Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 34

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 34
34 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - JÚLÍ 2021 ÁGRIP Bakgrunnur: Eftir tilkomu nýrra leiðbeininga um skimun, greiningu og meðferð meðgöngusykursýki hafa landsbyggðarljósmæður þurft að sinna fleiri konum í áhættumeðgöngum, án þess að áhrif þess á störf þeirra hafi verið metin. Tilgangur: Að kanna reynslu landsbyggðarljósmæðra, sem vinna fjarri sjúkrahúsum sem bjóða upp á áhættumeðgönguvernd (SAk og LSH) á að nota leiðbeiningar um meðgöngusykursýki. Aðferð: Rannsóknin er fyrirbærafræðileg og byggð á Vancouver- skóla aðferðinni. Tekin voru tvö viðtöl við sjö reynslumiklar landsbyggðarljósmæður sem valdar voru með tilgangsúrtaki, alls fjórtán viðtöl og þau þemagreind. Niðurstöður: Það var merkilegur samhljómur í frásögnum ljósmæðranna. Yfirþema rannsóknarinnar er Það eiga allir að sitja við sama borð: það getur samt verið erfitt í framkvæmd, sem lýsir tvíbentu viðhorfi ljósmæðranna þar sem þær annars vegar lýstu góðri reynslu sinni af því að nota leiðbeiningarnar. Þeim fannst þær skýrar, hnitmiðaðar og hjálplegar. Hins vegar ræddu þær allar um hindranir við framkvæmd þeirra sem sjá má í undirþemunum. Fimm undirþemu voru greind: 1) Ég hugsa að það grípi allar konur: hugleiðingar um aukið öryggi eða ofgreiningar. 2) Ég er bara ein í mínu teymi: reynsla ljósmæðra að hafa ekki bakland á staðnum heldur þurfa að fara fjallabaksleið að hlutunum. 3) Meira álag á konur: reynsla ljósmæðra af auknu andlegu og skipulags álagi hjá konum með meðgöngusykursýki. 4) Þær voru aldrei kynntar: reynsla ljósmæðra á óvissu um túlkun leiðbeininganna. 5) Við erum samt ljósmæður: reynsla ljósmæðra á að samræma ljósmæðrahjartað og gagnreynd vinnubrögð. Ályktun: Auðvelda þarf landsbyggðarljósmæðrum og skjólstæðingum þeirra aðgang að úrræðum svo sem næringarfræðingum og sérfræðingum og skilgreina betur aukið álag sem verður á ljósmæðrum sem sinna þessum hópi. Lykilhugtök: Ljósmóðurfræði, landsbyggðarljósmóðir, meðgöngu- sykursýki, áhættumeðganga, klínískar leiðbeiningar, fyrirbærafræði. ABSTRACT Background: With increasing incidence resulting from newer national guidelines of risk assessment, diagnosis and management of gestational diabetes, Iceland’s rural midwives care for more women in high-risk pregnancies without assessment of the effect it has on their work. Purpose: To explore the lived experience of rural midwives, who work far away from hospitals that offer high-risk maternity care (SAk and LSH), of using guidelines for gestational diabetes. Method: The study is phenomenological and based on the Vancouver- School method. Seven experienced rural midwives were selected as a purpose sample, and fourteen interviews conducted and thematically analysed. Results: The midwives accounts displayed a remarkable harmony. The overall theme of the study is that Everyone should sit at the same table: yet it can be difficult in practice, which describes the midwives’ ambivalent views of the subject as they, on the one hand, describe their good experiences of using the guidelines, finding them to be clear, concise, and helpful. However, they all spoke of difficulties they faced in their implementation, which can be seen in the sub-themes. Five sub- themes were constructed: 1) I think it picks up all women: reflections on increased security or overdiagnosis. 2) I am alone on my team: midwives’ experience of having no backup on-site and having to go through alternate R I T R Ý N D F R Æ Ð I G R E I N TENGILIÐUR: oddnyosp@gmail.com REYNSLA LANDSBYGGÐARLJÓSMÆÐRA AF NOTKUN KLÍNÍSKRA LEIÐBEININGA UM SYKURSÝKI Á MEÐGÖNGU Sigfríður Inga Karlsdóttir Ljósmóðir, prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri Oddný Ösp Gísladóttir Ljósmóðir MS., deildarstjóri fjölskyldudeildar Heilbrigðisstofnun Austurlands Sigríður Sía Jónsdóttir Ljósmóðir, dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri RURAL MIDWIVES´ EXPERIENCE OF USING CLINICAL GUIDELINES FOR GESTATIONAL DIABETES

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.