Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Qupperneq 40
40 – Sjómannablaðið Víkingur
Ungum fannst mér mest heillandi
við stangveiði þegar mér var treyst
til að vera einum við ár eða vötn. Þá gat
ég dundað mér tímunum saman, velt
við steinum, tuggið strá og hlustað á
almætti þagnarinnar. Stundum gat
þögnin bergmálað, jafnvel breyst í
hávært suð – en alltaf var hún einstök,
indæl og hlý. Ég sat einn á þúfnakolli,
fékk mér niðursoðna sviðasultu og
horfði á fuglana.
Frá þessum rótum hef ég stundað
minn veiðiskap. Ég held af stað með fá-
breyttan kost, hef lopapeysuna innan
seilingar, gef lítið fyrir merkjavöru eða
tískustrauma, vil hafa það náðugt, ná
mér í fisk og njóta þess að láta ógreiddan
lubba minn bærast í andardrætti eilífð-
arinnar. Himbrimi syngur ámótlega á
vatninu, smyrill kemur í loftköstum og
slær andvaralausan músarrindil kaldan,
fiskur byltir sér í vatnsskorpunni og ég
blunda á bakkanum með mosaþembu
fyrir kodda – ennþá með strá bernsk-
unnar á milli tannanna.
Kúrekar kyssast
Síðdegis í ágúst var ég við veiðar í skag-
firskum afdal með tveimur vinum mín-
um. Við gistum í ágætu sumarhúsi, eld-
uðum kótelettur í raspi, drukkum dálítið
rauðvín, gengum okkur upp að hnjám
meðfram afskekktri á og veiddum
nokkrar bleikjur.
Þegar ég kom heim, alsæll og þreytt-
ur, vildi svo til að í sjónvarpsfréttunum
var verið að fjalla um laxveiðar á Íslandi.
Landeigandi austur á landi – það sem
áður var kallað bóndi – vildi láta gera
laxastiga meðfram friðlýstu náttúruundri
og leigutaki árinnar var sammála nauð-
syn þessa því það yki arðsemi árinnar og
svo framvegis.
Undir trúverðugu mali þeirra voru
birtar myndir af laxveiðimönnum að slá
saman lófum og kyssast eftir að einn
þeirra hafði landað laxi og sleppt honum
aftur. Mennirnir voru reimaðir í goretex–
fatnað frá hvirfli til ilja með kúrekahatta
og sólgleraugu. Öll umgjörð veiðiskap-
arins var eins og fullkomin uppsetning á
góðu leikriti og hundrað þúsund kall-
arnir drupu af hverju strái.
Ég staðnæmdist í stofunni með bleikj-
urnar mínar tvær í gulum Bónuspoka,
fann þessar fáu heilasellur sem ég hef af
að státa taka feilpúst og sjálfur fékk ég
einhver furðuleg ónot um allan líkam-
ann.
Hvurs lags bull er þetta eiginlega?
stundi ég í átt að kærustunni sem virtist
vera imponeruð yfir laxveiðimönnunum
en þó fegin að fá silungakallinn aftur
heim.
Sleppa að veiða og sleppa
Ég hef ekkert á móti því að menn sleppi
aftur veiddum fiski en sjálfur vil ég helst
sleppa því að veiða og sleppa, nema við
sérstakar aðstæður.
Snemma síðasta vor fór ég með
nokkrum félögum í tveggja daga ferð í
gjöfula silungsveiðiá þar sem engan fisk
má hirða og öllu ber að sleppa. Fyrri
daginn var á að giska 70 fiskum landað
Hvaleyrarbraut 27 · 220 Hafnarfjörður
Sími: 564 3338 · Fax: 554 4220
GSM: 896 4964 ·898 2773
Kt.: 621297-2529
Börkur Bragi Baldvinsson glímir við bleikju efst í Runukvísl í Vesturdal í Skagafirði.
Ragnar Hólm Ragnarsson
Andardráttur
eilífðarinnar