Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Síða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Síða 15
Sjómannablaðið Víkingur – 15 Þeir þekktu ekki veðurlagið þarna Benedikt: Ördeyða var hér við land, hvergi kvikindi að hafa. Fórum kannski hringinn í kringum landið í einum túr. Þá var Sæmundur Auðunsson sendur með Fylki vestur sumarið 1958 og Jakob Magnússon, fiskifræðing, og þeir fundu karfamið við Nýfundnaland á Ritubanka.1 Þetta var því fyrsti veturinn á karfa þarna, og menn höfðu ekki kynnt sér veðurlagið. Þokka- legt veður fram að jólum, en það breyttist á útmánuðum. Á árunum 1960–1961 komu stóru togararnir Freyr, Maí, Sigurður og Víkingur. Við vorum á Frey við Nýfundnaland 1960–1961, þeim veiðum var ekki hætt 1959. Á Frey var útbúnaður í for- mastri og vöntum til að bræða ís, en ég held, að ekki hafi verið búið að tengja hann, þegar ég var á honum. Ekki var hætt á Nýfundnalandsmiðum, fyrr en þau voru uppurin nokkru eftir 1960. Allir voru þarna, Rússar og Þjóðverjar með stór skip og Kanadamenn, Hollendingar, Pólverjar, óhemju floti. Benedikt: Á mynd sjást litli og stóri, bv. Jón forseti og rúss- neskt verksmiðjuskip á Ritubanka. Myndin er tekin um borð í bv. Ólafi Jóhannessyni. Svona hálf míla er í skipin. Þessi stóru skip voru þarna í Nýfundnalandsveðrinu. Þeir vissu ekkert af því. Þetta voru skuttogarar, yfir 3000 tonn. Þeir sáu til þriggja síðutogara, einn stefndi suðvestur mjög ísaður, sögðu blöðin.2 Ólafur: Togarar frá Nýfundnalandi fórust í þessu veðri og kannski pólskir líka.3 Blue Wave frá St. John´s fórst með 16 manna áhöfn, en áhöfn Cape Dolphins var bjargað. Nýlega var minnt á sjóslys í óveðrum á þessum slóðum við Nýfundna- land árin 1959, 1966, 1979 og 1982, og að þau hefðu öll orðið í febrúar.4 Togarinn Ágúst frá Hafnarfirði lenti í illviðri og mikilli ísingu á leiðinni á Nýfundna- landsmið rétt fyrir jól 1958. Barinn var ís dag eftir dag. Hann komst á miðin, eftir að veðrið gekk niður og hóf strax veiðar. Bv. Ágúst kom hlaðinn til Hafnafjarðar á gamlársdag, og togaramönnum var vel kunnugt, í hverskonar veðri hann hafði lent.5 Haukur: Veiðum var sjálfhætt á Ritu- banka í febrúar 1959 og ekki lagt í þær aftur þarna út þann veturinn. Svo byrjuðu þær aftur. Um 38% af öllum íslenzka togaraaflanum kom frá Nýfundnalandi 1958 og um 44% árið 1959.6 Minn fyrsti túr á togara var einmitt á Óla Jóh. á Ný- fundnalandsmið. Við fórum frá Reykjavík 2. desember 1958 og komum inn til Patreksfjarðar úr túrnum þann 18. Af þessum tíma fóru um 5 sólarhringar í siglingu hvora leið, svo að það tók um viku að fylla skipið. Dúnalogn var á miðunum, en bræla hluta af leiðinni vestur. Karfanum var landað í frystihúsið á Patró til flökunar. Ólafur: Gæti hann hafa rifnað eins og á Elliða 1962? Hafði Júlí verið styrktur eða var það enn ógert eins og á Elliða, þegar hann sökk? Júlí og Elliði voru systurskip. Benedikt: Klössun var 6, 10 og 12 ára, 12 ára var mjög stór. Ég skal ekki fullyrða, hvort búið var að styrkja Júlí, þegar hann fór sína síðustu ferð. Skipið var smíðað 1947 og því komið að 12 ára klössun. Stinga mátti spannaskafti í rifurnar! - Rætt við Benedikt Brynjólfsson, togarasjómann - Aðrir þátttakendur: Haukur Brynjólfsson og Ólafur Grímur Björnsson – Fimmti hluti – Rússneskt verksmiðjuskip á Ritubanka og togarinn Jón forseti, líklegast að hala. Myndin er tekin um borð í bv. Ólafi Jóhannessyni. Ljósmynd: Benedikt Brynjólfsson Ísing. Ekki auðveldustu vinnuaðstæður. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.