óumbeðið].“ (Rut) Margar konurnar nefndu að þeim hafi verið sagt að allar mæður geti haft börn sín á brjósti og ef það gengi ekki þá þyrfti bara að reyna betur. Þetta kom sérstaklega illa við þær konur sem gátu ekki haldið brjósta- gjöf áfram og upplifðu þær skömm og fannst þær vera mislukkaðar. Bella lýsir upplifun sinni: Ég held að skömmin komi svona þegar, þú veist, það er fólk í heilbrigðisstéttinni sem segir bara: „Það geta allar konur gefið brjóst,“ og svo geturðu það ekki að [...] þá náttúrulega upplif- irðu það eins og það sé eitthvað að þér, en ekki bara að það sé kannski ekki öllum gefið. Konurnar lýsa mismunandi viðbrögðum nærumhverfisins gagnvart brjóstagjöf þeirra. Magga upplifði mjög blendnar tilfinningar og var ekki sátt þegar hún þurfti að hætta brjóstagjöf og langaði hana ekki að hitta aðrar mæður sem voru með börn á brjósti. Henni fannst óþægilegt að taka upp pela og gefa barninu ef hún var innan um annað fólk, þar sem hún fékk athugasemdir um að vera ekki með barnið á brjósti. Aftur á móti fann Elva fyrir því að fólk var að setja út á það að drengurinn hennar væri enn á brjósti þegar hann var orðin fimmtán mánaða. Henni fannst þetta dónalegt. Þetta var bara hennar og barnsins, ekki annarra að hafa skoðun á. Að gefa brjóst á almannafæri var mörgum konunum erfitt. Sérstak- lega snemma í brjóstagjöfinni, en þegar leið á voru þær ekki eins feimnar. Þær konur sem áttu í erfiðleikum með brjóstagjöfina eða voru með stór brjóst vildu síður gefa brjóst á almannafæri. Algengt var að konur fóru aðeins afsíðis eða snéru sér undan þegar þær voru að gefa brjóst. Þeim fannst að fólki fyndist óþægilegt að horfa á þær gefa barni sínu brjóst. Einnig nefndu þær að barnið og þær sjálfar þyrftu ákveðna ró og næði. Síðasta undirþemað sem greint var, að vera sátt við brjóstagjöfina þó eitthvað vanti upp á, lýsir reynslu kvenna af því hvernig þær hugsa um brjóstagjöfina í dag. Tíu kvennanna voru enn með barn á brjósti þegar viðtölin fóru fram, en fjórar þeirra voru nýhættar með börnin á brjósti. Þær áttu það þó flestar sameiginlegt að vera sáttar við hvernig sem gengið hafði. Þær vildu láta brjóstagjöfina ganga upp og höfðu sýnt mikla þrautseigju þegar upp komu vandamál. Þær veltu hins vegar fyrir sér hvað hægt væri að fara fram á að kona reyndi mikið á eigin geðheilsu í viðkvæmum aðstæðum. Margar töldu að vellíðan móðurinnar væri meira virði en hver einasti dropi af brjóstamjólk. Steinunn lýsir sinni skoðun þannig: „Ég held að vellíðan móður og svona orkan sem öllu fylgir á heimilinu sé mikilvægari en hver einasti dropi af brjóstamjólk.“ Þegar kom að lokum brjóstagjafar fannst konunum mikilvægt að fá „grænt ljós“ hjá ljósmóður eða hjúkrunarfræðingi í ungbarnaverndinni. Sumar konurnar hættu brjóstagjöf vegna aldurs barnsins, eða höfðu upplifað að hún væri mikið basl, þær voru farnar að gefa mikla ábót og barnið jafnvel farið að hafna brjóstinu Aðrar voru farnar að vinna og enn aðrar voru veikar. Birna hætti brjóstagjöfinni fyrir manninn sinn þar sem hann hafði ekki tengst barninu nægilega. Sjálf upplifði hún ákveðinn létti þar sem henni fannst hún fá líkama sinn aftur. Þær konur sem áttu góða brjóstagjöf eftir erfiða fyrri reynslu voru mjög þakklátar fyrir að allt hafi gengið vel hjá þeim í þetta skiptið. „Ég var bara mjög ánægð, þó að sex mánuðir séu kannski ekki langur tími [...] þá var þetta langur tími fyrir mig sko.“ (Rut). UMFJÖLLUN UM NIÐURSTÖÐUR Niðurstöður þessarar rannsóknar eru mjög samhljóma niðurstöðum sambærilegra rannsókna, bæði innlendra og erlendra. Þátttakendur byrjuðu allar brjóstagjöf eftir fæðingu barnsins en rákust á margar hindranir í upphafi. Sumar þeirra hættu brjóstagjöf á meðan aðrar komust yfir áskoranirnar og nutu brjóstagjafarinnar í auknum mæli eftir það. Konurnar höfðu allar ákveðið á meðgöngunni að vera með barnið á brjósti þar sem þeim þótti það eðlilegt framhald af meðgöngunni. Í meðgönguverndinni fundu þær fyrir meðbyr með brjóstagjöf og þó þar væri ekki minnst á pelagjöf, upplifðu þær það ekki sem þrýsting. Símonardóttir (2016b) kemst að því í greiningu sinni á vinsælu upplýsinga- og fræðsluefni á netinu, sem skrifað er af fagfólki fyrir barnshafandi konur og foreldra á Íslandi, að ákvörðun móður um að hafa barn sitt á brjósti er algerlega gefin og sjálfsögð. Konurnar í okkar rannsókn litu á það sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut að þær yrðu með barnið á brjósti og eru því í samræmi við niður- stöður þeirrar rannsóknar. Áhugavert er að þær upplifðu ekki þrýsting frá umhverfinu, eins og kom fram í rannsókn sem gerð var í Nýja Sjálandi um áhrif heilbrigðisstarfsfólks á lengd brjóstagjafar hjá konum. Mæður þar upplifðu þrýsting frá heilbrigðisstarfsfólki, varð- andi það að börn ættu eingöngu að vera á brjósti fyrstu sex mánuðina. Þessi þrýstingur hafði neikvæð áhrif á líðan þeirra (Alinmoghaddam o.fl., 2017). Fyrri reynsla kvenna af brjóstagjöf skiptir greinilega máli. Þær konur sem upplifðu erfiða fyrri brjóstagjöf voru líklegri en konur sem höfðu upplifað farsæla fyrri brjóstagjöf, jafnvel þótt hún hafi reynst erfið í byrjun, til að íhuga að næra barnið sitt með öðrum leiðum en brjóstagjöf í þetta sinn. Niðurstöður bandarískrar rannsóknar sem 174 fjölbyrjur tóku þátt í, sýna einnig að konur íhuga annan möguleika á að næra barnið sitt ef þær hafa átt í erfiðleikum með fyrri brjóstagjöf (Schafer o.fl., 2017). Nærumhverfi kvennanna hafði mikil áhrif á það hvort þær bjugg- ust við farsælli brjóstagjöf eða ekki. Ef konurnar áttu til að mynda mömmu, systur eða vinkonur, sem höfðu átt í erfiðleikum með brjósta- gjöf þótti þeim ekkert líklegra en að þeirra eigin brjóstagjöf myndi mislukkast. Aftur á móti voru þær konur yfirleitt mjög bjartsýnar sem upplifað höfðu farsæla brjóstagjöf í sínu nærumhverfi. Og þrátt fyrir erfiðleika í upphafi voru þær bjartsýnar um að takast að yfirstíga erfið- leikana og ná markmiðum sínum hvað varðar brjóstagjöfina. Ítölsk rannsókn á brjóstagjafahefð innan fjölskyldna kemst að sömu niður- stöðu. Brjóstagjafasaga fjölskyldna var skoðuð þrjár kynslóðir aftur í tímann. Í niðurstöðunum kemur fram að ef kona var sjálf á brjósti sem nýburi er hún fimm sinnum líklegri til að vera með sín eigin börn á brjósti, en kona sem ekki var sjálf á brjósti (Porta o.fl., 2016). Verkir í geirvörtum og brjóstum, sár á geirvörtum, stíflur í brjóstum og ónóg mjólkurframleiðsla voru helstu áskoranir sem konurnar í

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.