Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Qupperneq 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Qupperneq 17
Sjómannablaðið Víkingur – 17 ekki var á bullandi hausnum, en ók samt flottasta bílnum og bjó í stærsta og flottasta húsinu, hvernig sem það var nú hægt borgandi milljónir með útgerðinni.“ Benedikt: Já, grein í Morgunblaðinu, þá löngu hættur til sjós.9 Ég stóðst ekki mátið í sjómannaverkfallinu, þegar setja átti lög á sjómenn. Hræðslupeningar Jónasar gleymast ekki. Þegar útgerðin þóttist vera komin í þrot, heimtuðu þeir alltaf gengisfellingu og fengu hana, fengu sína gengisfellingu. Benedikt: Allir nýsköpunartogararnir sprungu líkt og Elliði. Skeði á Óla Jóh. eins og minnzt hefur verið á áður. Hann var svo brotinn sitt hvoru megin við há- dekkið fyrir framan spilið, að þegar búið var að landa í Bremerhaven eftir jólin 1957, þá var farið með skipið í viðgerð í skipasmíðastöðinni þarna, Seebeck Werft. Þjóðverjarnir sögðu, að þetta skip ætti ekki að vera á floti, stinga mætti spanna- skafti niður um rifurnar! ... við vorum sjálfir búnir að prófa það. Svo gerðu þeir við skipið, og við fórum heim. Við hefð- um getað farið niður í Norðursjónum, því við fengum gufuvitlaust veður frá Færeyjum og á leiðarenda, og einmitt í þeim átökum opnuðust þessar sprungur, sem við að vísu höfðum séð örla fyrir, en ekki hugsað meira um. Það fórust skip í þessu veðri, og neyðarköll heyrðust í talstöðinni allan sólar- hringinn. Já, farið niður eins og Elliði nokkrum árum seinna. Hann sökk í sama veðri og þegar við vorum í nokkuð vafasömu ástandi á Agli Skallagrímssyni á leið til Bret- lands með ísfisk. Fengum brjálað veður fyrstu nóttina, og menn urðu þess varir, að trollbönd höfðu losnað í sjóganginum. Sennilega hefur stýrimaðurinn óttazt, að hluti trollsins flyti út og færi í skrúfuna. Ég var þá sendur niður á dekk við annan mann til þess að festa böndin. Það tókst ekki, en mig tók næst- um því út við þetta. Mönnum var brugðið, og ekki var hugað Júpíter GK, líklega árið 1947 á Vestfjarðamiðum. Fékk seinna nafnið Guðmundur Júní ÍS 20. Ljósmynd: Frá Hafliða Óskarssyni. Hvar sérð þú enska boltann FRIÐRIK A. JÓNSSON EHF VERÐUR Á BÁS B11 Á ÍSLENSKU SJÁVARÚTVEGSSÝNINGUNNI 22-24 SEPTEMBER VERIÐ VELKOMIN! FAJ Friðrik A. Jónsson ehf Akralind 2 - 201 Kópavogur S: +354 552 2111 - F: + 354 552 2115 www.maras.is GPS-áttavitiTalstöðvar frá SAILOR SAILOR GMDSS AIS CLASS-B 12 wött

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.