Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 30
30 – Sjómannablaðið Víkingur mikið að það fraus strax yfir gatið. Einnig brotnaði stýrisvélin þegar báturinn kastaðist afturábak. Við það brotnaði tveggja tommu stálbolti sem tengdi saman tvo stálarma. Nú rak okkur fyrir sjó og vindi en eftir um tvo tíma tókst okkur að koma nýjum pinna í við hinar verstu aðstæður á dekkinu. Þarna máttum við bjástra fyrir aftan stýrishúsið í stöðugri ágjöf og frosti. Ísinn barinn af Mér fannst báturinn orðinn leiðinlegur á veltunni enda yfir- ísaður. Skreið ég þá upp á stýrishúsið með öxi og batt mig við radarinn og hjó þannig ísinn af stýrishúsþakinu. Hálf ömurlegt gamlárskvöld það. En það munaði um ísinn sem ég losaði af þakinu og hreyfingar bátsins urðu miklu eðlilegri á eftir. Um kl. 04.00 komumst við af stað aftur, þá staddir um 25 mílur undan Long Island en þangað stefndum við. Sex klukku- stundum síðar vorum við loks komnir upp undir eyjuna. Sigld- um austur með landi. Sjórok og ísbarningur allan daginn. Mikið frost. Þriðjudagur 1. janúar 1963: Long Island liggur í austur frá New York og er um 110 mílna löng. Nú var lónað austur um og látið reka við Montauk Point, við austurenda eyjarinnar. Eftir hádegi var þess freistað að halda áfram til Block Island, sem er eyja 15 mílum austar og 55 mílum frá New Bedford, en við neyddumst til að snúa við sökum veðurs. Ísbarningurinn hélt áfram og sama rokið geisaði. Miðvikudagur 2. janúar: Eftir miðnætti fer að lægja. Við leggjum af stað kl 06.00. Norðanátt 20-30 mílur. Bjart veður. Kl. 12.30 kastað um 15 sjómílum suður af Gay Head. 20-30 körfur af Yellow Tail í holi. Togað í einn og hálfan tíma. Fimmtudagur 3. janúar: Við veiðar á svipuðum slóðum, afli svipaður. Norðan gola. Föstudagur 4. janúar: Kl. 01.00 lagt af stað til New Bedford. Sex klukkustundum síðar leggjumst við þar að bryggju og lönd- um 20.000 pundum af Yellow Tail og 2.800 pundum af flúka. Kveðjur til Íslands Ég get ekki skilist við þessa sjóferð án þess að minnast á annan bát, Austin W. Hann var við veiðar á sömu slóðum og við út af New York og sneri til lands um svipað leyti og við. Raunar sáum við til hans annað slagið á siglingunni en hann kom aldrei fram né sjö manna áhöfn. Vafalítið hefur ísinn hvolft honum að lokum. Ég bið svo að heilsa öllum kunningjunum á Íslandi, sérstak- lega skólafélögunum úr Stýrimannaskólanum 1950. Þær geta orðið sæmilega stórar flúkurnar (fluke á frummálinu), eins og myndin sýnir, en til eru nokkrar tegundir flúka. „SONUR OKKAR PABBA“ Það var fyrir alllöngu síðan í sveit einni á Norðurlandi, búsældarlegri og grösugri, að á jörð einni bjuggu feðgar tveir. Ráku þeir bú saman af miklum dugnaði, voru sann- kallaðir þrifabændur og nutu af því virðingar. Innanhúss var allt annar bragur, þrifnaður og matseld í lakasta lagi. Nú verður að ráði, að með hjálp Bændasamtakanna fyrir sunnan, fengju þeir sér ráðskonu. Var hún á góðum aldri og heldur heppin með andlit og kropp. Brá fljótt til betri vegar innanstokks. Brátt fór sá orðrómur um sveitina, að ráðskonan byggði ekki rúm sitt ein á nóttum. Skal nú þess getið, að siðferði í sveitinni var með mikl- um ágætum og börn utan hjónabands nokkru fátíðari en svartir svanir og sannir kratar. Konur höfðu með sér félagsskap, sem saumaklúbbur nefndist. Hittust þær einu sinni í mánuði, fjórða hvern sunnudag eftir messu, á heimili prestsins. Tíðindalaust er af hannyrðum, en þær gæddu sér á heitu súkkulaði með ágætum rjóma, þeyttum. Héldu þær litlafingri beinum, eins og gert er í útlöndum; en það höfðu þær séð í kvennaritinu „Alt for damerne“, sem prestsmaddaman keypti, enda kunni hún dönsku. Ræddu þær einkum siðgæði þeirra feðganna, sem ráðskonuna höfðu fengið. Töldu þær, að þar væri sonurinn að verki, enda lítt ábyrgur og hneigður fyrir glaumgosalegt líferni. Karlarnir höfðu með sér kór. Æfingar voru annan hvern fimmtudag og sungu þeir ættjarðarlög af elju. Hina fimmtudagana riðu þeir út og höfðu þá þorstavara í hnakktöskunni. Ræddu þeir einnig þetta mál og töldu, að þar væri sá gamli að verki, enda útsmoginn til flestra hluta, þótt hægt færi. Nú gerist það, að ráðskonan verður barni aukin. Ber hún þunga sinn með prýði og elur í fyllingu tímans dá- fallegan son. Var hann allur í föðurættina. Nefndur var hann eftir afa sínum, fékk nafnið Jón, en til styttingar kallaður Nonni. Hið annað ævivor Nonna litla var efnt til skemmtunar í félagsheimili sveitarinnar. Fóru þangað allir, sem heiman- gengt áttu, einnig sonurinn og Nonni litli. Kjáðu konur mjög í Nonna litla og dásömuðu sakir fríðleiks. Í kurteisi sinni spurðu þær soninn, hvaða barn þetta væri, en hann svaraði að bragði: „Þetta er hann Nonni litli, sonur okkar pabba.“ (Sögn frá síðustu öld.)

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.