Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Blaðsíða 49
Sjómannablaðið Víkingur – 49
dönsku lagköku. Formaður Nautilius, Mark Dickinson, líkti
þessu við ummæli Maríu Antoinette, „látum þá éta kökuna“
þegar hún heyrði að franskir bændur berðust við hungurvof-
una. Dickinson segir að samkvæmt viðbrögðum frá félagsmönn-
um sínum á skipum útgerðarinnar séu þeir líklegri til að éta
eigin reiði frekar en að fagna með höfuðstöðvunum. Hagnað-
inum hefði útgerðin náð með því að losa sig við vel menntaða
og reynda sjómenn sem og að draga svo úr kostnaði að fæðis-
kostnaðurinn vart dyggði til að setja krem á lagkökuna sem
þeir ættu að éta útgerðinni til samlætis. Þá hefðu þeir ekki
lengur leyfi til að vera með sérvettur til að þurrka sér eftir
kökuátið en útgerðin bannaði slíkt fyrir nokkru síðan eins og
áður hefur verið skrifað um á þessum síðum. Yfir 40% gáma-
skipaáhafnanna ætla að sameinast í mótmælum gegn kökuskila-
boðunum. Þeir vilja fá viðurkenningu á þeirra framlagi með
öðrum hætti en í kökulíki. Sören Andersen yfirmaður útgerð-
arstjórnunar Maersk Line sagði fyrirtækið hlusta vel og vand-
lega á allar athugasemdir. Nú er að sjá hvort kakan verði
stækkuð?
„Kjaftatíkur“
Bandaríska strandgæslan hefur náð ótrúlega góðum árangri með
því að verðlauna þá sem segja frá mengun frá skipum þeirra í
bandarískri lögsögu. Nýlega höfðu tveir skipverjar á skipi und-
ir tyrkneskri útgerðarstjórn samband við bandarísku strand-
gæsluna og sögðu frá að vélstjórar skipsins hefðu búið til fram-
hjáhlaup framhjá olíuskilju og dælt menguðum sjó fyrir borð.
Rekstraraðilinn var dæmdur í 800.000 dollara sekt auk þess að
greiða 100.000 dollara til umhverfissjóðs fyrir að falsa olíu-
dagbók skipsins. Fyrir vikið fengu skipverjarnir hvor um sig
125.000 dollara eða 14,3 milljónir íslenskar.
Sjórán ekki lengur umflýjanleg
Í síðustu viku febrúar sendu alþjóðleg samtök í skiparekstri að-
vörun um að sjórán væru orðin svo hömlulaus að skip hefðu
ekki lengur neinar mögulegar siglingaleiðir til að forðast árásir
sjóræningja. Samtökin, BIMCO, ICS, ISF, Intercargo, INTER-
TANCO og ITF hafa byrjað sameiginlega herferð til að fá al-
menning til að þrýsta á ríkisstjórnir um að fara í virkar aðgerðir
gegn sómölskum sjóræningjum. Sjóræningjarnir eru farnir að
gera út frá móðurskipum sem þeir hafa áður rænt í stað þess að
stunda iðju sína frá landi eins og var í fyrstu. Bent hefur verið á
að sjóræningjarnir gerast stöðugt öflugri og ríkari með hverjum
deginum sem er afleiðing tregðu stjórnvalda til að grípa inn í
málið. Af þessu tilefni er þrýst á UK Chamber of Shipping að
lýsa allt Indlandshaf sem stríðssvæði fyrir hönd tryggingasala.
Þá hefur ITF varað útgerðir við að þær gætu fengið ákæru um
manndráp ef þær halda áfram að senda skip sín um hafsvæði
þar sem sjóræningjar stunda iðju sína.
Vissir þú þetta um Titanic?
Árið 1898 eða fjórtán árum áður en Titanic fórst skrifaði
Morgan Robertson rithöfundur bókina Futility, or the Wreck
of the Titan. Í þeirri skáldsögu segir frá stóru farþegaskipi,
Titan, sem sigldi á ísjaka eina kalda apríl nótt og margir farast
með skipinu. Titan var stærsta skip sem nokkru sinni hafði
verið smíðað af mannshöndinni. Skipið í sögunni var búið
vatnsþéttum skilrúmum auk þess sem ekki var nægur fjöldi
björgunarbáta á því fyrir alla um borð. Hvort Robertson hafi
verið skyggn eða spámaður skal ósagt látið en hann skrifaði
aðra skáldsögu árið 1914 sem fjallaði um stríð milli Banda-
ríkjanna og Japans sem byrjaði með árás á Hawaii.
Sjómenn hafa fengið nóg af sjóránum en hagsmunaaðilar segja þau vera orðin
með öllu hömlulaus.
Opið
mán - fös kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Úlpur
Kápur
Peysur
Góðar vörur
á tilboði
Yfirhafnir kvenna
á öllum aldri
í fjölbreyttu
úrvali