Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Page 45
Sjómannablaðið Víkingur – 45 ið skorað 95 og 100 í fjölda skoðana sem sýnir að verulega hafði slaknað á eftirliti um borð. Óvenjulegur árekstur Suðurafrískur fiskimaður varð heldur betur fyrir óvenjulegu slysi fyrir skömmu þar sem hann var á siglingu undan Simon‘s Town skammt frá Höfðaborg. Hann fékk akkeri bátsins sem hann var á í andlitið eftir að hafa siglt á hval. Báturinn var á siglingu um 400 metra frá landi þegar skyndilega kom upp hvalur og lenti á bátnum með þessum afleiðingum. Bátsverj- arnir sáu ekki hvalinn fyrr en báturinn var ofan á skepnunni. Skipstjórinn sagði að það hefði mátt líkja þessari ákomu við hvalinn eins og að sigla í strand á klettum og taldi hann mikið lán að bátnum skyldi ekki hvolfa þar sem hann var uppi á hval- skrokknum. Á þessu svæði koma hvalir á vorin til að eðla sig og fæða eftir að hafa verið við Suðurskautslandið. Sjóslys Í nýlegum tölum frá evrópsku siglingamálastofnuninni EMSA um sjóslys á hafsvæðum sambandsins kemur fram að dauðs- föllum fjölgaði milli áranna 2009 og 2010 um 9 eða upp í 61 dauðsfall. Samtals urðu 559 sjóslys á árinu 2010 en höfðu verið 540 árið á undan. Þrátt fyrir þessar tölur bendir EMSA á að árin þar á undan hafi þessar tölur verið umtalsvert hærri en árið 2008 létust 82 í 670 sjóslysum. Bent er á að meðal ástæða fækkunar milli áranna 2008 og 2009 megi rekja til 15-20% samdráttar í siglingum. Sú gerð skipa sem flest banaslysin urðu á voru fiskiskip eða 20. Næst á eftir voru það almenn flutninga- skip, frystiskip, stórflutningaskip og ekjuskip en þar urðu banaslysin 17. Sjóferðabækur eða húka um borð Nú hefur brasilíska útlendingaeftirlitið hert á eftirliti og fram- kvæmd laga sem banna sjómönnum frá löndum, sem ekki hafa undirritað samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um skilríki sjómanna, að fara í land af skipum sínum. Eina leið þeirra til að komast frá borði er að hafa visa sem getur verið erfitt að nálgast með stuttum fyrirvara, sérstaklega ef skipverj- arnir hafa ekki fyrirfram vitneskju um áfangastað. Sama bann mun einnig gilda um áhafnaskipti en P&I tryggingaklúbburinn upplýsti nýlega að sjómenn hefðu verið sektaðir um allt að 1.000 dollara fyrir að fara í land án tilskilinna skilríkja. Nú halda eflaust margir að íslenskir sjómenn séu í góðum málum ef þeir koma til hafna í Brasilíu en svo er ekki. Vissulega hafa íslensk stjórnvöld undirritað umrædda samþykkt (ILO 108/1958) en í þeirri samþykkt er kveðið á um að sjóferðabók sem sjómenn eiga að geta framvísað en slíkar bækur hafa ekki fengist hérlendis sem uppfylla kröfurnar sem samþykktin gerir. Íslenskir sjómenn, passið ykkur á að ráða ykkur ekki á skip sem eiga að sigla til Brasilíu. Fallinn risi Einn af ríkustu mönnum heims, Sammy Ofer, lést nýlega 89 ára að aldri. Nú spyr lesandinn sjálfsagt; hvers vegna er minnst á þennan Ofer hér? Jú, ástæðan er sú að hann byggði upp fjöl- skylduútgerðina ZIM Lines sem er ísraelsk kaupskipaútgerð að uppruna en færði út hluta starfsemi sinnar til Bretlands og Singapúr. Sammy var mjög þekktur í sínu heimalandi sem góð- gerðarfulltrúi enda látið yfir 100 milljónir dollara rakna til góð- gerðarmála í heimalandi sínu Ísrael. Hjá útgerð Samma störfuðu amk. þrír íslenskir skipstjórnarmenn hér áður fyrr samkvæmt upplýsingum pistlahöfundar. Lélegt fæði Þau eru ekki mörg árin liðin frá því ég sagði á þessum síðum af uppsögnum danskra bryta á skipum A.P. Møller- Mærsk. Það er hugsanlegt að nú sé skipafélagið að súpa seiðið af þessari að- gerð því nýlega viðurkenndi stjórnarformaðurinn Michael Pram Rasmussen á aðalfundi útgerðarsamsteypunnar að maturinn um borð í skipum félagsins væri ekki nógu góður og hann þyrfti að bæta. Kom þetta í kjölfar gagnrýni stéttarfélaga sjó- manna á ástandinu. Sagði formaðurinn að ákveðið hefði verið að hækka matarkostnaðarheimildir skipstjóranna um 14% sam- anborið við síðasta ár. Stjórnarformaðurinn vildi þó geta þess að útgerðin væri engu að síður á meðal 25% bestu útgerða sem borguðu hæstu matartilleg til skipverja. Að lokum gat hann þess að það væri gífurlega mikilvægt að gera sérstaklega vel við áhafnir skipa útgerðarinnar hvað mat áhrærði. Einelti Bresku og hollensku yfirmannasamtökin NUMAST gerði nýlega könnun meðal félagsmanna sinna á einelti um borð í skipum. Niðurstöður könnunarinnar voru sláandi en 40% þeirra sem svöruðu höfðu upplifað persónulega einelti. Þessar tölur eru umtalsvert hærri en meðaltal allra stétta í Bretlandi en þar hefur einelti mælst 20%. Því miður virðist sem margir íslenskir sjó- menn kannist við að hafa tekið þátt í eða verið þolendur eineltis um borð í skipum. Málaferli Sérstök málaferli eru nú í gangi fyrir bandarískum dómstólum. Um er að ræða fyrirtæki að nafni Navigea sem tók upp á sitt einsdæmi að sækja á hafsbotn svartan kassa úr sokknu skipi. Einn af tveimur eigendum Naviega er Paul Allen, annar stofn- anda Microsoft risans. Þeir hafa nú gert kröfu á hendur út- gerðar skipsins, GAP Shipping, um að þeir greiði fyrir upptök- una á svarta kassanum. Skipið sem hér um ræðir hét Discovery og sökk við Suðurskautslandið árið 2009 eftir að hafa rekist á ísjaka. Naviega bera við björgunarlögum í tilraun sinni að fá Drottningin fékk heldur betur útreið í hreinlætisskoðun. Ljósmynd: ADNeedham.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.