Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Blaðsíða 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur framhaldinu var farið að skrá skip af miklum krafti í skrána. Þrátt fyrir að hin nýja og sameiginlega skrá sem hlaut nafnið Lloyd´s Register of British and Foreign Shipping teldist ekki formlega stofnuð fyrr en nefndin sem stóð að stofnun hennar sagði af sér í 21. október 1834 hafði hún þá þegar tekið til starfa af miklum myndarskap eins og þegar hefur komið fram. Nöfn helstu starfandi skipaskráa, flokkunarfélaga Eins og glöggt kemur í ljós þegar stofnár þessara skipaskráa eru borin saman þá var Lloyd’s skráin búin að starfa í um 60 ár þegar sú næsta var stofnuð, Bureau Veritas (BV), í Antverpen Belgiu árið 1828. Þrátt fyrir að engar upplýsingar liggi fyrir a.m.k. í mínum gögnum um hvert Belgarnir sóttu fyrirmyndina að sinni skrá er líklegt að hún hafi verið sótt til nágrannanna í Bretlandi. Sama má segja um hinar 9 skrárnar, en sú síðasta var ekki stofnuð, fyrr en á árinu 1960 eða tæpum 300 árum á eftir Lloyd’s skránni en fyrirmyndin að þeim öllum kemur trúlega frá Lloyd’s enda allar byggðar upp á sömu prinsipp- um. Það sem vakti athygli mína og fékk mig til þess að kynna mér þessa sögu var nafnið Lloyd sem ég hélt, þar til ég fór að grúska í þessu, að ætti sér virðulega upphafs- sögu tengda skipum en ekki nafni manns er stofn- aði vinsælt kaffihús í London á síðari hluta átjándu aldar. Af ástæðum sem ég kann ekki skýr skil á en hægt er að geta sér til um hefur Lloyd’s nafnið öðlast ímynd hins trausta og fullkomna í vitund margra. Þessa ímynd hafa ýmsir nýtt sér með því að nefna framleiðsluvörur sínar sama nafni. Hver kannast ekki við Lloyd’s skóna, með rauðu hælröndinni, sem eiga að vera öðrum skóm betri og eru verðlagðir í samræmi við það þó að margir fullyrði að það eina sem þeir hafi fram yfir aðra velgerða skó úr sama efni sé rauða röndin sem færi þeim sem í þeim ganga sjálfsmynd sem sé mun glæsilegri en efni standa til. Fyrir nokkru keypti ég mér te sem ber heitið Loyd, ekki alveg eins skrifað og frummyndin en nógu líkt til að fá menn til að halda að hér sé um framleiðslu tengda Lloyd’s að ræða. Ágrip af sögu Lloyd´s hér á landi Á Íslandi hefur Lloyd’s Register (LR) verið með starfsemi frá árinu 1921. Fyrsti umboðsmaðurinn var M. E. Jessen, sem var jafnframt fyrsti skólastjóri Vélskóla Íslands, en árið 1949 tók Viggo R. Jessen við. Hann lét af störfum árið 1985 en þá var opnuð formleg skrifstofa LR hér á landi. Fyrsti forstöðumaður skrifstofunnar var Kristján Ólafsson en árið 1988 tók við nú- verandi forstöðumaður, Páll Kristinsson. Þeir fjórir menn sem veitt hafa Lloyd’s Register forstöðu hér á landi hafa allir tengst vélstjórastéttinni á einn eða annan hátt. M. E. Jessen var skólastjóri Vélskóla Íslands, Viggó R. Jessen var menntaður vélstjóri og sömuleiðis Kristján Ólafsson. Sá er veitir Lloyd’s Register forstöðu í dag er með full vélstjóraréttindi (VF1) og verkfræðipróf á sviði skipa og véla. Kröfur varðandi hæfni og kunnáttu skoðunarmanna LR eykst jafnt og þétt eins og tíðkast á ýmsum öðrum sviðum. Hér á landi hefur aðalstarfsemin ætíð verið borin uppi af reglubundnum skoðunum LR flokkaðra íslenskra skipa. Nýlega var svo skrifað undir samning við Samgönguráðuneytið sem veitir LR leyfi til að framkvæma hluta lögbundinna skoðana á íslenskum skipum sem flokkuð eru hjá félaginu. Einnig hefur verið nokkuð um skoðanir á erlendum LR flokkuðum skipum sem hafa hér viðkomu. Má þar nefna olíuskip, flutningaskip og skemmtiferðaskip. Það að flokka skip er að beita alþjóðlegum reglum eða tæknistöðlum varðandi skipsskrokkinn og allan vélbúnað skips- ins. Flokkunarreglum er beitt á öllum stigum byggingar skips- ins. Endanleg úttekt fer síðan fram á skipinu í lok byggingar þess. Eftir að skip er komið í rekstur hefjast reglubundnar skoðanir á því, þ.e. á öllum skoðunarskyldum vélbúnaði og öllu stálvirki þess. Eins og komið hefur fram eru hinar svokölluðu lögbundnu skoðanir (öryggisbúnaðarskoðun, radíóskoðun, mengunarvarnarskoðun o.fl.) á ábyrgð skráningarríkis skipsins. Á Íslandi er það samgönguráðuneytið sem ber ábyrgð á að þessum skoðunum sé framfylgt en Siglingastofnun sér hins vegar um framkvæmd eftir- litsins nema þar sem samn- ingar kveða á um annað, samanber framangreindan samning. Yfirleitt eru það flokkunarfélög eins og Lloyd’s Register sem sjá um hinar lögbundnu skoðanir á skipum af hálfu fjölda ríkja veraldar. Á síðari árum hefur starfsemin að auki farið inn á fleiri brautir, s.s. eftirlit með smíði þrýstikúta og kælikerfa, framkvæmd suðuprófa og útgáfu vott- orða fyrir suðumenn. Einnig hefur LR á Ís- landi milligöngu um ýmsa þjónustu sem veitt er er- lendis, s.s. yfirferð og samþykkt teikninga, rannsóknir á elds- neytis- og smurolíusýnum og ýmis tilfallandi verkefni. Á undanförnum árum hafa nokkrum sinnum verið fengnir sérfræðingar á ýmsum sviðum frá höfuðstöðvum Lloyd’s í Bret- landi til að halda fyrirlestra og fundi með viðskiptavinum Lloyd’s hér á landi og öðrum um mál sem eru ofarlega á baugi í það og það sinnið. Heimildir: Lloyd´s Register 250 years of service og Páll Kristinsson umboðsmaður Lloyd´s á Íslandi

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.