Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Síða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2011, Síða 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur kostnaðinn greiddan en útgerðin bendir á að það hafi ekki verið nokkur þörf á að ná í þennan svarta kassa af 4000 feta dýpi enda allar staðreyndir málsins kunnar. Eflaust muna margir eftir snekkju Allens sem kom til Reykjavíkur í júlí 2010 og hefur hún eflaust verið notuð til að ná upp svarta kassanum enda kafbátur meðal búnaðar snekkjunnar. Smælki úr farþegabransanum Á síðasta ári komst farþegaskipið AIDABella í Heimsmetabók Guinnes fyrir að vera stærsta skemmtiferðaskip heims til að draga á eftir sér sjóskíðafólk. Í ágúst í fyrra varð alvarlegt upp- þot meðal farþega um borð í Carnival Dream þar sem skipið var á ferð milli Belize og Caosta Maya. Senda þurfti 10 farþega heim. Sextán farþegum af Celebrity Mercury var rænt og haldið í gíslingu í nóvember s.l. þar sem þeir voru í rútuferð á Kara- bíaeyjunni St. Kitts. Í lok nóvember komst farþegi á Ryndam fram á bakka skipsins og fór að fikta í akkerisbúnaði þess með þeim afleiðingum að akkerið féll en skipið var á siglingu þegar þetta gerðist. Á fyrstu dögum þessa árs varð Radiance of the Seas að snúa við til hafnar í Tampa eftir að 150 farþegar og skipverjar höfðu fengið slæma magakveisu með tilheyrandi óþægindum. Eftir sótthreinsun salerna skipsins gat það haldið áfram ferð sinni. Í sömu viku týndist karlkyns farþegi af Liberty of the Seas þegar skipið var á leið til Belize. Farþeginn var úr fjölskylduhópi en við skoðun á eftirlitsmyndavélum skipsins sást hann klifra yfir lunningu og hoppa fyrir borð. Titanic sannleikur Eins og lesendur eru meðvitaðir um sökk Titanic árið 1912 og hafa ýmsar kenningar verið í gangi á öllum sviðum þessa sorg- lega atburðar. Ein þessara kenninga var sú að á milli Titanic, sem var að sökkva, og Californian sem var skipið sem hefði getað bjargað fullt af fólki hafi sést til skips sem ekki sinnti neyðarkalli Titanic. Talið var að hér hefði verið á ferðinni norskur selfangari, Samson, sem ekki hefði þorað að láta vita af sér þar sem hann var á ólöglegum veiðum á svæðinu. Gekk þessi kenning fjöllunum hærra, að sögn höfð eftir einum skip- verja selfangarans. Rithöfundurinn Leslie Reade skrifaði mjög merka bók um Californian, The ship that stood still, og komst að því að ógjörningur hefði verið fyrir Samson að vera á slys- staðnum því þann 6. apríl var skipið í höfn á Ísafirði og aftur þar í höfn 20. apríl. Titanic sökk 12. apríl í 3.000 sjómílna fjar- lægð frá Ísafirði en Samson hafði hámarkshraða 6 hnúta. Það hefði tekið Samson 42 daga að komast fram og til baka. Þeir hefðu þurft að ferðast 18 sjómílur á klukkustund fram og til baka til að geta verið viðstaddir þegar Titanic seig í djúpið. Utan úr heimi Discovery hefur valdið deilum eftir að hafa sokkið við Suðurskautslandið. Ljósmynd: Hilmar Snorrason. „Æðarkollurnar koma stundum á vorin, vængbrotnar og fótalausar - og hauslausar.“ Presturinn í Laufási að útlista afleiðingar ofsókna á hendur æðarfuglinum. * „Ja, mitt fé er nú vanara því að vera skorið.“ Þingeyskur bóndi um aldamótin 1900 en hann hafði rekið fé sitt inn á Akureyri til slátrunar og var spurður hvort frekar ætti að skjóta féð eða skera. * Einu sinni kom svín með vorskipinu til Húsavíkur. Mun það hafa verið óvanalegt og lék mörgum forvitni á að sjá þá skepnu. Einkum var tilnefndur bóndi einn ofan úr sveitum. Hann hafði aldrei séð svín áður og datt helst í hug að þetta væri einhverskonar smíðisgripur en þótti það of illa gert til þess að vera komið frá útlöndum. Spyr hann einhvern nærstaddan hvort það sé víst að þetta sé ekki smíðað á Íslandi. „Og langt í frá,“ svarar maðurinn sem spurður var, „það kom frá Danmörku núna með skipinu.“ „Jæja, mér er sama um það,“ segir bóndinn þá alvarlegur í bragði. „Hvar sem það er smíðað og af hverjum, þá er það reglulegasta handaskömm.“ * Kerling var á Dalhúsum í Eiðaþinghá sem Margrét hét. Það var sagt að hún hafi einu sinni óskað að hún væri komin innan í stærsta hákarlinn sem væri í sjónum, og „ ... þá skyldi Manga éta.“ * „Hér í þessum firði hafa menn gert út frá alda öðli og veitt hval, sel og ýmsa aðra fiska.“ Egill á Seljavöllum á ferð með fjárveitinganefnd Alþingis á Seyðisfirði. * „Við verðum að vernda silfur hafsins, þorskinn.“ Lúðvík Bergvinsson, þá alþingismaður fyrir Alþýðu- flokkinn, seinna Samfylkinguna. D ý r a f r æ ð i

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.