Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Side 13
Sjómannablaðið Víkingur – 13
Hinn 14. febrúar 1968 kom ég mér
fyrir í sæti siglingafræðings um
borð í Landhelgisgæsluflugvélinni TF
SIF. Klukkan var rúmlega 9 um morgun-
inn og við vorum að fara að leita að
MB. Trausta ÍS 54 frá Súðavík, sem
síðast heyrðist til kl. 16:30 daginn áður.
Brast þá á bandvitlaust veður og lentu
margir Vestfjarðarbátar í vand-
ræðum en komust þó allir að
landi nema Trausti sem ekki
svaraði ítrekuðum köllum
loftskeytaöðvarinnar á Ísafirði.
Lagt af stað
Það var óvenjuleg ganga út í
DC 4 Skymaster vélina þennan
morgun. Skammt frá blasti við
stél og afturhluti af skrokk ann-
arrar DC 4 flugvélar, sem hafði
kvöldið áður húrrað fram af flughálli
brautinni og niður í fjöru í Skerjafirði.
Enginn fórst en einn meiddist lítils-
háttar.
Vélin sem var bandarísk, frá FAA, var
gjörónýt en hún hafði verið hér við land
að mæla út aðflugskerfi á flugvöllum
landsins. Þetta flak minnti á að hver ferð
getur orðið fallvölt þótt til annars sé
stofnað. Annars urðu afdrif flaksins þau,
sem og TF Ránar, fyrstu gæsluflugvélar-
innar, að þær voru báðar urðaðar undir
suður enda Norð-Suður brautarinnar í
Reykjavík og fóru því hvergi.
Eftir að hafa spennt mig niður í sætið
setti ég heyrnartólin á hausinn og stillti
hlustunina á „intercom“ og 118.1 Mhz.
Flugleiðarkort yfir Ísland var á korta-
borðinu. Ofan á það lagði ég siglinga-
kortið sem ég hafði sett útí leitarlínurnar,
sem við áttum að fljúga og þar ofan á
siglingakort sem spannaði Faxaflóa,
Breiðafjörð og Vestfirði allt að Húnaflóa.
Fyrst yrði það notað á leiðinni á svæðið.
Meðan ég var að gera allt klárt
heyrði ég flugstjórann biðja
flugturninn um heimild til að
ræsa hreyfla og svar turnsins
ásamt tilkynningu um QNH til
að stilla hæðarmæla vélarinnar.
Stillti ég hæðarmælinn hjá mér
eftir því.
Við vorum 12 í áhöfn í þess-
ari ferð, flugstjóri, flugmaður,
flugvélstjóri, skipherra sem var
leiðangursstjóri, siglingafræð-
ingur sem kom í minn hlut og loft-
skeytamaður. Einnig vorum við með sex
útkikksmenn er sátu við glugga vélar-
innar á báðar hliðar og rýndu niður á
Guðjón Petersen
Trausti er týndur
TF Sif DC 4 á Akureyrarflugvelli. Mynd: Landhelgisgæslan.
SJÓMANNASAMBAND ÍSLANDS LANDSSAMBAND ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA
Sjómennt – Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins – Háteigsvegi – 105 Reykjavík – sími 514 9000
Átt þú rétt á styrk?
Félagsmenn Sjómenntar sem unnið hafa í að minnsta kosti sex mánuði
á síðastliðnum tólf mánuðum geta sótt um styrk til félagsins:
• starfstengt nám eða námskeið
• tómstundastyrkir
• meirapróf
• kaup á hjálpartækjum vegna lestrar- eða ritörðugleika
Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ)
og Sjómannasamband Íslands (SSÍ) standa að Sjómennt.
Sjómennt – fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga
Kynntu þér rétt þinn á www.sjomennt.is