Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Blaðsíða 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur
tök sjómanna mótmæltu þessu kröftuglega en sjómannaprestar
í hafnarborgum ræddu við sjómenn og gerðu kannanir á land-
gönguleyfum þeirra. Í október s.l. skrifaði Barack Obama undir
ný lög þar sem krafa er gerð um að öryggisáætlanir hafnar-
svæða verði að koma upp kerfi sem gerir öllum þessum aðilum
kleift að komast í gegnum hafnarsvæðin að og frá skipum sín-
um án nokkurs kostnaðar. Binda menn miklar vonir við að
breyting verði á ástandinu í bandarískum höfnum en til við-
miðunar við samningu nýju laganna var stuðst við niðurstöður
sjómannaprestanna.
Fullur skipstjóri
Kóreanskur skipstjóri flutningaskipsins STXC Daisy, sem skráð
er í Panama, var dæmdur í fjórtán daga fangelsi í Bandaríkj-
unum fyrir ölvun við stjórn skipsins. Þá er honum bannað að
koma í bandaríska lögsögu í sex mánuði. Við áfengismælingu
reyndist Sin Seong Ug skipstjóri vera með tvisvar sinnum meira
magn í blóðinu en heimilt er. Atvikið átti sér stað þegar skipið
var að sigla um Pugetsund á leið til Seattle. Strandgæslan hafði
átt í vandræðum með að komast um borð en skipstjórinn fór
ekki að fyrirmælum þeirra sem vakti grun um að hann væri
undir áhrifum áfengis. Hann hefði örugglega sloppið ef hann
hefði verið að koma til hafnar á Íslandi jafnvel þótt hann hefði
verið tvisvar sinnum fyllri.
Risaskipin koma brátt
Umræður um 18.000 TEU gámaskip hafa staðið lengi en síðasta
dag febrúar mánaðar skrifaði A.P. Möller Mærsk undir skipa-
smíðasamning við Korea‘s Daewoo Shipbuilding & Marine
Engineering í Kóreu um smíði á 10 gámaskipum af þeirri
stærð. Samningurinn gerir ráð fyrir að útgerðin hafi forgang um
smíði á 20 skipum til viðbótar sömu gerðar. Um er að ræða
byltingarkennda hönnun á skipagerðinni þar sem verulega
verður horft til hagræðingar í rekstri sem og að mengun frá
skipinu verði í algjöru lágmarki. Hönnunarhraði þessa skipa-
gerðar verður líklega í samræmi við þá nýju stefnu útgerðar-
innar að minnka siglingahraða skipa sinna til að draga úr olíu-
notkun. Ekki er því búist við að um hraðskreið skip verði að
ræða. Skipin eiga að afhendast á tímabilinu 2013 til 2015 og
munu þau breyta öllum skilningi á stærð og hagkvæmni í sigl-
ingum samanborið við það fullkomnasta í dag sem er skipið
Emma Mærsk og systurskip þess. Þau hafa hlotið tegundar-
heitið Tripple E klassi og verða 400 metra löng, 59 metra breið
og hæðin litlir 73 metrar. Skipin verða 16% stærri en stærstu
gámaskip í dag. Gert er ráð fyrir að skipið muni eyða um 35%
minna eldsneyti en 13.100 TEU‘s gámaskip gera í dag. Hvert
skip mun kosta 190 milljónir dollara. Allt efni sem notað
verður til smíði skipanna verður vottað og skráð í „cradle-
to-cradle“ vottorð sem táknar að þegar skipin verða rifin er
hægt að endurnýta allt sem frá skipunum mun koma. Við
munum sannarlega fylgjast með smíði fyrsta skipsins á þessum
síðum.
Sektaðir
Nýlega var gámaskiparisinn A.P. Möller Mærsk fundinn sekur
fyrir dómstólum í Bretlandi fyrir að hafa brotið ákvæði um
vinnu- og hvíldartíma um borð í einu skipa sinna. Um var að
ræða gámaskipið Maersk Patras sem sigldi undir breskum fána
en þarlend siglingayfirvöld framkvæmdu skoðun um borð í
skipinu í Bremerhaven í september 2009. Skipstjóri, yfirmenn
og undirmenn höfðu ekki fengið lögboðna hvíld og var út-
gerðin aðvöruð. Útgerðin sendi tilkynningu til allra skipa sinna
um að fara að reglum um vinnu- og hvíldartíma en það kom
ekki í veg fyrir að ástandið breyttist um borð í Maersk Patras.
Var útgerðin sektuð um 18.500 pund auk þess að greiða kost-
nað upp á 4.500 pund. Bresk siglingayfirvöld hafa farið af stað
með átak í að skoða hvort farið sé eftir tilskipunum um vinnu-
og hvíldartíma um borð í breskum skipum og erlendum skip-
um sem koma þar til hafnar. Bent er á að dómurinn yfir A.P.
Möller ætti að vera sterk skilaboð til útgerða um að passa upp á
hvíldarákvæði skipverja sinna. Hvernig ætli staðan sé hjá okkar
íslensku sjómönnum? Sömu reglur gilda hér á landi og hjá Bre-
tum en hver kannar hvort eftir þessum kröfum er farið?
Prestige
Þau eru orðin mörg árin og margir pistlarnir sem ég hef skrifað
í gegnum árin um slysið þegar olíuskipið Prestige brotnaði un-
dan ströndum Spánar 14. nóvember 2002 og skipstjóri skipsins
var hnepptur í fangelsi. Spænskur dómstóll krafðist 3 milljóna
evra í tryggingu fyrir að láta skipstjórann lausan úr haldi en
samtök sjómanna og útgerða brugðust hart við og sögðu að
mannréttindi væru brotin. Útgerð skipsins yfirgaf skipstjórann
en London Club tryggingaklúbburinn tók upp á sitt einsdæmi
að greiða tryggingargjaldið til að skipstjórinn Apostolos Man-
gouras kæmist til síns heima í Grikklandi. Málið var kært til
Mannréttindadómstóls Evrópu sem dæmdi spænskum stjórn-
völdum í vil. Er það lögfræðilegt mat bæði Alþjóða- og Evrópu-
sambands flutningaverkamanna að Spánverjar hafi brotið
Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna er Spánn undirri-
taði 1976 og innleiddi 1977. Mangouras skipstjóri eigi því einn
möguleika eftir og það er að láta lögfræðinga sína sækja málið
fyrir Mannréttindadómstóli Sameinuðu þjóðanna.
Mikil reiði
Það liggur við að Utan úr heimi sé að mestu undirlagt undir
stærstu útgerð heims A.P. Möller Mærsk. Samtök sjómanna,
Nautilius International, hafa ráðist að útgerðinni í kjölfar til-
kynningar frá þeim síðarnefndu um 2.25 billjón dollara hagnað
af gámaskiparekstri útgerðarinnar. Í tilefni af þessum mikla
hagnaði sendi yfirmaður Maersk Line, Morten Engelstoft,
áhöfnum gámaskipanna skilaboð þar sem sagði að hversdags
skuldbinding skipverja í að draga úr kostnaði hefði haft veruleg
áhrif á afkomu ársins. Hvatti hann áhafnir til að samgleðjast
skrifstofufólkinu í aðalstöðvunum í Kaupmannahöfn og fagna
þessum árangri með því að hafa á borðum hina hefðbundnu
Utan úr heimi
Apostolos Mangouras er líklegast frægasti skipstjóri heims í dag og það ekki af
góðu. Hans eina von er Mannréttindadómstóll SÞ.