Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Blaðsíða 39

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Blaðsíða 39
Sjómannablaðið Víkingur – 39 Edward Lloyd var rúmlega tvítugur þegar hann flutti til London, í kringum 1680. Fyrir 1688 hafði hann opnað eigið kaffihús við Tower Street. Fyrstu staðfestingu þess má finna í Lundúnadagblaðinu Gazette í febrúar árið 1689 en þar birtist auglýsing þess efnis Lloyd’s kaffihús ætlaði að greiða hverjum þeim, eina Guinea, er kæmi á kaffihúsið og veitti upplýsingar um þjóf er stolið hafði miklum fjölda úra í borg- inni skömmu áður. Hér var greinilega á ferðinni maður sem kunni tökin á markaðssetningu eins og síðar kemur betur í ljós. Kaffihúsin, vettvangur þeirra ábyrgu Á árinu 1691 flutti Edward Lloyd kaffihúsið á nr 16 við Lom- bard Street þar stefndi hann að því að gera kaffihúsið að miðstöð þeirra sem höfðu áhuga á öllu því sem varðaði skip og rekstur þeirra. Af því tilefni safnaði hann saman öllu tiltæku efni þessu tengdu og hafði tiltækt í kaffihúsinu, jafnvel daglegt slúður um grein- ina var hægt að nálgast þar og með tímanum varð kaffihúsið vettvangur viðskipta með vörur og þjónustu sem varðaði skip og rekst- ur þeirra. Til frekari staðfestingar á því að kaffihúsið væri bæði miðstöð þeirra sem byggju yfir þekkingu á sviði skipa og skiparekstri hóf Edward Lloyd á árinu 1696 að gefa út blaðið Lloyd’s News – sem fjallaði aðallega um skip og málefni þeim tengd – og kom út þrisvar í viku. Þrátt fyrir að blaðið kæmi ekki út nema í um eitt ár hélt Lloyd áfram að senda fyrri áskrifendum bréf sem höfðu að geyma ýmsar upplýsingar um skip og skiparekstur sem hann nálgaðist hjá samstarfsaðilum. Það var fyrst á síðari hluta sautjándu aldar að farið var að safna þekkingu um skip og rekstur þeirra á skipulegan hátt í London. Eigendur skipa, kaupmenn og tryggingatakar hittust á kaffihúsum til þess að skiptast á upplýsingum er vörð- uðu skiparekstur almennt og bera saman bækur sínar hvað það varðar og tengt efni. Skrifstofur sem hýstu starfsemi við- skipta af einhverju tagi voru óþekktar í London á þessum árum þeirra í stað voru kaffihúsin notuð sem þá voru að ryðja sér til rúms í borginni og veittu pöbbunum harða samkeppni en pöbbarnir voru einmitt þeir staðir í borginni þar sem menn hittust til skrafs og ráðagerða um leið og nokkrir öllarar voru innbyrtir. Á þessum árum jukust vinsældir kaffi- húsanna hjá þeim sem voru að skiptast á ýmsum viðkvæmum upplýsingum eða voru að stofna til viðskipta af ýmsu tagi. Þar má t.d. nefna flutninga milli landa sem fóru þá að stærstum hluta fram með skipum. Þessir aðilar völdu kaffihúsin til skrafs og ráðagerða vegna þess að þótt þeir fengju sér nokkra bolla af kaffi þá hélst dómgreindin óbjöguð sem var ekki raunin þegar bjórinn var drukkinn. Á þessum árum var kaffihús Lloyd’s afar vinsæll samkomu- staður þeirra sem tengdust skiparekstri af einhverju tagi, skips- og farmeigendum. Á kaffihúsi sínu hafði Lloyd tekist að skapa einstakt and- rúmsloft þar sem gestunum leið vel, fundu að þeir voru vel- komnir og gátu ótruflaðir skipst á þýðingarmiklum og oft við- kvæmum upplýsingum um skipareksturinn. Talið er að upphafið að Lloyd’s tryggingafélaginu, Lloyd’s flokkunarfélaginu og The Corporation of Lloyd´s megi rekja til spjallsins á kaffihúsi Lloyd’s í London þótt formleg stofnun nefndra félaga yrði ekki fyrr en nokkru síðar. Sama gildir um Lloyd’s List sem að margra mati tekur við af Llod’s News sem áður er nefnt. Blaðið kom fyrst út á árinu 1734; það fjallaði heildstætt og stöðugt um skip og tengt efni allt frá útgáfudegi en á þessum árum voru upplýsingar úr blöðum bæði sjaldgæfar og ótraustar. Lloyd’s List var lengi vel eini fréttamiðillinn sem sérhæfði sig í að flytja vandaðar fréttir af því sem var að gerast á þessum markaði. Upphaf skipaskrárinnar, flokkun skipa Í upphafi voru nöfn skipanna eingöngu í Lloyds skipaskránni, þe. Lloyd’s List, hvorki var þar að finna upplýsingar um verðmæti skipanna sem þar voru skráð né ástand þeirra á hverjum tíma en upplýsingar um hvoru- Helgi Laxdal Kaffihúsið og Lloyd’s Register Á kaffihúsi Edward Lloyd’s, við Tower Street í London. Einkennilegt nokk þá stóð Edward sjálfur aldrei í neinni tryggingastarfsemi en bauð hins vegar upp á fréttir af skipum og veitti ýmsa þjónustu er kom þeim vel er stóðu í farmflutningum sjóleiðina, hvort sem voru skipstjórar, kaupmenn eða útgerðarstjórar. London var borg verslunar og viðskipta. Skip af öllu tagi lögðu þangað leið sína og Englendingar áttu kaupskip á öllum heimshöfunum sjö. Sjómenn lögðu grunninn að heimsveldi Breta.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.