Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 23
Sjómannablaðið Víkingur – 23 Frásögn þessa, af sjóhrakningum m/s Drangajökuls austur af Hvarfi á Grænlandi í janúar 1953, skráði Eyjólf- ur, að hluta eftir frásögn Matthíasar Björnssonar loftskeytamanns. Matthías- ar var minnst í síðasta tölublaði en Eyjólfur lést 10. ágúst síðastliðinn. Nú sigla þeir félagarnir blíðan sjó og skeggræða um horfna tíma. Veðrið skellur á Ég hafði fengið pláss á m/s Drangajökli 1., áður Foldin, sem loftskeytamaður. Drangajökull var lítið skip, 630 brúttó rúmlestir, en gott sjóskip, í eigu Sölu- miðstöðvar Hraðfrystihúsanna. Skipstjóri var Ingólfur Möller. Skipið lá við land- festar í friðarhöfn í Vestmannaeyjum, sem var síðasta lestunarhöfnin. Ferðinni var heitið til New York með fullfermi af freðfiski. Sextán menn voru í áhöfn. Austan stormur var og mikill súgur í höfninni. Harkalega rykkti í landfestar. Ingólfur vildi hraða brottför og skip- verjar kepptust við að sjóbúa skipið, sem tók nokkurn tíma, því að í Ameríku sigl- ingum voru bómustög og blakkir í möstrum tekin niður, til að forðast ís- ingu. Látið var úr höfn um miðnætti, 23. janúar 1953. Ferðin sóttist vel í fyrstu, en brátt skall á aftaka veður af norðvestri með hörku frosti. Undir kvöldið á þriðja degi birtist allt í einu borgarísjaki rétt framan við skipið. Skyggni var slæmt. Naumlega tókst að komast hjá árekstri með því móti að beita vélarafli til hins ýtrasta og miklu álagi á stýri. Skipið var nú statt 90 sjómílur austur af Hvarfi á Grænlandi. Reynt var að halda sjó í norðvestan fárviðrinu, með öllu tiltæku vélarafli. Skipstjóri bað mig að ná sambandi í gegnum Reykjavíkur radío, sem tókst og var Ólafi Þórðarsyni, farstjóri Jökla, sagt frá ástandinu. Stuttu seinna slitnuðu niðurtök loftleiða og þar með vorum við orðnir sambandslausir. Nú varð að grípa til örþrifaráða, fara upp á brúarþakið í þeirri von að geta fangað niðurtakið. Ingólfur skipstjóri samþykkti ráðagerð- ina og þrír saman, ég og hásetarnir, Eyjólfur Guðjónsson, síðar yfirstýrimað- ur og skipstjóri hjá Jöklum til margra ára, og Sverrir Erlendsson, síðar skip- stjóri á b/v Úranusi í eigu Tryggva Ófeigssonar, paufuðumst af stað í veður- ofsanum. Ekki var um annað að ræða en að binda sig fasta við brúarþakið þar sem við biðum og vonuðum. Ráðagerðin tókst og með aðstoð Eyjólfs og Sverris var ég fljótur að tengja niðurtakið við raforku skipsins. Stjórnlausir Undir miðnætti aðfaranótt 25. janúar rifnaði glussadæla stýrisvélar. Þó mátti Eyjólfur Guðjónsson Í fárviðri á stjórnlausu skipi Drangajökull lestar tunnur í Flekkufirði í Noregi 31. júlí 1956. Skipið var smíðað í Kalmar í Svíþjóð árið 1947 fyrir Skipafélagið Fold hf í Reykjavík. Skipstjóri var Ingólfur Möller og fylgdi hann skipinu yfir til Jökla árið 1952. „Það gat verið erfitt að ráða við skipið ólestað og þýddi ekkert að sigla beint á móti sjó og vindi. Ef skipið var tómt fylltum við botntanka þess af sjó svo það lægi betur,“ rifjaði Ingólfur Möller upp í samtali við söguritara Jökla árið 1996.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.