Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Blaðsíða 19
Sjómannablaðið Víkingur – 19 Í aprílmánuði 1960 bauðst mér pláss sem hálfdrættingur á b.v Þorsteini Ingólfssyni RE – 206, sem ætlunin var að færi til saltfiskveiða við Vestur – Grænland í byrjun maí. Þar sem fyrir- sjáanlegt var að öllum prófum skyldu- námsins hjá mér yrði ekki lokið fyrir þann tíma, þá fékk ég leyfi skólastjór- ans til að gangast undir síðustu prófin áður, þannig að ekkert yrði því til fyrir- stöðu, að ég kæmist í þessa fyrstu veiði- ferð mína á togara, sem hófst þann 6. maí og lauk þann 7. júlí 1960. Var ég ráðinn sem hálfdrættingur. Margir há- setanna voru Færeyingar. Landað var úr skipinu hér heima alls 390.350 kg. af umstöfluðum saltfiski og að auki 14.524 kg. af lýsi, eins og stendur á launaseðlinum mínum, en alla launa- seðla sem ég fékk meðan ég var til sjós hef ég ávallt varðveitt. Viðbótarhnútar Aðalhlutverk pontarans í saltfisktúr var einfalt, eins og margir þekkja, þ.e að moka með gafli hinum flatta og þvegna fiski upp í sérútbúinn kassa og hleypa svo úr fullum kassanum niður í lestina. Ekki mátti gleyma að hnýta hnút á við- hangandi snæri fyrir hverja kassafylli. Var það gert til að geta fylgst með magn- inu, sem fór ofan í lestina. Var maður stundum beðinn um að hnýta einn og einn viðbótarhnút, sérstaklega þegar leið á túrinn. Ekki bara vegna metings um afköst við hina vaktina, heldur ekki sízt vegna þess, að sumir vildu trúa því, að meira væri í lestinni en var í raun, sem þýddi þá væntanlega um leið að túrnum lyki fyrr. Þótti manni sjálfsagt að verða við þessum óskum, enda mátuleg sjálfs- blekking hverjum manni nauðsynleg endrum og eins, ekki sízt í tveggja mán- aða saltfisktúrum í þokunni við Græn- land. Hitt hlutverk pontarans var að vera í næturkokkaríinu, sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi, en nefni hér eitt tilvik, sem sat lengi í mér. Eitt sinn var ég að ganga frá í eldhúsinu, en þá voru tveir, sem flöttu saman, komnir í kaffi en aðrir farnir. Áttu þeir það sameiginlegt að þykja óskaplega gaman að klæmast í tíma og ótíma og segja frá eigin afrekum í samskiptum sínum við kvenfólk og var þá ekkert dregið undan í lýsingunum. Þessum sögum þeirra fylgdi mikill hlát- ur, þessi smitandi hlátur, sem ómögulegt var að standast, þótt maður greindi ekki orðaskil fram í eldhús vegna skarksins þar. Vissi maður þó vel á hvaða nótum frásagnirnar voru. Verð ég þá allt í einu var við það, að yfirvélstjórinn, sem var eldri maður, stendur fyrir aftan mig, þar sem ég er hlæjandi og segir með mikilli hneykslan: „Það er nú meira hvað þú hefur gaman af klámi drengur!“ Ekki þótti mér þetta sanngjörn athugasemd miðað við forsendur, en hvað átti yfir- vélstjórinn að halda þarna? Nordafar Vinnan um borð var í föstum skorðum, gott fiskerí og því unnið allar vaktir og engin snöp. Eitt sinn kemur kokkurinn fram undir spil og kallar að kaffið sé til. Bað hann mig jafnframt að láta saltarana í lestinni vita. Aðalsaltarinn á vaktinni var Færeyingur, sem hét Níels. Fór ég niður í lest, niður á steis, en Níels stóð aftast í lestinni. Kallaði ég til hans: „Kaffi Níels!“ Hafði ég ekki fyrr sleppt orðinu, en Níels grýtir í mig gaflinum, sem hann hélt á. Beygði ég mig undan og rétt slapp, en þaut upp úr lestinni og skyldi eðlilega ekki í því af hverju Níels ger- samlega trompaðist, þegar ég var bara að segja honum að komið væri kaffi. Landar hans komu fljótt með skýringuna. Níels var alltaf uppnefndur, Kaffi Níels vegna elsku sinnar á kaffi og þrásetu við kaffi- Jónas Haraldsson St ígvélum s tampað Pontarinn skellir góðri flyðru niður í lest. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.