Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 18
18 – Sjómannablaðið Víkingur
Hilmar Snorrason
Ljósmyndakeppni
sjómanna á Norðurlöndum 2010
Í níunda sinn tóku vinningshafar í ljós-
myndakeppni Sjómannablaðsins
Víkings þátt í Norðurlandaljósmynda-
keppni sjómanna. Sú keppni var að
þessu sinni haldin í Krónborgarhöll á
Helsingjaeyri í Danmörku. Helsingja-
eyri, eða réttara sagt Helsingör, er í dag
mikill ferjustaður enda sigla fjórar ferj-
ur daglega yfir til Helsingjaborgar í Sví-
þjóð. Krónborgarkastali hefur frá 1915
hýst Sjóminjasafnið á Krónborg og var
því við hæfi að hafa úrslit ljósmynda-
keppni sjómanna þar. Að vísu er skipa-
risinn A.P. Möller Mærsk að fjármagna
byggingu nýs sjóminjasafns sem er í
gamalli dokk við hlið kastalans og mun
safnið opna þar á næsta ári.
Það var föstudaginn 4. febrúar sem
umsjónarmenn ljósmyndakeppna á öll-
um Norðurlöndunum hittust á skrifstofu
Velferðarþjónustu danskra sjómanna í
Kaupmannahöfn en þaðan var ekið
norður til Helsingjaeyrar. Í heildina
kepptu 154 sjómenn með 1094 myndir
um að komast í undanúrslit í öllum
löndunum en einungis 15 myndir frá
hverju landi fá að taka þátt í úrslita-
keppninni. Það land sem heldur keppn-
ina hverju sinni velur þarlenda dómara
sem að þessu sinni voru Danirnir Laura
Christensen ljósmyndari og Benjamin
Asmussen eftirlitsmaður safnsins.
Eftir að myndunum 75 hafði verið
raðað upp yfirgáfum við umsjónar-
menn ljósmyndanna skrifstofu safnsins
og dómarar gengu í það erfiða verk að
velja vinningsmyndirnar fyrir árið 2010.
Öll vorum við sigurviss enda hafði hvert
Norðurlandanna bestu myndirnar. Eftir
tveggja tíma störf voru úrslitin tilkynnt
og kom í ljós að einungis ljósmyndir frá
Svíþjóð og Noregi höfðu að þessu sinni
unnið til verðlauna.
Dómararnir sögðu valið mjög erfitt.
Fyrst komust 20 myndir í gegnum nálar-
augað. Þar á meðal voru margar íslenskar
myndir. En lokahnykkurinn var að velja
5 ljósmyndir til verðlauna.
Í fyrsta sæti varð mynd brytans Jörgen
Språng á tankskipinu Bit Okland en það
skip sigldi reglulega með olíur hingað til
lands. Jörgen átti einnig myndirnar sem
lentu í fjórða og fimmta sæti. Þetta mun
vera í fyrsta sinn sem sami maður fær
fleiri en eitt verðlaunasæti og hlýtur
hann í verðlaun stafræna myndavél að
verðmæti 5000 DKR frá Walport Scandi-
navia, 350 evrur frá Sjómannablaðinu
Víkingi og 300 evrur frá finnsku kaup-
skipaútgerðinni Finnlines.
Í öðru sæti varð Daniel Möllerström
háseti á norska skipinu Tor Viking II.
Fyrir mynd sína fékk hann ljósmynda-
vörur fyrir 5000 NKR sem Norska Sigl-
ingamálastofnunin gaf. Þá fékk önnur Hér getur að líta allar þrjár verðlaunamyndir Jörgens.
1 .