Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Síða 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur
Nóg að gera hjá Betu
Það er ekki ofsögum sagt að Elísabet Englandsdrottning hefur
kappnóg að gera við það eitt að gefa skipum nöfn. Í lok sept-
ember gaf hún nýju skipi Cunard skipafélagsins nafn í höfninni
í Southampton en það var nýjasta skip flotans sem hún gaf sitt
eigið nafn eða Queen Elizabeth. Var þetta fjórða skip félagsins
sem Beta gaf nafn en það fyrsta var Caronia árið 1947. Áður
höfðu þrjú skip verið nafngefin af ríkjandi konungi en það
fyrsta var árið 1934 þegar Queen Mary var hleypt af stokk-
unum.
Gífurlega erfitt ár
Skipverjar egypska flutningaskipsins Suez, 17.300 tonn að
stærð, lentu í ákaflega kröppum dansi sem enginn sjómaður
með réttu ráði segði já við. Í ágúst á síðasta ári var skipið tekið
af sómölskum sjóræningjum er kröfðust lausnargjalds fyrir
skipið. Í áhöfn þess voru 22 skipverjar, 11 Egyptar, sex Indverj-
ar, fjórir Pakistanar og einn frá Sri Lanka. Það liðu 10 mánuðir
áður en samkomulag náðist við sjóræningjana um að láta skip
og skipverja lausa en þeim var sleppt 14. júní s.l. eftir að 2,1
milljón dollara höfðu verið greiddir. Miklar aðgerðir voru þá í
gangi með að taka á móti skipinu en aðgerðin gekk undir nafn-
inu Umeed-e-Nau. Þann 16. júní kom pakistanska freigátan
PNS Babar til skipsins til að veita því aðstoð af mannúðarástæð-
um. Var læknum, hjúkrunarfólki og sérdeildarmönnum komið
um borð til að aðstoða skipverjana ásamt að koma með mat og
lyf fyrir þá. Jafnframt var freigátan til staðar við skipið en þrátt
fyrir það reyndu sjóræningjar enn á ný að ráðast um borð í skip
og ræna því á ný. Freigátan skaut á þá viðvörunarskotum sem
fældi þá í burtu. Ástand Suez var ekki upp á það besta eftir all-
an þennan tíma og var því dráttarbátur fenginn til að draga
skipið til hafnar í Óman enda engin olía eftir um borð. Vélar-
bilun varð í dráttarbátnum eftir að hafa verið með skipið í
drætti í nokkra daga en dráttartaugin slitnaði eftir að veður
fór að versna. Skipstjóri Suez óskaði þá eftir að skipverjarnir
yrðu allir teknir frá borði af mannúðarástæðum sem og var
gert en þá var kominn leki að skipinu. Sökk Suez skömmu
síðar en skipverjarnir komust allir heilir á höldnu um borð í
freigátuna Zulfiqar sem hélt með þá til hafnar eftir mjög erfitt
ár.
Deilur
Í tengslum við björgun skipverja Suez úr haldi sjóræningja hafa
komið upp erjur milli Indverja og Pakistana. Hvor þjóð kærði
hina. Fjalla kærurnar um að freigátur frá löndunum tveim sem
hafi verið á svæðinu hafi sýnt ógætilega siglingu og stjórntök í
þeim eina tilgangi að fá heiðurinn af því að koma skipinu til
aðstoðar og að fylgja því til hafnar. Þá hefur stjórnarformaður
útgerðar skipsins staðfest að útgerðin greiddi 1, 45 milljónir
dollara og pakistanskur aðili gaf 850 þúsund dollara til að leysa
málið. Útgerðin hafði áður samband við indversk stjórnvöld
með ósk um að leggja til peninga til lausnar málsins en var
neitað um aðstoð.
Leiðbeiningar til skipaeigenda
Útgerðasamtökin BIMCO, sem 65% útgerða heimsins eru aðilar
að, eru að útbúa leiðbeiningar til útgerða um samskipti við
sjóræningja. Telja þeir nauðsyn að komið sé á verklagi í sam-
skiptum við þá því sjóræningjar eru farnir að stunda þá iðju að
sleppa ekki sjómönnum úr haldi þrátt fyrir að lausnargjald hafi
verið greitt. Gera þeir þetta til að þrýsta á að sjóræningjum sem
náðst hafa sé sleppt úr haldi. Benda þeir á að útgerðarmenn
verði að passa sig á því að það sé ekki nóg að fá sönnun þess
að gíslarnir séu á lífi þegar greiðsla lausnargjalds sé greitt held-
ur verði þeir að fá tryggingu fyrir því að allir gíslarnir verði
látnir lausir en ekki bara hluti þeirra. Þegar útgerð tankskipsins
Asphalt Venture hafði greitt 3,5 milljónir dollara í lausnargjald
í apríl s.l. til sómalskra sjóræningja héldu þeir eftir sjö af
fimmtán manna indverskri áhöfn skipsins til að þrýsta á ind-
versk stjórnvöld að sleppa sjóræningjum sem þar bíða dóms.
Einnig benda þeir á mikilvægi þess að útgerðir borgi ekki
fyrsta uppsetta verð heldur fari í samningaviðræður um lausn-
argjald. Þegar risaolíuskipinu Sirius Star var rænt 2008 kröfðu
sjóræningjarnir eiganda skipsins Vela International um 25
milljónir dala í lausnargjald en eftir samningaviðræður tókst að
ná samkomulagi um 3 milljónir dala. Aftur á móti ef gagntil-
boð útgerða við fyrstu kröfum sjóræningja er fáránlega lágt
mun það einungis leiða til þess að lengja þann tíma sem skip-
verjarnir verða í haldi eða jafnvel leiða til enn hryllilegri at-
burða.
Skítugt skip
Cundard skipafélagið vinnur nú hörðum höndum við að lág-
marka skaða sem hlaust af því að lúxusskip útgerðarinnar
Queen Mary 2 féll á heilbrigðisskoðun í New York í júní s.l. Við
heilbrigðisskoðun á matvælageymslum skipsins fundust lifandi
ávaxtapöddur og kakkalakkar í matarílátum. Þá fundust manns-
hár í ísvél, sundlaugarvatn í einni sundlaug var mjög skítugt og
flísar við laugina voru þaktar dökku slýi og hárum. En þetta var
ekki allt. Kassar með matvælum voru geymd ásamt drulluskít-
ugum hlutum sem og að fjöldi þilfara og þilja voru skítug og
sköpuðu þar með ýmsar hættur. Fulltrúi útgerðarinnar fullyrti
að þessi niðurstaða ætti aðeins um mjög einangraðan hluta
skipsins og að þegar hefði verið gripið til viðeigandi ráðstaf-
anna. Bæði stjórnendur um borð og í landi hefðu yfirfarið regl-
ur skipstjórans og þjálfun hefur verið aukin til að ná aftur þeim
háu gæðum sem útgerðin gerir til skipa sinna. Skipið hafði
fengið einkunnina 84 af 100 mögulegum í þessari skoðun en
hafði í skoðuninni næst á undan verið með 86. Fyrr hafði skip-
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Áhöfn flutningaskipsins Suez lentu í miklum sjóræningja hremmingum sem
enduðu með því að skipið þeirra sökk. Ljósmynd: Valeri Roussinov.