Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 25
Sjómannablaðið Víkingur – 25 var að láni frá Vélsmiðjunni Héðni. Geir tók að sér að sjóða saman stálbolt- ana sem festu stýrisrammann – hann „brasaði“ þá saman, eins og það var kallað, við ógnarhita. Um rafsuðu með gas og súr var ekki að ræða um borð. Viðgerð þessi var eingöngu möguleg vegna þess að Ingólfi tókst að snúa skipinu þannig að Geir gat notað renni- bekkinn, sem staðsettur var bakborðs- megin í vélarrúminu. Ég man ekki betur en að karlarnir í vélarrúminu þyrftu að halda bekknum á lofti svo að Geir gæti unnið við hann, svo mikill var hallinn á skipinu Viðgerðin tókst vel og þriðjudaginn 27. janúar, þegar veðrið hafði að nokkru gengið niður, var skipinu snúið undan og haldið með hægri ferð áleiðis til Reykjavíkur. Þrír sólarhringar voru liðnir frá því fárviðrið skall á og hafði Ingólfur staðið allan þann tíma á stjórnpalli. Ekki verð- ur efast um það að öruggar og hárréttar skipanir hans leiddu til þess að við náð- um heilir til hafnar úr þessum hildarleik. Laugardaginn 31. janúar sigldum við aftur inná Reykjavíkurhöfn og ég sé ennþá fyrir mér mörg vot augu þeirra er tóku á móti ástvinum sínum sem heim komu úr þessari erfiðu ferð. Þakkir eru allri áhöfn færðar og þá sérstaklega Ingólfi Möller. Morgunblaðið var líka felmtri slegið. Hinn 1. febrúar stóð feitletrað á forsíðu: „Mesta fárviðri í manna minnum gekk yfir Bretlandseyjar“. Og í undirfyrirsögn: „3000 smál, skip með 180 farþegum sökk við Írland“ – og þess getið að leit stæði yfir í brakinu. Daginn eftir var á forsíðu: „Hundruð manna hafa farizt í flóðunum í Vestu-Evrópu“. Og í undirfyrirsögn: „Ekkert hefur heyrzt til 200 brezkra togara, sem voru á veiðum á fárviðrasvæðinu“. Ekki varð hvíld áhafnarinnar á Dranga- jökli löng. Hinn 3. febrúar 1953 birtist eftirfarandi í skipafréttum Morgun- blaðsins: H. f. J Ö K L A R Vatnajökull var vestur af Norður-Spáni í gærmorgun á leið til Ísrael. Dranga- jökull fór frá Rvík áleiðis til New York í gærmorgun.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.